Mældur á 200 kílómetra hraða á klukkustund Birgir Olgeirsson skrifar 18. maí 2026 19:14 Skúli Jónsson er stöðvarstjóri lögreglustöðvarinnar í Hafnarfirði. Vísir/Arnar Ökumaðurinn sem lögreglan stöðvaði för í gærkvöld var mældur á allt að 200 kílómetra hraða á klukkustund. Lögreglan stöðvaði för hans með því að kasta út naglamottu. För ökumannsins lauk þegar hann ók aftan á aðra bifreið á afrein að Breiðholtsbraut. Tvennt var í bílnum sem hann ók á og voru þau flutt á sjúkrahús með minniháttar áverka. Pilturinn var einnig fluttur á sjúkrahús með minniháttar áverka og bíður nú lögregla eftir að geta yfirheyrt hann.
Lögreglan á Suðurnesjum kom fyrst auga á aksturslag piltsins og mældi hann á 180 til 200 kílómetra hraða á klukkustund á Reykjanesbraut. Hann sinnti ekki fyrirmælum lögreglu um að stöðva bifreiðina og hvarf lögreglumönnum úr sjónum. Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu var gert viðvart sem kom á auga á ökumanninn á Reykjanesbraut við Vellina í Hafnarfirði. Ók inn í Áslandshverfi og aftur út á Reykjanesbraut Þegar ökumaðurinn sinnti ekki stöðvunarmerkjum hóf lögreglan á höfuðborgarsvæðinu undirbúning að því að stöðva hann. Samkvæmt lögreglu voru tvær naglamottur lagðar út, önnur í Hafnarfirði og hin í Garðabæ. „Við erum með nokkra bíla í rauninni tilbúna til að taka á móti honum og við erum með í hverjum einasta lögreglubíl svokallaðar naglamottur sem að við getum hent út þegar viðkomandi er að koma og þannig hérna dregið úr hraða bifreiðarinnar,“ segir Skúli. Ökumaðurinn ók inn á höfuðborgarsvæðið eftir Reykjanesbraut, fór stuttlega inn í Áslandshverfi í Hafnarfirði og þaðan aftur út á Reykjanesbraut. Hann ók síðan fram hjá Kaplakrika, áfram fram hjá IKEA og yfir naglamottu við íþróttahúsið Miðgarð í Garðabæ. Beðið eftir að loftið færi úr dekkjunum Þótt bíllinn færi yfir naglamottu stöðvaðist hann ekki strax. Skúli segir að eftir slíkar aðgerðir taki nokkurn tíma þar til loft fer úr dekkjunum og bíllinn missir aksturshæfni. Akstrinum lauk við fráreinina af Reykjanesbraut upp á Breiðholtsbraut. „Og þar ekur hann aftan á bíl. Og þar með lýkur þessum akstri hjá honum,“ segir Skúli. „Sem betur fer minniháttar áverkar, eitthvað í hálsi og þess háttar,“ segir hann. „Mjög snúið“ verkefni fyrir lögreglu Skúli segir að mál af þessu tagi séu meðal erfiðari verkefna lögreglu. Sérstakar verklagsreglur gildi um eftirför og stöðvun ökutækja, enda þurfi lögregla stöðugt að meta hvort aðgerðir hennar dragi úr hættu eða geti aukið hana. Hann segir umræðuna stundum snúast um að lögregla sé í eltingaleik. Málið sé þó ekki svo einfalt. „Þó svo að lögregla hætti eftirförinni, þá er ekkert endilega viðkomandi hættur þessu háttalagi sínu eða þessum hraðakstri,“ segir Skúli. Aðstæður í gærkvöldi vógu þungt í mati lögreglu. Umferð var lítil og aksturinn fór að mestu fram á stórum stofnæðum með tvær akreinar í hvora átt. Fylgdust með úr dróna Lögregla notaði einnig dróna við aðgerðirnar. Einn dróni var sendur á loft frá Hafnarfirði og annar var tilbúinn í Kópavogi. Hann segir drónana skipta máli þegar lögregla þarf að meta stöðuna í rauntíma. „Það hjálpar okkur náttúrulega til varðandi matið á okkar aðgerðum um eftirfarir,“ segir Skúli. Að hans mati eiga drónar eftir að nýtast lögreglu í fleiri verkefnum, meðal annars við leit að fólki. Málið er nú til rannsóknar. Lögregla hefur rætt við ökumann og farþega í bílnum sem ekið var á, auk vitna. Eftir stendur að ræða nánar við piltinn sem ók undan lögreglu og meta alvarleika málsins út frá almannahættu.
Lögreglumál Umferðaröryggi Reykjavík Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Sjá meira