„Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Tómas Arnar Þorláksson skrifar 28. apríl 2026 21:01 Katrín Laufey Rúnarsdóttir, einn skipuleggjanda Puffin Run, og Þórunn Pálsdóttir, íbúi í Vestmannaeyjum. Íbúi í Vestmannaeyjum sem hefur skrifað pistil daglega sautján daga í röð til að mótmæla ófremdarástandi í samgöngum við Eyjar segir Vegagerðina bregðast Eyjamönnum. Skipuleggjandi Puffin stingur upp á sjö tíma siglingu með Herjólfi fyrir ráðamenn til að þeir átti sig á stöðunni.
Herjólfur var sex klukkustundir á leið sinni frá Þorlákshöfn til Vestmannaeyja í gærkvöldi. Annar mótor ferjunnar bilaði fyrir tveimur vikum og verður í viðgerð í Hollandi næstu vikurnar. Það veldur því að í ólgusjó ferðast skipið aðeins á um fimm sjómílna hraða. Aðstæður í Landeyjahöfn séu óvenjuslæmar að sögn framkvæmdastjóra Herjólfs og því hefur nánast ekkert verið siglt þaðan síðan í janúar. Þórunn Pálsdóttir, íbúi í Vestmannaeyjum sem hefur skrifað pistil daglega í sautján daga til að mótmæla ástandinu, segir nóg komið. „Hljóðið er bara hrikalega þungt í fólki hérna. Það er mikil reiði og okkur finnst bara ekki verið að hlusta á það sem við erum að reyna að segja. Það er alltaf verið að bíða eftir því að höfnin verði löguð betur, að það sé byggt meira í kringum höfnina, öflugri brimgarða og annað. Þetta ástand er búið að vera núna í sextán ár, frá því hún var fyrst tekin í notkun.“ Númer 31 á biðlista Hún segist hafa sent erindi á innviðaráðuneytið og forsætisráðuneytið fyrir sextán dögum og fengið viðbrögð í gær þegar að aðstoðarmenn ráðherra höfðu samband. Hún bíði nú eftir frekari svörum frá þeim. Hún gagnrýnir viðbrögð Vegagerðarinnar harðlega. „Upplýsingagjöfin hefur ekki verið nein. Hún hefur verið hrikaleg og við þurfum að kalla eftir öllum upplýsingum um hvernig staðan er í Landeyjahöfn. Álfsnesið hefur verið að dýpka í höfninni núna síðustu ár og það hefur gengið illa. Skipið er bara ekki með burði til þess að ráða við þessar aðstæður. Af hverju í ósköpunum er ekki búið að rifta þeim samningi fyrir löngu síðan og fengið annað skip til að dýpka? Það er til öflugra skip sem hefur komið hingað frá Belgíu og það skip mun byrja hérna, sem betur fer, í haust. Af hverju er ekki löngu búið að fá það hingað?“ Hún tekur fram að hún hafi fengið þær upplýsingar í gær að Vegagerðin ætli að bæta úr upplýsingagjöf við íbúa. Eiginmaður Þórunnar og sonur þurfa að ferðast til Reykjavíkur á morgun til að sækja tannréttingar fyrir drenginn. „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim. Þeir eru númer 31 á biðlista á föstudagsmorguninn fyrir Herjólf og númer 22 á biðlista föstudagskvöldið. Það er náttúrulega bara vandræði að koma bílum hérna á milli. Þeir komast kannski heim á laugardaginn, hver veit. Fólk er bara í vandræðum með að koma og fara. Svo er fólk að fresta læknisferðum og öðru vegna þess að það treystir sér ekki í þessar löngu siglingar hérna á milli.“ Sextán ár af Landeyjahöfn í rugli og aldrei verið verri Vinsælasta utanvegahlaup landsins, Puffin run, fer fram um helgina í Eyjum og hafa 1.800 hlauparar skráð sig til leiks. Katrín Laufey Rúnarsdóttir, einn skipuleggjanda hlaupsins, segir að hlaupið muni fara fram sama hvað og bindur vonir við að Landeyjahöfn verði opnuð fyrir umferð um helgina. „Þetta er alveg grautfúlt. Maður er eiginlega með mest illt í hjartanu út af öllum fyrirtækjunum hér í Eyjum. Það er ekki bara hlaupið okkar, það er líka gistingin, það eru veitingastaðirnir, allt, þetta er samfélagið. Þetta er alveg gríðarlega mikið tap fyrir alla. Eins og ég segi, þetta er í níunda sinn sem við höldum hlaupið og við höfum hingað til alltaf haldið hlaup sama hvað hefur gengið á í heiminum. Það var faraldur og ég veit ekki hvað og hvað. Við höfum alltaf einhvern veginn sloppið við vesen og við ætlum að trúa því að við séum áfram að fara sleppa við það.“ Hún kveðst vongóð um að góðar aðstæður verði fyrir siglingu í Landeyjahöfn á laugardaginn. „Það er stórstreymt einu sinni í hverjum mánuði og það er á laugardaginn. Það þýðir að ef það væri einhvern tímann möguleiki að fara inn í höfnina þá er það þá. Við erum vongóð um það að ef veðurspáin og ölduspá ganga eftir náum við að sigla eitthvað inn í höfnina föstudagskvöldið og laugardag. Við bara trúum því.“ Ribsafari ætlaði að hlaupa í skarðið og bjóða upp á ferðir til og frá Landeyjahöfn fyrir keppendur um helgina en neyddist til að aflýsa ferðum vegna ófullnægjandi viðgerða. „Það er ekki bara eitthvað eitt heldur alveg slatti,“ segir Katrín. Katrín gagnrýnir viðbrögð stjórnvalda. „Maður er eiginlega alveg orðlaus og ég verð sjaldan orðlaus yfir svona hlutum. Að það skuli ekki vera löngu búið að grípa inn í og gera eitthvað. Við skiljum þetta ekki. Ég held að við þyrftum að fá ráðamenn og alla í Herjólf í sjö tíma siglingu og bara ekki með koju í alvöru. Það held ég að myndi virka. Takið börnin ykkar líka með og komið í dagsferð. Sonur minn tók ferju til að keppa á fimmtudaginn. Hann var kominn um borð klukkan sjö og þurfti að sigla til baka seint um kvöldið. Hann er mjög sjóveikur en lætur sig samt hafa það,“ segir hún og bætir við: „Það er að koma sumar og árið er 2026. Maður trúir ekki að þetta sé bara málið. Það er ótrúlegt að þessi staða sé uppi eftir sextán ár af Landeyjahöfn í rugli og aldrei verið verri. Manni fallast hendur.“
Vestmannaeyjar Herjólfur Hlaup Samgöngur Byggðamál Landeyjahöfn Rangárþing eystra Mest lesið Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Innlent Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Innlent Gunnar Þórðarson er látinn Innlent Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Innlent Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Innlent Mosfellsdalur minnti á vígvöll Innlent Horfðu á bílinn velta niður fjallið Innlent Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Erlent Okkar McCartney, okkar Bach kveður Innlent Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? Innlent Fleiri fréttir Meirihluti ætlar að segja já í ágúst Skilningsleysi mætti litblindum syninum á ReyCup Staðan orðin „þokkalega góð“ Tugir tilkynninga í viku: „Þetta var ekki í fyrsta skipti sem þau voru handtekin“ Okkar McCartney, okkar Bach kveður Vasaþjófar gómaðir á Suðurlandi og minkafár í rénun Fleiri en einn hafi verið að verki Dýralæknafélag Íslands fordæmir skemmdarverk í Dalsbúi Gunnar Þórðarson er látinn Dregur úr ánægju með frammistöðu ríkisstjórnarflokkanna Sex handteknir grunaðir um vasaþjófnað Sætir morðhótunum og óhróðri í vinsælum Facebook-hópi Gabríel Douane og fimm aðrir sýknaðir Heilum gámi af kampavíni stolið af Ölgerðinni Mosfellsdalur minnti á vígvöll Greinir á um leiðir til að draga úr nikótínneyslu ungmenna Gæsluvarðhald samþykkt yfir Ming Ting „Það er búið að slökkva og húsið er ónýtt“ Gripinn á nánast tvöföldum hámarkshraða Skothljóð og minkafár í Mosfellsdal í beinni Eldur logaði í Stykkishólmi Horfðu á bílinn velta niður fjallið Hvað er í boði um verslunarmannahelgina? „Þeir skulu ekki halda það að þeir geti drepið mig“ Slapp vel þegar bíll hennar valt yfir 200 metra niður Bolafjall Hafdís Huld í bæjarstjórastólinn Allir á hlaupum að reyna fanga minka Ráðlagt að hafa garða snyrtilega og stéttir sópaðar þegar fólk er í burtu Veðurspáin að bjarga miðasölu Þjóðhátíðar fyrir horn Segist hafa skipt um skoðun varðandi aðildarviðræðurnar Sjá meira