Íhuga að fara inn í Íran til að ná í auðgað úran Hólmfríður Gísladóttir skrifar 11. mars 2026 06:51 Þegar hafa verið gerðar árásir á vinnslustöðina í Natanz. Getty/Vantor Bandaríkjastjórn er sögð gæla við þá hugmynd að senda sérsveitir til Íran til að tryggja og sækja birgðir landsins af auðguðu úrani, sem sagðar eru duga til að búa til tíu kjarnaodda.
Um er að ræða 440 kíló en samkvæmt Alþjóðakjarnorkumálastofnuninni (IAEA) er um það bil helmingur geymdur í göngum djúpt undir kjarnorkumiðstöðinni fyrir utan borgina Isfahan. Þá er auðgað úran einnig varðveitt í annarri miðstöð í Natanz, sem vestrænir sérfræðingar kalla Haka (e. Pickaxe Mountain). Íran Fregnir hafa borist af því að yfirvöld í Bandaríkjunum og Ísrael hafi rætt hvernig tryggja megi úranið, sem hlýtur óhjákvæmilega að vera liður í því að koma í veg fyrir að Íranir eignist kjarnavopn. Sérfræðingum ber hins vegar saman um að það yrði afar erfitt og áhættusamt. Úranið er talið vera geymt í tönkum á stærð við kúta sem notaðir eru við köfun. Bandaríkjamenn eru sagðir hafa þróað búnað til að varðveita og flytja úranið en að sækja það myndi fela í sér umfangsmikla aðgerðir, þar sem senda þyrfti að minnsta kosti tvo hópa sérfræðinga og sérsveitarmanna inn í landið. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur ekki útilokað aðgerðir af þessu tagi en sagt að þær þyrftu að eiga sér stað seinna, þegar búið væri að útiloka að Íranir gætu sýnt teljandi mótspyrnu. Demókratar og fleiri hafa gagnrýnt að ekki hafi verið búið að útfæra aðgerðir til að ná í úranið áður en árásir voru hafnar á Íran.
Íran Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Kjarnorka Mest lesið Alls leituðu tvö hundruð manns í sex sólarhringa Innlent Foreldrar kaupi efnið fyrir börn sín og jafnvel vini þeirra Innlent Segir fólki á ósamþykktum peptíðum að hætta strax Innlent Eiginkonan hvarf til Rússlands skömmu eftir giftingu Innlent „Hann heitir bara Leó páfi held ég“ Innlent Hafa reist leikskóla á sex mánuðum fyrir helming kostnaðarins Innlent „Þetta er bara sanngirnismál“ Innlent Gullgrafaraæði magnast upp í tengslum við sólmyrkvann Innlent Kosningaspá Vísis: Berjast hart um þriðja fulltrúann Innlent Sigmar Ó. Maríusson er látinn Innlent Fleiri fréttir Bandaríski sjóherinn vildi taka skip á leigu og gera út til Grænlands Minnst einn lést þegar keyrt var inn í mannfjölda í Leipzig Líkja forseta Taívan við rottu vegna Afríkuferðar Saka borgina um að víkja sér undan ábyrgð Segjast hafa skotið á bandarískt herskip Giuliani á sjúkrahúsi í alvarlegu ástandi Japanir mótmæla fyrirhuguðum breytingum á stjórnarskránni Boðar „frelsisaðgerðir“ til að koma skipum um sundið Þrír taldir hafa látist vegna hantaveirusmits Talinn hafa stungið þann þriðja fyrr um daginn Útilokar ekki frekari hernaðaraðgerðir eða að fleiri hermenn fari heim Æðsti yfirmaður NASA: „Fylgjandi því að gera Plútó aftur að reikistjörnu“ Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Leist ekki á tillögu um opnun Hormússunds Segir Nato nú reyna að skilja ákvörðun um að afturkalla herafla Segir stríðsrekstri lokið og smeygir sér framhjá reglum Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Ákærður fyrir að hafa stungið tvo gyðinga Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Vilja nú alþjóðlegt samstarf um Hormússund Ekkert fararsnið á Rússum í Malí Mamdani vill að Bretar skili Koh-i-Noor Bútaði líkið í sundur í uppblásinni sundlaug Trump segist vera að íhuga að draga saman seglin í Þýskalandi Áttu langt símtal Repúblikanar vinna orrustu í kjördæmastríðinu Byltingarvörðurinn herðir tökin á stjórnartaumunum Einn handtekinn grunaður um stunguárás gegn gyðingum Íslenskir jöklar töpuðu mestu í Evrópu Sjá meira