Um 36 prósent foreldra í Reykjavík hafa stytt dvalartíma Lovísa Arnardóttir skrifar 30. mars 2026 14:40 Foreldrar hafa margir stytt dag barna sinna. Vísir/Anton Brink Um 36 prósent foreldra hafa stytt skráðan vistunartíma barna sinna fyrir innleiðingu Leikskólaleiðarinnar í Reykjavík 1. apríl næstkomandi. Mun færri foreldrar skrá börn sín í 40 klukkustunda vistun á viku en áður.
Breytingar á gjaldskrá voru kynntar í febrúar og taka gildi 1. apríl, á miðvikudag. Breytingarnar hafa fengið heitið Leikskólaleiðin í Reykjavík. Meðal breytinga er að boðið er upp á 36 tíma gjaldfrjálsa vistun, hóflegt gjald fyrir 38 tíma vistun, og aukinn afslátt fyrir einstæða foreldra og tekjulágar fjölskyldur. Áfram er hægt að skrá börn í allt að 42,5 stunda vistun. „Það eru mjög miklar breytingar í gangi. Hjá okkur hafa um tveir þriðju foreldra þegar breytt vistunartíma hjá börnum sínum. Langflestir eru að stytta daginn og við sjáum strax að það mun létta á föstudögum, sérstaklega eftir klukkan þrjú. Við erum að púsla tímunum saman en við erum mjög bjartsýn og þetta lítur vel út við fyrstu sýn,“ segir Ragna Kristín Gunnarsdóttir, leikskólastjóri í Vogabyggð, í tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Hér má sjá breytingu á dvalartíma barna í leikskólum í Reykjavík frá október og þar til í mars. Reykjavíkurborg Þar kemur fram að hlutfall foreldra með skráðan vistunartíma 36 klukkustundir á viku eða færri hafi hækkað frá október úr níu prósentum í 24 prósent í lok mars. Þá hafi börnum með 38 stunda vistun eða minna fjölgað úr tíu prósentum í 23 prósent og börnum með 38 stunda vistun eða minna einnig fjölgað úr 10 prósentum í 23 prósent á sama tímabili. Tæpur helmingur með 38 stunda vistun eða minna Samtals eru því 47 prósent barna með skráðan vistunartíma sem er 38 stundir eða skemur, samanborið við 19 prósent í byrjun október. Á sama tíma hefur vistun umfram 38 stundir dregist verulega saman, eða um 28 prósentustig. Í október voru 81 prósent barna skráð með yfir 38 stundir en nú eru þau 53 prósent. Ragna Kristín segir fólk líka stytta á morgnana og þar myndist ákveðinn sveigjanleiki. „Sumum finnst gott að fá að sofa út og þetta sýnir að við höfum kannski verið dálítið föst í þeirri hugmynd að allir vilji byrja snemma. Þetta fer einfaldlega eftir starfsmannahópnum hverju sinni.“ Gott samstarf við foreldra Samstarfið við foreldra hefur, að sögn Rögnu, verið einstaklega gott og mikilvægt í ferlinu. „Foreldrar hafa tekið þessu ótrúlega vel og við finnum að þau vilja hjálpa okkur í gegnum breytingarnar. Það er frábært að finna þessa samstöðu og að foreldrar séu með okkur í liði,“ segir hún. „Auðvitað eru einhverjir sem hafa ekki möguleika á þessum sveigjanleika, það er fullkomlega skiljanlegt og mikilvægt að þau geti fengið þá þjónustu sem þau þurfa,“ segir Ragna Kristín að lokum.
Skóla- og menntamál Leikskólar Reykjavík Börn og uppeldi Mest lesið Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Margaret Hamilton er látin Erlent Fleiri fréttir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Ögurstund rennur upp Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik Sjá meira