Viðskipti innlent

Lyfjaver opnar nýtt apó­tek í Klíníkinni

Lovísa Arnardóttir skrifar
Apótekið er í Klíníkinni.
Apótekið er í Klíníkinni. Aðsend

Lyfjaver hefur opnað nýtt apótek í Klíníkinni við Ármúla 7–9. Þetta er fyrsta útibú fyrirtækisins frá því að apótek Lyfjavers við Suðurlandsbraut var opnað árið 2002.

Í tilkynningu segir að í apótekinu verði lögð sérstök áhersla á þjónustu við starfsfólk Klíníkurinnar og skjólstæðinga hennar. Markmiðið sé að bæta aðgengi að lyfjum sem tengjast skurðaðgerðum og meðferðum, auk þess sem boðið verður upp á fjölbreytt úrval hjúkrunarvara sem nýtast fólki bæði fyrir og eftir aðgerðir. 

„Með opnun apóteksins i Klíníkinni í Ármúla erum við að færa þjónustu okkar enn nær fólki á þeim tímapunkti þegar hún skiptir mestu máli. Lyfjaver var efst í íslensku ánægjuvoginni í flokki apóteka og í gegnum árin hefur fyrirtækið verið með lægsta meðalverðið á lyfjum og öðrum vörum. Markmið okkar er að veita skjólstæðingum og starfsfólki Klíníkurinnar og öllum viðskiptavinum sem eiga leið um Ármúlann, góða þjónustu á frábæru verði,“ segir Hákon Steinsson, framkvæmdastjóri Lyfjavers, í tilkynningu. 

Hákon, Guðbjörg, Agnes og Kristján í nýja apótekinu. Aðsend

Í tilkynningu segir að einnig verði boðið upp á almenna apóteksþjónustu með lyfseðilsskyld lyf, lausasölulyf, bætiefni og aðrar algengar vörur á samkeppnishæfu verði.

„Klíníkin er í örum vexti og opnun apóteks Lyfjavers í húsinu er liður í að efla þjónustu við skjólstæðinga okkar og hlökkum við til samstarfsins,“ segir Kristján Jón Jónatansson, framkvæmdastjóri Klíníkurinnar, í tilkynningu. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×