Ræddu þjóðaratkvæði fram á kvöld og halda áfram í dag Gunnar Reynir Valþórsson skrifar 10. mars 2026 07:50 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir mælti fyrir þingsályktunartillögunni í gær. Sigurjón Þingfundi á Alþingi lauk ekki fyrr en vel var gengið á ellefta tímann í gærkvöldi þar sem tekist var á um þingsályktunartillögu um hvort halda skuli þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aildarviðræðna við ESB. Hart var tekist á í þingsalnum og þingmenn stjórnarandstöðunnar voru ívið fjölmennari í þingsalnum. „
Þessu máli hefur hæstvirtur utanríkisráðherra lýst sem innanríkismáli. En hún ber það hér ein í þingsal og aðrir ráðherrar láta ekki sjá sig,“ sagði Sigríður Andersen þingmaður Miðflokksins. „Hæstvirtur forsætisráðherra sat hér og hefði ekki sagt orð nema af því að til hennar var beint spurningum í óundirbúnum fyrirspurnum.“ „En mig langar þá að spyrja um hagsmunagæslu hæstvirts utanríkisráðherra, sem hún segir að sé einboðin og í sjávarútvegsmálum sérstaklega“, bætti hún við. „Af hverju var þá ekki bara tilgreint í þessari þingsályktunartillögu að samningsmarkmiðin væru þau að Ísland vildi fara í þessar aðildarviðræður, án þess að opna kaflann um sjávarútvegsmál?“ „Hættu bara í símanum, háttvirtur þingmaður!“ Umræðunni var síðan frestað eftir andsvar Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra sem minnti á málþóf stjórnarandstöðunnar frá fyrra þingi þegar tekist var á um veiðigjöldin. „Við vorum nefnilega að gæta hagsmuna þjóðarinnar þá.“ „Og svo koma þessir stjórnarandstöðuflokkar og segja; nú getum við. Þið gátuð það ekki síðasta sumar, þið lýstuð því með lengsta málþófi sögunnar að þið vilduð ekki að þjóðin fengi réttláta hlutdeild, og svo ætlið þið að fara að reyna að halda þessu áfram að standa fyrir þjóðinni,“ sagði ráðherrann. Þorgerður svaraði svo frammíköllum úr þingsal þar sem hún var hvött til að svara spurningu þingmannsins: „Hættu bara í símanum háttvirtur þingmaður! Ég er búinn að svara spurningunni. Þessi ríkisstjórn mun ekki skrifa undir samning sem felur í sér að við verjum ekki fiskveiðiauðlindir þjóðarinnar. „Við verjum hagsmuni íslensku þjóðarinnar. Við höfum sýnt það og við munum sýna það aftur, annað en þið,“ sagði Þorgerður Katrín á ellefta tímanum í gærkvöldi. Þingfundi verður fram haldið í dag klukkan hálftvö og þar er að eins eitt mál á dagskrá fyrir utan liðinn störf þingsins og það er framhald þessarar fyrri umræðu um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra.
Alþingi Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald ESB-viðræðna Mest lesið Höfuðborgarsvæðið skalf Innlent Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Innlent Katla skelfur Innlent Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Fleiri fréttir Höfuðborgarsvæðið skalf Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Sjá meira