Breyttu spurningunni í þjóðaratkvæðagreiðslunni Árni Sæberg skrifar 18. maí 2026 11:15 Pawel Bartoszek á fundi utanríkismálanefndar. Í forgrunni er Diljá Mist. Vísir/Vilhelm Utanríkismálanefnd Alþingis afgreiddi þingsályktunartillögu utanríkisráðherra um þjóðaratkvæðagreiðslu um aðilda að Evrópusambandinu úr nefnd í morgun. Orðalagi spurningarinnar hefur verið breytt og svarmöguleikar verða einfaldlega já og nei. Minnihluti nefndarinnar bókaði mótmæli.
Pawel Bartoszek, formaður utanríkismálanefndar, segir í samtali við Vísi að nefndin hafi afgreitt málið frá sér og lagt til að spurningunni verði breytt í samræmi við álit meirihluta stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, þannig að spurt verði þann 29. ágúst: „Á að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ Hafi reynt að bregðast við upplýsingabeiðnum Talsvert hefur borið á gagnrýni vegna vinnubragða nefndarinnar í málinu og minnihluti utanríkismálanefndar bókaði mótmæli gegn því að málið hafi verið afgreitt úr nefnd í dag. „Ég segi bara að tímalína málsins hefur legið auðvitað fyrir allan tímann. Það hefur verið reynt að bregðast vel við öllum beiðnum um upplýsingar en það stóð auðvitað alltaf til að við myndum afgreiða málið í byrjun maí og það höfum við gert, haldið þessu plani og nú er bara komið að því að þingið eigi lokaorðið um afgreiðslu málsins,“ segir Pawel um þá gagnrýni. Þá segist hann bjartsýnn á það að þingið muni ná að samþykkja þingsályktunartillöguna í tæka tíð til þess að hægt verði að ganga til þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst. Ómögulegt að glöggva sig á nýjustu upplýsingum Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og nefndarmaður í utanríkismálanefnd, greindi frá niðurstöðu meirihlutans á Facebook í morgun og deildi bókun minnihlutans. „Minnihluti utanríkismálanefndar mótmælir því að málið sé tekið út úr nefnd á þessum tímapunkti, rúmum sólahring eftir lok sveitarstjórnarkosninga. Upplýsingabeiðnir eru enn útistandandi frá nefndinni og umfangsmiklar upplýsingar hafa borist aðeins á undanförnum dögum og því lítið sem ekkert svigrúm gefist til kynningar á þeim upplýsingum. Upplýsingarnar hafa borist á meðan þingið hefur ekki verið að störfum vegna sveitarstjórnarkosninga, eins og venja er. Af þeim upplýsingum sem þó hafa borist, bárust þær síðustu í gærkvöld og augljóslega ómöguleiki fyrir nefndarmenn að glöggva sig á þeim innan þess tímaramma,“ segir meðal annars í bókuninni. Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur kom óvænt saman í gær, sunnudag, til þess að samþykkja afléttingu á trúnaði yfir gögnum sem utanríkismálanefnd hafði óskað eftir í tengslum við aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið á árunum 2009 til 2013. Meirihlutinn hafi hafnað að senda út upplýsingabeiðnir Þá segir í bókuninni að sjálfsögðum upplýsingabeiðnum hafi verið svarað bæði með því að stór hluti gagna séu undanskilin, og með önnur sé eingöngu boðið upp á gögn í umfangsmiklum trúnaði sem ekki megi vísa í, auk þess sem upplýsingabeiðnum hafi verið svarað í engu og meirihlutinn jafnvel hafnað að senda út beiðnir. „Minnihlutinn undirstrikar að hlutverk nefndarinnar er að vinna málið þannig að gagn sé að fyrir umræðu í þingsal. Það hefur hins vegar ekki verið raunin og meiri hlutinn borið fyrir sig fyrirframgefinni tímalínu.“
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Alþingi Evrópusambandið Utanríkismál Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira