„Ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg“ Smári Jökull Jónsson skrifar 18. maí 2026 12:08 Lögreglan á eftir bílnum á Reykjanesbrautinni í gærkvöldi. Rútubílstjóri sem varð vitni að ofsaakstri á Reykjanesbraut í gærkvöldi segir bílinn hafa verið á svakalegri ferð. Sá hann þegar lögregla hóf eftirför en henni lauk við Breiðholtsbraut með árekstri þar sem tveir bílar enduðu utan vegar.
Gísli Reynisson rútubílstjóri var á leið til Keflavíkur eftir Reykjanesbrautinni í gærkvöldi. Lögreglan var stopp við hraðamælingar rétt fyrir neðan Grindavíkurafleggjara, á stað þar sem þekkt er að lögreglan grípi ökumenn sem aka of hratt. „Þegar ég nálgast lögregluna þá sé ég uppi í brekkunni fyrir ofan að það kemur bíll á alveg svakalegri siglingu niður Stapann,“ segir Gísli í samtali við fréttastofu. „Það eru tveir bílar fyrir framan hann, einn á hægri akrein og einn á vinstri og þessi vinstra megin er að taka fram úr hinum. Nema þessi bíll hann tekur fram úr báðum, fer hægra megin við annan bílinn og keyrir út fyrir veginn,“ segir Gísli. Þegar Gísli kom að staðnum þar sem lögreglan er keyrir bíllinn framhjá og lögreglan hefur eftirförina. „Mig grunar að hraðinn hafi ekki verið undir 160. Hann sló ekkert af, hann keyrði bara,“ segir Gísli en Bjarney Annelsdóttir yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Suðurnesjum telur bílinn hafa verið á yfir 190 kílómetra hraða þegar lögregla hóf eftirför. Telur hættuna ekki hafa verið mikla Gísli gat fylgst með eftirförinni í speglinum. „Lögreglan brunaði af stað og elti og ég fylgdist með henni í spelginum. Miðað við það sem ég sá í spelginum þá náði lögreglan honum ekki, hefur örugglega gert það þegar hún var komin lengra inn á Reykjanesbrautina. En ferðin á þessum bíl var alveg svakaleg,“ bætir Gísli við. Gísli telur hins vegar ekki hafa verið mikla hættu á ferð. „Það var sem betur fer ekki mikil umferð á Reykjanesbrautinni þannig að hann hafði allan veginn fyrir sig þessi gaur. Það var ekki mikil hætta þannig séð en hann keyrði alveg svakalega hratt.“ Fór inn í íbúahverfi Bjarney Annelsdóttir, yfirlögregluþjónn, segir lögreglu hafa misst sjónar af bílnum við Hafnarfjörð. „Samkvæmt upplýsingum í okkar máli hér á Suðurnesjum þá fer hann bæði inn í Hafnarfjörðinn, í Ásland og Garðabæ og inn í Kópavog, Breiðholtsbrautina þar sem árekstur verður,“ segir Bjarney í samtali við fréttastofu. Hún segir ökumanninn ekki grunaðan um að hafa ekið undir áhrifum. Myndband af eftirförinni má sjá hér fyrir neðan þar sem bílinn er við Ásland í Hafnarfirði.
Lögreglumál Umferðaröryggi Samgönguslys Reykjavík Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira