Raunir íslenska pylsusalans Andri Reyr Haraldsson skrifar 26. mars 2026 13:30 Í upphafi vikunnar steig enn einn einsöngvarinn úr grátkór Samtaka atvinnulífsins á svið og söng af lífsins list í Morgunblaðinu um þær hörmungar sem hlotist hafa launahækkunum í samfélaginu. Að þessu sinni var einsöngvarinn pylsusali sem makað hefur krókinn á því að selja þjóðarréttinn í miðbænum. Pylsan hans hefur hækkað um 19% síðustu tvö árin sem er um það bil tvöföld hækkun á við umsamdar launahækkanir sem samið var um á almennum vinnumarkaði 2024. Það var einmitt þá sem launafólk reið á vaðið og lagði lóð sín á vogaskálar baráttunnar gegn háum vöxtum og verðbólgu. Samið var um mjög hófsamar hækkanir og línurnar sem lagðar voru fyrir fyrirtækin og hið opinbera voru skýrar. Allir þyrftu að leggjast á eitt. Á vef verðlagseftirlits ASÍ kemur hins vegar fram að kjötsalar á borð við Goða og SS, hvar vænta má að pylsusalinn sem rekur á annan tug pylsustanda kaupi hráefnið sitt, hafi hækkað verðið um 15,36% og 10,5% frá undirritun kjarasamninga. Yfir því virðist pylsusalinn ekki sjá ofsjónum. Í fréttinni kemur fram að hagnaður af pylsusölunni slefi ekki upp í nema 10% að jafnaði. Flestum fyrirtækjarekendum þætti það dágóð afkoma á tímum þar sem verkefni atvinnulífsins var að ganga í takt við launafólk; axla ábyrgð og berjast gegn verðbólgu samfélaginu til heilla. Í öðrum löndum þætti það raunar frábær afkoma í fyrirtækjarekstri. Í fréttinni kemur einnig fram að launakostnaður pylsusalans sé um 50% útgjaldanna. Það þarf ekki langskólagengna stærðfræðinga til að reikna út að ábyrgðinni af 19% verðhækkun pylsunnar verður ekki skellt á umsamdar launahækkanir. „Launakostnaðurinn er farinn úr böndunum í samfélaginu,“ syngur hann samt og undir spila Samtök atvinnulífsins, sem brugðist hafa fullkomlega því samfélagslega hlutverki sínu við þessar aðstæður að vinna gegn verðbólgu. Ef pylsusalinn heldur áfram að hækka verðið langt umfram launahækkanir og verðlag, til að viðhalda myljandi hagnaði sínum, gæti styst í þann tímapunkt að raðirnar við pylsuvagnana hverfa. Þegar kólnar í pylsupottinum verður gott að geta kennt launafólki um ófarirnar. Það væri sennilega til of mikils mælst að fyrirtækjaeigendur myndu líta sér nær. Höfundur er formaður Félags íslenskra rafvirkja (FÍR) og varaformaður Rafiðnaðarsambands Íslands (RSÍ). Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kjaramál Efnahagsmál Neytendur Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Í upphafi vikunnar steig enn einn einsöngvarinn úr grátkór Samtaka atvinnulífsins á svið og söng af lífsins list í Morgunblaðinu um þær hörmungar sem hlotist hafa launahækkunum í samfélaginu. Að þessu sinni var einsöngvarinn pylsusali sem makað hefur krókinn á því að selja þjóðarréttinn í miðbænum. Pylsan hans hefur hækkað um 19% síðustu tvö árin sem er um það bil tvöföld hækkun á við umsamdar launahækkanir sem samið var um á almennum vinnumarkaði 2024. Það var einmitt þá sem launafólk reið á vaðið og lagði lóð sín á vogaskálar baráttunnar gegn háum vöxtum og verðbólgu. Samið var um mjög hófsamar hækkanir og línurnar sem lagðar voru fyrir fyrirtækin og hið opinbera voru skýrar. Allir þyrftu að leggjast á eitt. Á vef verðlagseftirlits ASÍ kemur hins vegar fram að kjötsalar á borð við Goða og SS, hvar vænta má að pylsusalinn sem rekur á annan tug pylsustanda kaupi hráefnið sitt, hafi hækkað verðið um 15,36% og 10,5% frá undirritun kjarasamninga. Yfir því virðist pylsusalinn ekki sjá ofsjónum. Í fréttinni kemur fram að hagnaður af pylsusölunni slefi ekki upp í nema 10% að jafnaði. Flestum fyrirtækjarekendum þætti það dágóð afkoma á tímum þar sem verkefni atvinnulífsins var að ganga í takt við launafólk; axla ábyrgð og berjast gegn verðbólgu samfélaginu til heilla. Í öðrum löndum þætti það raunar frábær afkoma í fyrirtækjarekstri. Í fréttinni kemur einnig fram að launakostnaður pylsusalans sé um 50% útgjaldanna. Það þarf ekki langskólagengna stærðfræðinga til að reikna út að ábyrgðinni af 19% verðhækkun pylsunnar verður ekki skellt á umsamdar launahækkanir. „Launakostnaðurinn er farinn úr böndunum í samfélaginu,“ syngur hann samt og undir spila Samtök atvinnulífsins, sem brugðist hafa fullkomlega því samfélagslega hlutverki sínu við þessar aðstæður að vinna gegn verðbólgu. Ef pylsusalinn heldur áfram að hækka verðið langt umfram launahækkanir og verðlag, til að viðhalda myljandi hagnaði sínum, gæti styst í þann tímapunkt að raðirnar við pylsuvagnana hverfa. Þegar kólnar í pylsupottinum verður gott að geta kennt launafólki um ófarirnar. Það væri sennilega til of mikils mælst að fyrirtækjaeigendur myndu líta sér nær. Höfundur er formaður Félags íslenskra rafvirkja (FÍR) og varaformaður Rafiðnaðarsambands Íslands (RSÍ).
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun