Grunnur að bjartri framtíð í Kópavogi Sigrún Bjarnadóttir skrifar 7. maí 2026 21:33 Mikil umræða hefur verið um menntamál að undan förnu og margt hefur þar verið ritað og sagt. Þó þar hafi komið fram eitt og annað sem er á misskilningi byggt er umræða alltaf til góðs. Við erum svo lánssöm sem vinnum að skólamálum í Kópavogi að skólarnir hafa notið sjálfstæðis. Menntasvið og forysta bæjarfélagsins hefur staðið þétt við bakið á okkur starfsmönnum í daglegu amstri og þeim áskorunum sem við mætum. Skólarnir njóta ríkrar og mikilvægrar sérfræðingsþjónustu af ýmsu tagi frá menntasviði bæjarins. Jafnframt höfum við búið vel að hæfu starfsfólki, þ.e. kennurum og öðru fagfólki sem leggur sig fram í störfum sínum alla daga með hagsmuni barnanna að leiðarljósi. Því hefur starfið í menntamálum í Kópavogi verið áhugavert, ögrandi og gefandi. Forysta Kópavogs í þróun og breytingu á leiksskólastiginu hefur vakið verðskuldaða athygli enda hafa þær skilað tilsettum árangri. Þar var haft víðtækt samráð við alla hagaðila sem skilaði góðri niðurstöðu, hefur aukið öryggi og vellíðan barna ásamt því að bæta starfsaðstæður í leikskólum Kópavogs. Nú geta öll 12 mánaða börn fengið dagvistun í Kópavogi og er það vel. Starfsmenn leikskólanna og stjórnendur hafa opinberlega fagnað þessum árangri. Það er því ekki aðeins gott að búa í Kópavogi, það er einnig mjög gott að starfa í Kópavogi. Grunnskólinn næst á dagskrá Með víðtæku samráði við grunnskólasamfélagið í Kópavogi þ.e. foreldra, nemendur, kennara og annað fagfólk skólanna voru sett af stað sextán umbótaverkefni undir nafninu „Framtíðin í fyrsta sæti“. Markmiðið er að efla gæði náms og kennslu í samráði við skólasamfélagið. Jafnframt að koma til móts við ákall um betri yfirsýn yfir námsstöðu og aukin gæði í skólastarfi. Einnig að auka vellíðan og öryggi í skólum Kópavogs. Við í Sjálfstæðisflokknum í Kópavogi ætlum að leggja enn meiri áherslu á farsælli framtíð barna og ungmenna með markvissum aðgerðum í skóla og frístundastarfi. Markmið okkar er skýrt, að skólar Kópavogs séu ávallt í fremstu röð og leiðandi í umbótum, þar sem velferð, þekking og metnaður fer saman. Við ætlum að efla fagmennsku í skólum bæjarins með því að fjölga faglærðum kennurum. Það gerum við meðal annars með því að styðja leiðbeinendur til náms og tryggja að starfsfólk fái tækifæri til að þróast í starfi. Um leið viljum við setja skýrari mælikvarða á námsárangur til að tryggja gagnsæi og stöðugar umbætur. Í því samhengi teljum við mikilvægt að innleiða fleiri samræmd próf, meðal annars í náttúrufræði, svo hægt sé að fylgjast betur með stöðu nemenda og grípa tímanlega inn í ef þörf krefur. Samstarf heimila og skóla er lykilatriði í árangursríku námi. Við viljum auka aðgengi foreldra að upplýsingum um nám barna sinna og styrkja tengslin milli skóla og heimilis. Kópavogur hefur verið brautryðjandi í notkun spjaldtölva í kennslu og við ætlum að halda þeirri forystu áfram með því að rýna markvisst í áhrif tækninnar. Sérstök áhersla verður lögð á að meta áhrif á námsárangur og tryggja hóflegan og heilbrigðan skjátíma barna. Fartölvur og átak í íslenskukennslu tvítyngdra Til að undirbúa nemendur enn betur fyrir framtíðina ætlum við að tryggja að allir nemendur á unglingastigi hafi aðgang að fartölvum. Jafnframt viljum við endurhugsa stuðning inn í grunnskóla til að mæta breyttum þörfum samfélagsins. Við leggjum sérstaka áherslu á að mæta betur þörfum bráðgerra barna og vinna gegn skólaleiða með fjölbreyttari og krefjandi námsumhverfi. Íslenskan er lykill að þátttöku í samfélaginu. Því viljum við efla markvissa þjálfun í íslensku með því að koma á móttökuverum í hverjum skóla fyrir börn af erlendum uppruna. Með sterkari grunn í tungumálinu verða þau betur í stakk búin til að takast á við nám og samfélagsþátttöku. Við ætlum einnig að auka sveigjanleika og frelsi skóla til að bjóða upp á fjölbreyttari valfög sem undirbúa nemendur fyrir framhaldsskóla og lífið sjálft. Þar má nefna aukna áherslu á fjármálalæsi, raungreinar, hugbúnaðarþróun og verklegt nám. Leikskólinn er fyrsta skólastigið og þar leggjum við grunn að áframhaldandi námi og velferð barna. Við viljum að leikskólar í Kópavogi séu fyrsta val foreldra. Í Kópavogsmódelinu tryggjum við fullmannaða leikskóla og áreiðanlega þjónustu. Við munum áfram leggja áherslu á að koma rausnarlega til móts við tekjulægri heimili og tryggja jafnt aðgengi að gæða menntun fyrir öll börn. Við viljum einnig bæta stuðning við foreldra yngstu barnanna með því að bjóða upp á heimgreiðslur frá 15 mánaða aldri og stefnum að því að lækka aldurinn niður í 12 mánuði. Með því aukum við valfrelsi fjölskyldna og gerum þeim kleift að velja það fyrirkomulag sem hentar þeim best. Með þessum aðgerðum leggjum við traustan grunn að bjartri framtíð í Kópavogi – þar sem hvert barn fær að njóta sín, þroskast og blómstra í öflugu og styðjandi námsumhverfi. Höfundur er skólastjóri og skipar 9. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sjálfstæðisflokkurinn Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skóla- og menntamál Kópavogur Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Skoðun Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Sjá meira
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar