Innlent

Fyrstu tölur úr Kópa­vogi: Sjálf­stæðis­flokkur einn í meiri­hluta

Oddur Ævar Gunnarsson skrifar
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokks og Orri Vignir Hlöðversson, oddviti Framsóknar. Myndin er tekin fyrir upplestur fyrstu talna.
Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri og oddviti Sjálfstæðisflokks og Orri Vignir Hlöðversson, oddviti Framsóknar. Myndin er tekin fyrir upplestur fyrstu talna. Vísir/Vilhelm

Sjálfstæðisflokkurinn er með langmesta fylgið í Kópavogi samkvæmt fyrstu tölum. Yfirkjörstjórn í Kópavogi kynnti tölurnar rétt í þessu. 

Atkvæði skiptast svo samkvæmt fyrstu tölum:

Framsóknarflokkur: 1.075 10,7 prósent

Viðreisn: 957 9,5 prósent

Sjálfstæðisflokkur: 4.552 45,1 prósent

Sósíalistaflokkur: 168 1,7 prósent

Miðflokkur: 980 9,7 prósent

Samfylking: 1.914 19 prósent

Vinstri græn og óháð: 285 2,8 prósent

Sjálfstæðisflokkur og Framsókn voru saman í sex manna meirihluta í bæjarstjórn Kópavogs á nýliðnu kjörtímabili. Samkvæmt fyrstu tölum fengi Sjálfstæðisflokkur sex menn og þyrfti því ekki að taka með sér samstarfsflokk í meirihluta. Samfylking fengi tvo menn, Framsókn einn, Miðflokkur einn, Viðreisn einn og aðrir engan.

Fréttin verður uppfærð. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×