Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður

Fréttamynd

Já, tökum okkur Fær­eyinga til fyrir­myndar

Hérlendir Evrópusambandssinnar hafa ítrekað sagt að við Íslendingar ættum að taka frændur okkar Færeyinga til fyrirmyndar í Evrópumálunum. Sem er áhugavert þar sem Færeyjar eru ekki í Evrópusambandinu.

Skoðun
Fréttamynd

Þjónusta þjarka og falskra að­ganga gengur kaupum og sölu

Þjónusta þjarka og falskra aðganga til að afvegaleiða umræðuna og auka upplýsingaóreiðu gengur kaupum og sölu á netinu. Greiningardeild ríkislögreglustjóra telur líklegt að erlendir aðilar muni reyna að hafa áhrif fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu varðandi ESB.

Innlent
Fréttamynd

„Stað­reynd að matarkarfan mun lækka í verði“

Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar, segir að aðild að Evrópusambandinu myndi bæta kjör almennings verulega með lægra matvælaverði og lægri vöxtum. Atkvæðagreiðslan í ágúst snúist ekki um aðild heldur hvort hefja eigi aðildarviðræður.

Innlent
Fréttamynd

Hvetur al­menning til að vera á varð­bergi

Framkvæmdastjóri landskjörstjórnar segir undirbúning hafinn fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu um aðildarviðræður við Evrópusambandið. Hún hvetur almenning til að vera vakandi fyrir erlendum aðilum sem reyna að hafa áhrif á umræðuna í aðdraganda kosninganna. Um áhyggjuefni sé að ræða. 

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er hreinn upp­spuni“

Þorsteinn Már Baldvinsson, fyrrverandi forstjóri Samherja, ætlar ekki að eyða 25 milljónum króna í úthringiver í ágúst líkt og fullyrt er í fyrirsögn ristjórnarpistilsins Orðið á götunni á DV.

Innlent
Fréttamynd

Telja Ríkisút­varpið bullandi hlut­drægt í ESB-málinu

Nei-sinnar eru æfir vegna Silfurs Ríkisútvarpsins en það var helgað spurningunni um þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst og aðildarviðræðum við Evrópusambandið. Heimsýn, sem berst gegn aðildarviðræðum, hefur sent bréf sem stílað er á Stefán Eiríksson útvarpsstjóra og Stefán Jón Hafstein formann stjórnar Rúv þar sem viðraðar eru þungar áhyggjur af efnistökum Rúv.

Innlent
Fréttamynd

„Svaraðu spurningunni“

Þingmaður Sjálfstæðisflokksins sakaði utanríkisráðherra um Evrópumet í mótsögn þegar til umræðu var þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við ESB. Forseti Alþingis þurfti að biðja þingmenn að halda ró sinni í umræðum

Innlent
Fréttamynd

Vill fá Ís­land inn og tólf í við­bót

Finnlandsforseti vill stækka Evrópusambandið allverulega og vill helst fjölga aðildarríkjum úr 27 í 40. Sambandið verði að „hugsa stórt“ og nefnir hann Ísland, Noreg og jafnvel Kanada í því samhengi.

Erlent
Fréttamynd

Mogginn af­þakkar fram­lag Dags B.

Dagur B. Eggertsson þingmaður Samfylkingarinnar segir að honum hafi verið tilkynnt það að breyting yrði á því að reglulegir pistlar hans muni birtast á síðum Morgunblaðsins.

Innlent
Fréttamynd

Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, gagnrýnir ríkisstjórnina fyrir skort á aga og að hafa gefið markaðinum misvísandi skilaboð sem leiðir til hærri verðbólgu.

Innlent
Fréttamynd

Leiðin að lægri vöxtum sé sú sama með krónu og evru

Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri segir að upptaka evrunnar myndi veita Íslandi aðgang að stærra efnahagssvæði og hefði stærðarhagkvæmni í för með sér, en Ísland yrði að innleiða önnur hagstjórnartæki til að tryggja stöðugleika í hagkerfinu í stað sjálfstæðrar peningastefnu.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Er til­búin að blása í herlúðra í haust

Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segist ganga lausnamiðuð inn í þær viðræður sem fram muni fara næstu vikur. Það geti þó farið svo að segja þurfi upp kjarasamningum í haust. Hún segist persónulega andsnúin inngöngu Íslands í ESB þar sem aðild sé andstæð hagsmunum verkafólks. 

Innlent
Fréttamynd

Nei eða já? Af eða á?

Þrír mánuðir eru þar til þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við Evrópusambandið fer fram. Miklar deilur voru um málið á þingi og búast má við að sumarið litist af umræðum um hvort Ísland gangi í sambandið eður ei. Til að aðstoða landsmenn við að komast að upplýstri ákvörðun hefur fyrirtækið Reon sett í loftið vefinn já eða nei punktur is.

Innlent
Fréttamynd

Skýrslan um krónuna sýni að val­kostirnir séu tveir

Kostnaður við íslensku krónuna er verulegur og líklega að jafnaði meiri en sá ábati sem fylgir sjálfstæðum gjaldmiðli, að mati erlends sérfræðingahóps sem fjármála-og efnahagsráðuneytið fól að vinna skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Fjármálaráðherra segir skýrsluna sýna að valkostir Íslands séu bara tveir, áframhaldandi ástand eða upptaka evru í gegnum aðild að Evrópusambandinu.

Innlent
Fréttamynd

Þrír mánuðir til stefnu

Formaður Evrópuhreyfingarinnar segir það gleðitíðindi fyrir alla þjóðina að greidd verði atkvæði um aðildarviðræður að Evrópusambandinu eftir þrjár mánuði. Formaður Heimssýnar segir óljóst hvað bíði kjósi þjóðin já. 

Innlent
Fréttamynd

Er ekki best að tala bara ís­lensku um ESB og mat­væla­verð?

Nú að loknum sveitarstjórnarkosningum hefur umræða um möguleg áhrif aðildar Íslands að ESB tekið sig upp aftur og er matvælaverð algengt stef í orðræðu aðildarsinna síðustu daga. Ýmist fullyrða þeir að matvælaverð muni lækka um tugi prósenta við inngöngu í sambandið eða gefa það sterklega í skyn, en algengasta fullyrðingin er sú að matvælaverð geti lækkað hér um ein 25%.

Skoðun
Fréttamynd

Gervigreindargjöf til lýð­ræðisins

Íslenskt hugbúnaðarfyrirtæki hefur hleypt af stokkunum gervigreindarvef um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst næstkomandi. Sölustjóri segir fólk ekki lengur hafa neina afsökun til að taka upplýsta og meðvitaða ákvörðun. Lagt er upp með að vefurinn sé hlutlaus.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

„Stattu vörð um fjall­konuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“

Guðni Ágústsson, fyrrverandi landbúnaðarráðherra, ritar hálfgerða heimsósómagrein í Morgunblaðið. Greinin birtist í morgun en þar getur hann vart tekið nógu djúpt í árinni; hann talar eindregið fyrir því að fólk segi „nei“ í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu – sem verður á höfuðdeginum sjálfum.

Innlent