Viðskipti innlent

Bein út­sending: Kynna yfir­lýsingu fjár­málastöðug­leika­nefndar

Atli Ísleifsson skrifar
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.
Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri. Vísir/Lýður

Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans mun kynna og gera grein fyrir yfirlýsingu sinni á blaðamannafundi sem hefst klukkan 9:30. Yfirlýsingin var birt í morgun en hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi.

Kynningin á fundinum verður í höndum Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra, Tómasar Brynjólfssonar varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika og Flóka Halldórssonar framkvæmdastjóra fjármálastöðugleikasviðs Seðlabankans.

Hægt verður að fylgjast með fundinum í spilaranum að neðan.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×