Þungar refsingar undir í máli sem fer enn einn hringinn Árni Sæberg skrifar 11. mars 2026 17:03 Sigríður J. Friðjónsdóttir er ríkissaksóknari. Vísir/Vilhelm Ríkissaksóknari segir ómögulegt að segja til um það hversu lengi þarf að bíða eftir niðurstöðu Landsréttar í hryðjuverkamálinu svokallaða, sem Hæstiréttur sendi aftur til Landsréttar til löglegrar meðferðar í dag. Sakborningarnir tveir voru fyrst handteknir fyrir þremur og hálfu ári. Þá segir hann erfitt að setja fram kröfu um þyngd refsingar, þar sem ekkert fordæmi sé fyrir ákæru fyrir hryðjuverk hér á landi. Hryðjuverk varða allt að ævilöngu fangelsi.
Hæstiréttur ómerkti í dag sýknudóm þeirra Sindra Snæs Birgissonar og Ísidórs Nathanssonar í hryðjuverkamálinu svokallaða og vísaði málinu aftur til Landsréttar til meðferðar. Óhjákvæmilegt að senda málið til baka Dómur þess efnis var kveðinn upp klukkan 14 og hann má lesa hér. Í stuttu máli taldi Hæstiréttur að ágallar hefðu verið á túlkun Landsréttar á sönnunarkröfum almennra hegningarlaga svo og á aðferð við sönnunarmat og samningu hins áfrýjaða dóms sem voru til þess fallnir að hafa veruleg áhrif á niðurstöðu málsins. Þar sem Hæstiréttur gæti ekki endurmetið niðurstöðu hins áfrýjaða dóms um sönnunargildi munnlegs framburðar hafi verið óhjákvæmilegt vegna framangreindra annmarka að ómerkja hinn áfrýjaða dóm í heild sinni og vísa málinu aftur til Landsréttar til löglegrar meðferðar og dómsálagningar á ný. Allar leiðir jafnfærar Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari ræddi málið við Vísi strax að dómsuppkvaðningu lokinni. Hún sagði að niðurstaðan hafi ekki endilega komið á óvart, hún hafi fyrir fram talið allar þrjár mögulegar niðurstöður jafnlíklegar. Verjendur sakborninganna hafa aftur á móti sagt ómerkingardóm hafa komið verulega á óvart. „Það mátti búast alveg eins við þessu eins og það yrði sakfellt eða þá bara staðfest sýknan. Það voru þrjár leiðir sem Hæstiréttur gat farið en þetta var náttúrulega svona ein leiðin sem ákæruvaldið taldi að væri kannski rétt, þar sem það voru gallar á sönnunarmati Landsréttar, sérstaklega hvað viðvikur þá framburð ákærðu og þá með hliðsjón af öllum öðrum gögnum málsins. Það er jú talið að þeir hafi þannig séð gerst sekir um þá háttsemi sem lýst er en ekki að þetta félli undir hryðjuverkaákvæðið.“ Enginn afsláttur gefinn á málsmeðferð Sigríður segir að framundan sé málsmeðferð frá grunni í Landsrétti, enginn afsláttur sé gefinn á því. Sindri Snær og Ísidór voru handteknir árið 2022, ákærðir árið 2023, ákærunni vísað frá, þeir ákærðir á ný sama ár, sýknaðir í héraði árið 2024, aftur í Landsrétti í fyrra og nú hefur sá dómur verið ómerktur. Hversu lengi getum við búist við að þetta mál haldi lengi áfram í dómskerfinu? „Nú get ég ekki svarað, við stýrum því nú ekki fullkomlega hérna í ákæruvaldinu. Dómsvaldið er að sjálfsögðu að reyna að hraða þessu eins og öðrum málum. Þetta er náttúrulega búið að taka nokkurn tíma vegna þess að þetta hefur farið nokkra hringi, skulum við segja, í dómskerfinu. En það ætti nú ekki að taka langan tíma að koma því aftur á dagskrá Landsréttar og síðan er bara að sjá hver niðurstaðan verður þar og hvort enn frekara framhald verður á málinu.“ Tólf ár fyrir sambærileg mál í Svíþjóð Ákæruvaldið fer fram á það að Sindri Snær og Ísidór verði dæmdir til refsingar fyrir tilraun til hryðjuverka og hlutdeild í tilrauninni. Sigríður segir erfitt að gera nákvæmar kröfur í þeim efnum. „Það hefur aldrei verið ákært eða sakfellt fyrir hryðjuverkamálið en það varðar þyngstu refsingu sem hægt, ævilangt fangelsi í rauninni, og þá sextán ára refsiramma varðandi tímabundið fangelsi. Þannig að auðvitað er þarna verið að tala um þungar refsingar og ef við berum okkur saman við Danmörku. Þar hafa verið svona tilraunabrot, þetta er tilraunabrot sem er ákært fyrir hér, þar sem hefur verið sakfellt fyrir og menn hafa fengið margra ára fangelsi. Upp í 12 ár eða jafnvel meira. Þannig að það er kannski eitthvað viðmið.“
Grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Dómsmál Hryðjuverkastarfsemi Mest lesið Skildu skriðdrekana eftir á víglínunni Erlent „Varð að martröð“ Innlent Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Innlent „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Innlent Farþegi Norrænu greindist með annað afbrigði hantaveiru Erlent Bandarískur ellilífeyrisþegi býður vegfarendum tugi milljóna Erlent Loftárásir skekja vopnahlé í Líbanon Erlent Maður varð fyrir flugvél á flugbraut og lést Erlent Yfirmaður WHO hughreystir Tenerife-búa Erlent Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Innlent Fleiri fréttir „Varð að martröð“ Hrósar olíufélögunum fyrir viðbrögð sín Keyrði niður ljósastaur á Vesturlandsvegi Labbaði 57 kílómetra heim úr vinnunni: „Af hverju bý ég ekki nær“ Fólki yfir fimmtugt síður boðið í atvinnuviðtöl Starfsemi gæti hafist í nýjum Listaháskóla innan fjögurra ára Þriðja viljayfirlýsingin frá árinu 2007 undirrituð „Þetta er náttúrulega algjörlega fáránlegt“ Oddviti Samfylkingar bregst við færslum borgarstjóra Flugi aflýst vegna áhafnarskorts í annað sinn í vikunni Maðurinn handtekinn og fluttur til Reykjavíkur í nótt „Sá gamli er miklu fallegri“ Bjó sér til vopn með því að setja steinhellu í sokk Sérsveitaraðgerð í Vestmannaeyjum Fær ár fyrir hvora flösku af amfetabínbasa Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Drógu aflvana fiskibát í land „Beinlínis gengið í skrokk á fólki“ Myndskeiðið byggi á „netmemi og tölvuleikjamenningu“ „Auðvitað hef ég íhugað það“ Borgarstjóri í beinni um umdeildar kortafærslur Engin bið eftir plássi á meðferðarheimilum ungmenna Endurgreiddi eftir að fjölmiðlar spurðu út í innkaupakortið Lögregla sögð vilja koma höggi á blaðamenn Gagnrýna myndband Miðflokksins: „Þetta er bara Sovét-Ísland í dag“ Ótrúlegt kjörtímabil að baki á Vopnafirði Formaður Heimssýnar varar við ofbeldi gangi Ísland í ESB Stykkishólmur verður að vera annað og meira en svefnpláss Mikil tímamót fyrir Víkinga, byrja á bílastæðum „Ég kýs ekki þau sem vilja rífa höll barnanna“ Sjá meira