Kjarnorka
1 2 3 4 5 … 5 ›
Ný skýrsla: Bandaríkjunum mistókst að eyðileggja kjarnorkumannvirki Írana Árásir Bandaríkjahers á þrjú kjarnorkumannvirki í Íran eyðilögðu ekki lykilinnviði kjarnorkuáætlunar landsins og seinkaði líklega áætlunum Írana aðeins um nokkra mánuði, samkvæmt frummati bandarísku leyniþjónustunnar. Ráðamenn í Hvíta húsinu segjast ósammála matinu. Erlent 24.6.2025 19:52
Segja aftur ráðist á neðanjarðarauðgunarstöð í Íran Sprengjum var aftur varpað á neðanjarðarauðgunarstöð í Fordó í Íran í dag, að sögn íranska ríkisútvarpsins. Stöðin er ein þriggja sem Bandaríkjamenn réðust á með risasprengjum sem eru hannaðar gegn neðanjarðarbyrgjum. Erlent 23.6.2025 09:48
Kjarnavopnvædd klerkastjórn sé ógn við Norðurlönd Utanríkisráðherra segir lykilatriði að halda uppi þrýstingi á klerkastjórnina í Íran að hún hörfi frá því að auðga úran til framleiðslu kjarnavopna. Hún segir hættu steðja að Norðurlöndum og Vestur-Evrópu komi Íranar sér upp slíku vopni en undirstrikar mikilvægi þess að gleyma ekki Úkraínu í látunum. Innlent 22.6.2025 20:24
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Bandaríski herinn gerði árásir á þrjár kjarnorkurannsóknarstöðvar í Íran í gærkvöldi. Forseti Bandaríkjanna sagði á blaðamannafundi að rannsóknarstöðvarnar hafi gereyðilagst í árásunum en íranskir embættismenn segja að svo sé ekki. Þeir hafa svarað fyrir sig með árás á Ísrael. Ákvörðunin hefur vakið upp mismunandi viðbrögð meðal embættismanna víða um heim. Erlent 22.6.2025 08:14
Fimmtán Íslendingar vilja komast heim Hópur Íslendinga hefur óskað eftir aðstoð stjórnvalda við að komast frá Íran og Ísrael. Bandaríkjaforseti gefur óljós svör um hvort hann blandi sér í deiluna. Innlent 18.6.2025 19:01
Vesturlönd þurfa að borga milljarðatjón af árás Rússa á Tsjernobyl Líklegast er talið að vestræn ríki þurfi að bera milljarða króna kostnaðinn vegna skemmda sem urðu á steinhvelfingu utan um Tsjernobyl-kjarnorkuverið í Úkraínu við drónaárás Rússa í vetur. Erlent 7.5.2025 15:59
Ekki nein þörf á notkun kjarnorkuvopna og vonar að svo verði ekki Vladímír Pútín Rússlandsforseti segir Rússa ekki hafa þurft að nota kjarnorkuvopn í Úkraínu og vonast hann til þess að þeirra verði ekki þörf. Hann telur styrk rússneska hersins nægilega mikinn til að leiða átökin „rökrétt“ til lykta. Erlent 4.5.2025 11:04
Fundi Bandaríkjanna og Íran lýst sem „uppbyggilegum“ Fundur fulltrúa Bandaríkjana og fulltrúa Íran í Óman um kjarnorkuvopn var lýst sem „uppbyggilegum.“ Annar fundur hefur verið boðaður eftir viku. Erlent 12.4.2025 23:36
Ítrekar ósk Pólverja um bandarísk kjarnavopn Andrzej Duda, forseti Póllands, hefur ítrekað vilja pólskra stjórnvalda til að heimila Bandaríkjamönnum að koma upp kjarnavopnum í landinu. Erlent 14.3.2025 10:06
Íhugar að bjóða fram fælingarmátt kjarnorkuvopnabúrsins Emmanuel Macron Frakklandsforseti segir þjóð sína verða að átta sig á sérstakri stöðu sinni þar sem hún búi bæði yfir kjarnorkuvopnum og skilvirkasta og best vígbúna her Evrópu. Erlent 5.3.2025 22:29
Sprengjudróni flaug á steinhvelfingu Tsjernobyl-versins Skemmdir urðu á steinhvelfingu utan um Tsjernobyl-kjarnorkuverið í Úkraínu og eldur kviknaði eftir að dróni flaug á hana í nótt. Forseti Úkraínu fullyrðir að dróninn hafi verið rússneskur og að hann hafi verið öflugan sprengiodd. Erlent 14.2.2025 08:51
Vill draga úr útgjöldum til varnarmála með nýjum kjarnorkuvopnasamningum Donald Trump Bandaríkjaforseti segist vilja hefja viðræður við Rússa og Kínverja um nýjan kjarnorkuvopnasamning, í þeirri von um að ríkin gætu í framhaldinu skorið niður um helming í varnarmálum. Erlent 14.2.2025 06:38
Eftirlifendur fá friðarverðlaun Sjaldan hafa friðarverðlaun Nóbels verið jafn verðskulduð og í dag, þegar Nihon Hidankyō veita þeim viðtöku fyrir baráttu sína fyrir kjarnavopnalausum heimi. Friðarverðlaunin eru sérstaklega mikilvæg nú á tímum þar sem við höfum upplifað fordæmalausar hótanir um beitingu kjarnavopna. Skoðun 10.12.2024 12:32
„Dögun þriðju kjarnorkualdarinnar er í vændum“ Æðsti hernaðarleiðtogi Bretlands segir heiminn hafa breyst og að hann sé flóknari. Þá segir hann að þriðja kjarnorkuöldin sé að hefjast og að hún yrði mun flóknari en þær fyrri. Erlent 5.12.2024 23:53
Íranir hóta því að koma sér upp kjarnorkuvopnum Seyed Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Íran, segir hætt við því að stjórnvöld muni íhuga að einbeita sér að því að eignast kjarnorkuvopn ef Vesturlönd standi við þá hótun sína að taka aftur upp allsherjarþvinganir gegn landinu. Erlent 28.11.2024 06:56
Verðugir verðlaunahafar Í liðinni viku var tilkynnt að friðarverðlaun Nóbels fyrir árið 2024 færu til Nioh Hidankyo, samtaka eftirlifenda kjarnorkuárásanna á Hírósíma og Nagasakí. Samtök þessi voru stofnuð árið 1956 í tvíþættum tilgangi. Skoðun 13.10.2024 12:01
Eftirlifendur kjarnorkusprengjanna hlutu friðarverðlaun Nóbels Japönsku samtökin Nihon Hidankyo sem voru stofnuð af eftirlifendum kjarnorkuárásanna á Hiroshima og Nagasaki hljóta friðarverðlaun Nóbels í ár. Verðlaunin fá þau fyrir baráttu sína fyrir kjarnorkuvopnalausum heimi og fyrir að sýna með eigin vitnisburði hvers vegna aldrei megi beita kjarnavopnum aftur. Erlent 11.10.2024 09:05
Segja yfirburði Bandaríkjanna ógn við stöðugleika í heiminum Tveir sérfræðingar í öryggis- og varnarmálum segja hernaðarlega yfirburði Bandaríkjanna og bandamanna þeirra gagnvart Kína og Rússland mögulega ógn við stöðugleika í heiminum. Erlent 5.9.2024 07:08
Hóta að breyta kjarnorkuvopnastefnu vegna stuðnings við Úkraínu Stjórnvöld í Kreml hóta því nú að breyta stefnu sinni um hvenær þau eru tilbúin að beita kjarnavopnum vegna stuðnings vestrænna ríkja við Úkraínu. Þau saka Vesturlönd um að „ganga of langt“ í stríði sem Rússland hóf. Erlent 1.9.2024 23:20
Vara við versnandi öryggisaðstæðum við Zaporizhzhia kjarnorkuverið Alþjóðakjarnorkumálastofnun, IAEA, varaði við því í dag að öryggisaðstæður við Zaporizhzhia kjarnorkuverið í Úkraínu hafi versnað mikið í kjölfar drónaárásar á vegi nærri kjarnorkuverinu. Sprengjan sprakk á vegi sem liggur á milli tveggja stærstu hliða kjarnorkuversins. Erlent 17.8.2024 22:44
Duda segir Pólverja reiðubúna til að geyma kjarnorkuvopn Pólland er reiðubúið til að leyfa bandamönnum að koma fyrir kjarnorkuvopnum í landinu ef Atlantshafsbandalagið ákveður að koma vopnunum fyrir víðar til að bregðast við auknum viðbúnaði Rússa í Belarús og Kalíningrad. Erlent 22.4.2024 09:10
Kjarnorkuknúinn kafbátur í stuttri heimsókn Kjarnorkuknúinn bandarískur kafbátur, USS New Hampshire, er í stuttri þjónustuheimsókn í íslensku landhelginni í dag. Varðskipið Þór fylgir kafbátnum um landhelgina og í Stakksfjörð, þar sem fram fara áhafnaskipti og önnur þjónusta við kafbátinn. Innlent 18.4.2024 13:45
Kjarnorkuknúin drónaþyrla mun leita að lífrænum sameindum á Títan Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna staðfestu á dögunum að áfram stæði til að senda þyrludróna til Títan, tungls Satúrnusar. Þyrludróni þessi er á stærð við lítinn bíl og kallast Drekafluga (Dragonfly) en hann á meðal annars að nota til að leita lífrænna sameinda og mögulegra ummerkja lífs. Erlent 18.4.2024 11:43
Grossi varar við drónaárásum á Zaporizhzhia-kjarnorkuverið Rafael Grossi, yfirmaður Alþjóðakjarnorkumálastofnunarinnar, hefur fordæmt drónaárásir á einn af sex kjarnakljúfum Zaporizhzhia-kjarnorkuversins í Úkraínu Erlent 8.4.2024 06:44
„Mannkynið mun ekki lifa framhald af Oppenheimer“ Bandaríkin og Japan standa saman að ályktun sem hefur verið lögð fram í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna um bann gegn kjarnorkuvopnum í geimnum. Erlent 19.3.2024 08:54
Mátu helmingslíkur á kjarnorkustyrjöld haustið 2022 Haustið 2022 mátu yfirvöld í Bandaríkjunum stöðu mála í Úkraínu þannig að það væru helmingslíkur á að stjórnvöld í Rússlandi myndu beita kjarnorkuvopnum til að stöðva Úkraínumenn ef herinn kæmist í gegnum varnir Rússa á Krímskaga. Erlent 12.3.2024 06:21
Vita lítið um ástandið í Fukushima þrettán árum síðar Nærri því 29 þúsund manns hafa ekki getað snúið aftur til síns heima, þó þrettán ár séu liðin frá því að flóðbylgja, sem myndaðist vegna stærðarinnar jarðskjálfta, skall á ströndum Japans. Flóðbylgjan dró rúmlega 22 þúsund manns til dauða og olli einhverju versta kjarnorkuslysi heimsins frá Tsjernobyl-slysinu sem varð árið 1986. Erlent 11.3.2024 10:54
Rússar þrói kjarnavopn í geimnum Bandarísk yfirvöld óttast að Rússar muni vilja koma kjarnavopnum umhverfis sporbaug. Ætlunin yrði að beita þeim gegn gervihnöttum en tæknin er nú í þróun í Rússlandi. Erlent 14.2.2024 23:39
Hafa ítrekað framleitt umframorku með kjarnasamruna Ári eftir að bandarískir vísindamenn náðu að framleiða umframorku með kjarnasamruna á tilraunastofu í fyrsta sinn, hefur þeim ítrekað tekist að gera það aftur. Til stendur að fjölga rannsóknarstöðvum í Bandaríkjunum þar sem unnið er að orkuframleiðslu með kjarnasamruna. Erlent 18.12.2023 14:06
Tveir fluttir á sjúkrahús eftir slys í Fukushima-kjarnorkuverinu Fjórir starfsmenn kjarnorkuverksins í Fukushima fengu á sig geislamengað vatn á miðvikudag og voru tveir þeirra fluttir á sjúkrahús í varúðarskyni. Erlent 27.10.2023 11:11