Fólk sé orðið leitt á því að sjá sömu flokkana hræra Fulltrúar Okkar borgar og Góðan daginn segja skipulags- og samgöngumálin í brennidepli í komandi borgarstjórnarkosningum sem og rekstur Reykjavíkurborgar. Framboðin hafa mælst með minnst fylgi í könnunum og samkvæmt þeim vantar nokkuð upp á til þess að þau nái manni inn í borgarstjórn á laugardag. Innlent 12.5.2026 21:06
Oddvitaáskorunin: Strumpur svo lýsandi gælunafn Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 12.5.2026 21:01
Oddvitaáskorunin: Cheerios með sykri besti morgunmaturinn Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 12.5.2026 19:32
Vill að flokkar sýni á spilin fyrir sveitarstjórnarkosningar um sölu á orkuinnviðum Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir eðlilegt að flokkar geri kjósendum skýra grein fyrir afstöðu sinni til sölu á orkuinnviðum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Hann segir umræðu um einkavæðingu fyrirtækja á borð við Rarik og Landsnet snerta hagsmuni íbúa víða um land og telur mikilvægt að línurnar liggi skýrt fyrir áður en gengið verður til kosninga. Innlent 12. maí 2026 12:02
Oddvitar sameinuðust í „We are the world“ Átta af oddvitunum ellefu sem bjóða fram í borgarstjórnarkosningum í Reykjavík komu óvænt fram á viðburði á vegum Hlaðfrétta á laugardagskvöld. Lífið 12. maí 2026 09:01
Þetta er stefna flokkanna í samgöngumálum í Reykjavík Samgöngusáttmáli sveitarfélaga höfuðborgarsvæðisins er í algleymingi í stefnum flokkanna í samgöngumálum í Reykjavík, ýmist stuðningur við sáttmálann, andstaða eða tillögur að endurskoðun hluta hans. Vísir tók saman stefnu flokkanna í málaflokknum en áhersla á bílastæði fer þar mikinn. Innlent 12. maí 2026 07:02
Kosningastreita og stemning á vinnustöðum Nú þegar líður að kosningum er eins og spennan í andrúmsloftinu magnist. Ekki aðeins gefa frambjóðendur og kosningastjórar hressilega í, heldur virðist eins og samfélagið allt færist upp á næsta stig í ósýnilegri adrenalíngjöf. Atvinnulíf 12. maí 2026 07:02
Ömurlegt að sjá skilaboð á veggnum sem geti ekki talist annað en pólitísk Þrjátíu og þriggja metra langt listaverk sem hefur prýtt vegg í Hamraborg í Kópavogi síðustu sjö árin hefur vikið fyrir auglýsingu. Breytingin hefur vakið athygli meðal íbúa en meðal þeirra sem hafa tjáð sig um málið er Margrét Tryggvadóttir, formaður Rithöfundasambands Íslands. Kópavogsbær hafnar því að breytingin hafi nokkuð með pólitík að gera. Innlent 11. maí 2026 21:27
Oddvitaáskorun: Mistök að byrja með manni með jeppadellu þó hún elski hann Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 11. maí 2026 21:03
Upplausn á Ártúnshöfða og þolinmæði á þrotum Framtíð um sextíu fyrirtækja og rekstraraðila á Ártúnshöfða er í lausu lofti vegna óvissu um lóðarleigusamninga. Talsmenn þeirra segja gríðarlega hagsmuni í húfi og fjölda starfa undir. Þeir kölluðu frambjóðendur á sinn fund í dag sem voru á einu máli um að staðan þyrfti að skýrast. Innlent 11. maí 2026 19:30
Margir á leið í frí og það getur haft áhrif á kosninganótt Um fjörutíu prósenta aukning hefur orðið á utankjörfundaratkvæðum í sveitarstjórnarkosningum nú í samanburði við síðustu kosningar árið 2022. Fjöldinn er svo mikill að svo getur farið að úrslit á laugardagsnótt muni ekki liggja fyrir fyrr en þessi atkvæði verða talin en þau eru talin síðust. Innlent 11. maí 2026 19:01
„Það er ekki leiðtogi“ Oddviti framboðsins Betri sveitar segir Fjólu Kristinsdóttur sveitarstjóra Grímsnes- og Grafningshrepps ekki óháða í umræðu um kosningamál í hreppnum. Hann tekur undir orð hennar um að siðferðislega rangt sé að skrá sig á kjörskrá fyrir kosningar og aftur út að þeim loknum. Innlent 11. maí 2026 16:31
Guðmundur Ingi svarar fyrir umdeilt myndband Gervigreindarmyndband sem birt var á TikTok-aðgangi oddvita Flokks fólksins í Reykjavík, Guðmundar Inga Þóroddssonar, hefur vakið mikla athygli á samfélagsmiðlum. Þar mátti meðal annars sjá Guðmund veitast að Pétri Marteinssyni, oddvita Samfylkingarinnar, og Ingu Sæland dansandi káta. Myndbandið hefur nú verið tekið niður og segir Guðmundur að um dómgreindarleysi sé að ræða. Innlent 11. maí 2026 16:23
Samfylkingin kveinkar sér undan stórskotahríð Viðreisnar Samfylkingarfólk hefur ekki alveg vitað hvaðan á sig stendur veðrið en flokkurinn hefur sætt gegndarlausri gagnrýni og skensi frá … Viðreisn, samstarfsflokki sínum í ríkisstjórn. Innlent 11. maí 2026 15:20
Bíða með breytingar eftir liðsskipti Helga Áss fram yfir kosningar Sjálfstæðismenn í borgarstjórn hafa dregið til baka tillögur um greiðslur til varaborgarfulltrúa sem þeir lögðu fram eftir að fyrsti borgarfulltrúi þeirra sagði skilið við þá í vetur. Fulltrúi þeirra segir tillögurnar lagðar fram eftir kosningar þegar nýr meirihluti verður kominn með umboð. Innlent 11. maí 2026 13:45
Hátt í 40 prósenta aukning í kosningaþátttöku utan kjörfundar Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir að hátt í 30% aukning sé á utankjörfundaratkvæðagreiðslu hjá íbúum á höfuðborgarsvæðinu frá síðustu sveitarstjórnarkosningum 2022. Innlent 11. maí 2026 13:42
Stjórnsýslan hafi lagt undir sig landið og miðin Pistill Halldórs Armands í Sunnudagsmogganum hefur sannarlega hitt í mark en þar fjallar hann um kerfi sem er að vaxa okkur yfir höfuð. Halldór gerir því skóna að þetta sé vegna þess að Íslendingar telji að hin sturlaða yfirbygging sé vegna þess að við teljum okkur þurfa að sanna fyrir umheiminum að við séum ekki kotbændur heldur þjóð meðal þjóða. Niðurstaðan er hins vegar nöturleg. Innlent 11. maí 2026 13:32
Oddvitaáskorun: Mjög til í að vera smiður Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 11. maí 2026 13:02
„Mér finnst það ekki siðferðislega rétt“ Fjöldi íbúa með ótilgreint heimilisfang hefur margfaldast í Grímsnes- og Grafningshreppi frá síðustu kosningum. Sveitarstjóri segir ekki siðferðislega rétt ef fólk skráir lögheimili sitt í sveitarfélaginu fyrir kosningar og svo til baka að þeim loknum og kallar eftir betri upplýsingagjöf frá Þjóðskrá. Innlent 11. maí 2026 13:02
„Ekki frekar en þegar Dagur var í framboði“ Eva B. Helgadóttir formaður yfirkjörstjórnar segir það af og frá að það eitt að bjóða fólki „Góðan daginn!“ geti talist áróður á kjörstað. Innlent 11. maí 2026 11:10
Oddvitaáskorunin: „Eru kótilettur í raspi í matinn?” Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 11. maí 2026 09:02
Oddvitaáskorunin: Klárar málin með símtölum Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 10. maí 2026 21:00
Oddvitaáskorunin: Skipti óvart yfir á ensku á tali við heyrnalausan Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum. Lífið 10. maí 2026 17:30
Sé gríðarlega neikvætt fyrir samfélagið í heild sinni Í nýjasta þætti af Ísland í dag var ferðinni heitið á Austurland. Þar virðist sem samgöngumál, þá sérstaklega áform um Fjarðarheiðargöng, brenni á íbúum. Annars var algengt að fólk nefndi skipulagsmál, þjónustu við aldraða og skólamál aðspurt hvað væri aðkallandi. Í kjölfar breytinga á tilhögun leikskólavistar í Fjarðabyggð hafa konur tekið á sig að minnka starfshlutföll sín. Innlent 10. maí 2026 14:39