Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Árni Sæberg skrifar 26. maí 2026 10:21 Héraðsdómur Reykjavíkur mun taka málið fyrir. Vísir/Vilhelm Karlmaður hefur verið ákærður fyrir nauðgun, með því að hafa ekki látið af samræði við konu, eftir að hún gerði honum ljóst að hún vildi ekki lengur stunda við hann samræði. Það gerði konan meðal annars með því að slá hann ítrekað.
Í ákæru þess efnis, sem þingfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur í síðustu viku, segir að aðfaranótt sunnudags í maí árið 2022 hafi maðurinn nauðgað konunni eftir að þau hófu samræði með vilja beggja, beitt hana ofbeldi og ólögmætri nauðung og haft áfram við hana samræði og önnur kynferðismök án hennar samþykkis. Það hafi hann gert með því að taka um háls hennar og þrengja að á meðan hún reyndi að fá hann til að láta af háttsemi sinni meðal annars með því að slá ítrekað í hann, slegið hana ítrekað í lærið, hrækt í andlit hennar, slegið hana utan undir og rifið í hár hennar, og sett getnaðarlim sinn inn í endaþarm hennar, með þeim afleiðingum að hún hlaut roða og bólgu á hálsi, marbletti á vinstri upphandlegg, roða og bólgu á vinstra læri og grunna sprungu innanvert í endaþarmi. Þess sé krafist að maðurinn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar, auk þess sem konan krefjist þriggja milljóna króna í miskabætur auk lögmannskostnaðar upp á 249 þúsund og málskostnað að mati dómsins.
Kynferðisofbeldi Kynbundið ofbeldi Dómsmál Reykjavík Mest lesið Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Innlent Fella niður 26 flugferðir Innlent „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Innlent Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Innlent Segir stóra ákvörðun framundan Erlent Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Innlent Verkfall flugvirkja hafið Innlent Lögreglan leitar að Arturas Innlent Hvannadalshnjúkur lækkar Innlent Gular viðvaranir á morgun Veður Fleiri fréttir Verkfall flugvirkja hafið „Gengið með eins eðlilegum hætti og hægt er“ Fylgi haggast varla eftir atkvæðagreiðslu Hvannadalshnjúkur lækkar Líkamsárás í Breiðholti Fella niður 26 flugferðir Þakkar Guði fyrir hjálminn þegar drengurinn höfuðkúpubrotnaði Hjól Eyjabarna skrúfuð í sundur Lögreglan leitar að Arturas Flugfreyjur og flugmenn styðja flugvirkja Fjöldi handtekinn í aðgerðum lögreglu Bein útsending: Kynna nýtt áhættumat fyrir Grindavík Barn stakk sig á sprautunál á skólalóðinni „Það er enginn bissness í þessu fyrir okkur“ Gómaður með gríðarlegt magn af barnaklámi Nýtt áhættumat: Bjóða Grindvíkingum að kaupa húsin til baka Flestir félagar vilji frekari kjarabætur vegna forsendubrests Kristján hótar lögsókn verði bann að lögum Hefja athugun á fjárhagsaðstoð Reykjavíkurborgar Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Munu ekki samþykkja frekari hækkun launa Árleg framlög jukust um 286 milljónir en Sinfónían aftur rekin með tapi Segir ásakanir flugvirkja „furðulegar“ Neitar að tjá sig um hvort lög verði sett á verkfall Ekkert í afkomu fyrirtækja sem sýni virðingu fyrir kjarasamningum Þokast æ fjær loftslagsskuldbindingum Íslands Leita lausnar áður en verkfall hefst á miðnætti Boða stórsókn í skóla- og menntamálum í Reykjavík Bein útsending: Kynnir nýjar losunartölur Nauðgaði sofandi sambýliskonu sinni og tók myndir Sjá meira