Helmingur óánægður hefði Hildur valið Miðflokkinn Sigurgeir Þorkelsson skrifar 22. júní 2026 19:40 Hildur sagðist á endanum hafa valið að mynda meirihluta með breiðari skírskotun þegar hún teygði sig í átt að miðjunni og myndaði meirihluta með Framsókn og Viðreisn. Samsett Rúmur helmingur Reykvíkinga hefði verið óánægður ef Hildur Björnsdóttir hefði valið að mynda tveggja flokka meirihluta með Miðflokknum samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Væntingar til Hildar sem borgarstjóra eru þónokkrar en liðlega helmingur hefur fremur miklar eða mjög miklar væntingar til hennar. Hildur leiddi Sjálfstæðisflokkinn til sigurs í nýafstöðnum borgarstjórnarkosningum.
Könnun Maskínu fór fram dagana 2. til 11. júní og voru svarendur 781 talsins. Gögn voru vegin út frá tölum Hagstofunnar um kyn, aldur og menntun. Svarendum voru gefnir svarmöguleikarnir mjög ánægð/ur, fremur ánægð/ur, í meðallagi ánægð/ur, fremur óánægð/ur eða mjög óánægð/ur. Umtalsvert meiri væntingar mælast til meirihluta Hildar Björnsdóttur en til meirihluta Heiðu Bjargar Hilmisdóttur sem tók við borgarstjórastólnum á vormánuðum 2025. Nærri helmingur, eða 46,1 prósent, ber fremur eða mjög miklar væntingar til nýs meirihluta nú samanborið við um fjórðungs sem bar fremur eða mjög miklar væntingar til meirihlutans sáluga. Samkvæmt niðurstöðum könnunarinnar virðast margir Reykvíkingar vera fegnir því að Hildur ákvað að leita í átt að miðjunni við myndun meirihluta. Hildur hóf á sínum tíma viðræður með flokkunum fjórum sem ekki tilheyrðu fráfarandi meirihluta en svo fór að myndaður var þriggja flokka meirihluti Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og Viðreisnar. Samkvæmt könnun Maskínu hefðu 58,6 prósent Reykvíkinga verið fremur eða mjög óánægð með meirihluta Sjálfstæðisflokks og Miðflokks. Á sama tíma hefðu tuttugu og níu prósent Reykvíkinga verið ánægð með téðan meirihluta. Athygli vekur að það er umtalsvert minna en flokkarnir fengu í kosningunum, þar fengu þeir samtals 44,3 prósent atkvæða. Hætta að vera of litlir í sér Mikil umræða var, bæði fyrir og eftir borgarstjórnarkosningar, um í hvaða átt framboðin myndu leita þegar kæmi að myndun meirihluta. Til að mynda var Björg Magnúsdóttir þráspurð um efnið í aðdraganda kosninganna uns hún loks aftók að ganga í samstarf með Miðflokknum í kappræðum Ríkisútvarpsins kvöldið fyrir kosningar. Þá hitnaði fljótt undir Hildi Björnsdóttur þegar talið hafði verið upp úr kjörkössunum og ljóst var að hún stóð með pálmann í höndunum. Bárust meðal annars skeytasendingar frá Miðflokksmönnum sem sögðu Sjálfstæðismenn yrðu að hætta að vera of litlir í sér og ganga í eina sæng með Miðflokknum. Ánægja með þriggja flokka meirihlutann sem myndaður var undir Hildi Björnsdóttur mælist meiri en óánægjan, 17,4 prósent eru mjög ánægð og 24 prósent fremur ánægð. Um þriðjungur Reykvíkinga, eða 32,9 prósent, eru óánægð með nýja meirihlutann. Þá stendur um fjórðungur eftir sem eru í meðallagi ánægð. Væntingar til Hildar Björnsdóttur sem borgarstjóra Reykjavíkur eru nokkrar en 27,1 prósent bera mjög miklar væntingar til hennar. Þá bera 20,9 prósent fremur miklar væntingar til hennar á meðan litlar væntingar bera samtals 28,5 prósent til Hildar.
Borgarstjórn Sjálfstæðisflokkurinn Miðflokkurinn Viðreisn Reykjavík Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Innlent Fyrirgefur Lindsay fyrir að myrða börnin Erlent Pútín sló öll met Erlent Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Innlent Sigurboginn verður leyniskyttuhreiður Erlent Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Innlent Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Innlent Skipuleggur eigin jarðarför Innlent Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Innlent Sigmar í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Börn á rafmagnskrossurum og Kópavogur vill herða reglur Sigmar í veikindaleyfi Tafir á Keflavíkurflugvelli Vilja þingkosningar og staðgöngumæður Samninganefnd Reykjavíkurborgar leyst undan störfum Barn á rafmagnskrossara sótt af foreldrum sínum Rýma húsið: „Draumurinn er að Reykjavíkurborg geti hjálpað okkur“ Skattadrottning þurfti að borga álag eftir allt saman Vill þyngja hámarksrefsingu fyrir að kaupa vændi af barni „Mikill skilningur á því að það þurfti að fara í breytingar“ Hólmarnir í Tjörninni fá andlitslyftingu Missti stjórn á bílnum og hafnaði á vegg Vonar að „Evrópusambandsblætið“ renni af forystu ríkisstjórnarinnar Fá engin svör frá ráðherra og segja matvælaöryggi undir Fleiri herstöðvar ekki slæm tíðindi fyrir Íslendinga Líklega síðustu hvalveiðivertíðinni lokið Opið bréf til Ingu: „Þetta er „lausn“ á einhverju sem var aldrei vandamál“ Náum verðbólgunni aldrei niður ef ríkið hægir ekki á sér Afi ákærður fyrir brot gegn barnabarni sínu Börnin segja hóp manna hafa elt þau og boðið nammi Danir og Grænlendingar til New York og hettuklæddir menn í Árbæ Arnarfell dregið til Færeyja Fimm nýir í stjórn Ungs jafnaðarfólks „Ég stend eins lengi og ég þarf að standa í þessu“ Hótuðu að loka Vogi Menntakerfið, útlendingamál og hallalaus fjárlög í Sprengisandi Tuttugu lögðu ólöglega Brutust inn hjá fyrirtæki Skipuleggur eigin jarðarför Eldur í bíl í Heiðmörk Sjá meira