Viðskipti innlent

Eim­skip á­kært vegna sölu tveggja skipa

Eiður Þór Árnason skrifar
Hafnaraðstaða Eimskips við Klettagarða.
Hafnaraðstaða Eimskips við Klettagarða. Vísir/Vilhelm

Héraðssaksóknari hefur ákært félögin Eimskipafélag Íslands hf. og Eimskip Ísland ehf. vegna sölu á tveimur skipum sem Umhverfisstofnun kærði til héraðssaksóknara árið 2020. Skipaflutningafélagið var kært vegna meintra brota á lögum um meðhöndlun úrgangs.

Héraðssaksóknari fer fram á að félögin verði dæmd til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar. Á sama tíma hefur embættið fellt niður rannsókn á Hilmari Pétri Valgarðssyni, framkvæmdastjóra rekstrarsviðs Eimskips, í tengslum við sama mál.

Þetta kemur fram í tilkynningu Eimskips til Kauphallar og er félagið sagt hafa fengið upplýsingar um þetta í dag. Hilmar hafi því ekki lengur réttarstöðu sakbornings. 

Stjórnendur Eimskips telja félagið hafa fylgt lögum og reglum við sölu skipanna. Fullyrt er að þau hafi verið seld til áframhaldandi rekstrar en ekki til endurvinnslu.

Málið má rekja til sölu skipanna Laxfoss og Goðafoss. Umhverfisstofnun kærði Eimskip eftir að fréttaskýringaþátturinn Kveikur fjallaði um örlög skipanna eftir að þau voru seld. Þar kom fram að skipin hafi endað í skipaendurvinnslustöðvum á Indlandi við einn stærsta skipakirkjugarð heims.

Í umfjöllun Kveiks hélt forsvarmaður Shipbreaking Foundation, samtaka sem berjast fyrir því að tryggt sé að skipum sé fargað á öruggan og umhverfisvænan hátt, því fram að Eimskip hafi brotið evrópska úrgangslöggjöf þegar skipin voru seld, til fyrirtækis að nafni GMS.

Félagið baðst í kjölfarið afsökunar á því að ekki hafi verið gert „ríkari kröfur“ til kaupanda skipanna tveggja.

Fréttin er í vinnslu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×