„Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 21. apríl 2026 15:50 Halla segir að laun hennar séu lægri en laun Ragnars Þórs Ingólfssonar, forvera hennar, voru. Anton Brink/Einar Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, segist þaulvön því að Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, opinberi sterkar skoðanir sínar á störfum VR og henni sem persónu. Hún segir laun forystufólks stéttarfélaga ekki leyndarmál og bendir á að VR birti laun formanns í ársskýrslu, sem Efling geri ekki. Þá segist Halla vera á lægri launum en forveri hennar.
Athygli vakti í gær þegar Sólveig Anna gagnrýndi launahækkun Höllu sem stjórn VR samþykkti fyrir helgi. Hún sagði það skjóta skökku við að góð laun formannsins hækki um tólf prósent þegar langtímakjarasamningar eru í mikilli hættu á að falla úr gildi. Í aðsendri grein á Vísi í dag segir Sólveig Anna breytinguna á skjön við lög ASÍ. „Það er algjörlega óásættanlegt fyrir félagsfólk Eflingar að hluti þess fjár, sem ætlað er að reka sambandið og verja hagsmuni allra sem tilheyra aðildarfélögunum, sé notaður til að niðurgreiða laun eins formanns í öðru félagi,“ skrifar Sólveig Anna. Allt á einn veg Halla bregst við gagnrýni Sólveigar Önnu í Facebook-færslu þar sem hún segir hana ekki koma mér á óvart. Sólveig Anna hafi haft sterkar skoðanir á á mörgu sem varði VR og hana sem persónu. „Ég er ítrekað spurð um hvað þetta sé „á milli ykkar“, en staðreyndin er sú að það er nákvæmlega ekkert á milli okkar. Þetta er allt á einn veg. Ég hef ekki tölu á þeim Facebook-færslum og fjölmiðlaviðtölum Sólveigar Önnu sem hafa fjallað um mig eða á þeim orðum sem hún hefur notað um mig. Hún hefur skammast yfir því hvað ég segi, yfir því hvað ég segi ekki, yfir því hvað hún segir að ég hafi einhvern tímann sagt (og það er iðulega farið ranglega með) og yfir þeim sjónarmiðum, jafnvel hvötum, sem hún gerir mér upp,“ skrifar Halla. Þá segir hún að Sólveig Anna hafi ítrekað kvartað yfir því að hún sé yfirleitt kölluð til álits í fjölmiðlum og reynt að fá þá til að hætta að ræða við sig og tala frekar við hana. „Í grunninn vill hún ekki að ég sem formaður VR tjái mig og tali máli félagsfólks. Eitt skýrasta dæmið um þetta eru ítrekaðar athugasemdir hennar við að ég hafi nálgast umræðu um þjónustuskerðingar og gjaldskrárhækkanir á leikskólum út frá vinnandi foreldrum, sem eru félagsfólk í VR, en ekki út frá þeim hluta félagsfólks Eflingar sem starfar á leikskóla og er samþykkt nálgun formannsins í málaflokknum.“ Laun síðasta formanns hærri „Mér líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli. Ef ég tjái mig er líklegt að næsta frétt á eftir verði upp úr einhverjum Facebook-orðaflaumi Sólveigar Önnu. Ég hef almennt haft þá afstöðu að svara ekki. Ég tel það ekki gagnast VR og alls ekki verkalýðshreyfingunni í heild sinni,“ skrifar Halla. Hún segir takmörk fyrir því hversu mikið þvaður sé hægt að láta viðgangast án þess að svara. „Um launamál í VR er það að segja að launanefnd og stjórn VR hafa verið að koma á gagnsæi er varðar heildarkjör formanns félagsins. Þau voru ógagnsæ og óþarfur hvati til að gegna mörgum embættum, óháð því hvað þjónar hagsmunum félagsins best hverju sinni.“ Hún segir að eftir ákvörðun stjórnar, sem hún hefði ekki aðkomu að, séu heildarlaun fyrir störf formanns VR 1.913.000 krónur, en voru áður 1.724.064 krónur. Hennar laun séu lægri en laun forvera hennar og að heildarlaun hans væru í dag 2.119.924, „auk einhvers konar starfslokaréttinda sem ekki var hægt að réttlæta og voru afnumin.“ Laun formanns VR séu ýmist lægri eða hærri en laun annars forystufólks í verkalýðshreyfingunni. „Það hvort aðrar launagreiðslur gangi til VR eða komi til frádráttar frá mínum launum er útfærsluatriði sem hefur ekkert með Eflingu eða Sólveigu Önnu að gera. Það hefur heldur engin áhrif á ASÍ, öfugt við það sem hún heldur fram. “ Þetta eigi við um þau laun sem hún hafi fengið fyrir að gegna embætti varaforseta ASÍ en þær gegna báðar því embætti. Í því starfi felist að sitja tvo fundi í mánuði á hefðbundnum vinnutíma og þeir taka að jafnaði á milli 15 og 45 mínútur. „Fyrir það fáum við varaforsetar 243.900 kr. á mánuði sem er nú hluti af heildarkjörum mínum fyrir að gegna formennsku í VR. Fjölgun varaforseta var einmitt eitt af keppikeflum Sólveigar Önnu fyrir nokkrum árum, en þeir hafa þó ekkert lagalegt hlutverk innan ASÍ annað en að gegna í forföllum forseta.“ Halla segir laun fyrir störf forystufólks í stéttarfélögum hápólitískt mál og jákvætt að stjórn VR tryggi gagnsæi í þeim efnum. „Þetta ætti að vera til eftirbreytni fyrir önnur félög, frekar en fóður í upphrópanir á samfélagsmiðlum. Laun formanns VR eru svo sannarlega ekki leyndarmál, þau eru birt í ársskýrslu félagsins. Það sama á ekki við um Eflingu. Þessi umræða af hálfu formanns Eflingar snýst hins vegar ekki um ákvarðanir stjórnar VR heldur persónulega herferð hennar gegn félaginu og mér sem persónu. Rætur þessarar þráhyggju liggja í því að hún hefur viljað að önnur félög innan ASÍ setji hagsmuni síns eigin félagsfólks til hliðar og heyi heldur kjarabaráttu á forsendum sem þóknast hagsmunum Sólveigar Önnu.“ Halla bendir á að hún sé kjörin til að gæta hagsmuna félaga VR og muni halda því áfram af einurð. „Ég mun hvorki standa né sitja, þegja né tala, eftir því sem þóknast Sólveigu Önnu.“
Stéttarfélög Kjaramál Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Sjá meira