Atvinnulíf

„Það sem áður var sígó-pásan er nú jóga-pásan“

Rakel Sveinsdóttir skrifar
Fv.: Íris Dögg Oddsdóttir og Þóra Rós Guðbjartsdóttir, eigendur Yoga Núna, heimsækja vinnustaði og segja mikilvægt að starfsfólki sé hjálpað að gefa hausnum smá pásu. Að skrolla í símanum sé ekkert endilega hvíld fyrir hugann.
Fv.: Íris Dögg Oddsdóttir og Þóra Rós Guðbjartsdóttir, eigendur Yoga Núna, heimsækja vinnustaði og segja mikilvægt að starfsfólki sé hjálpað að gefa hausnum smá pásu. Að skrolla í símanum sé ekkert endilega hvíld fyrir hugann. Vísir/Vilhelm

„Það sem áður var sígó-pásan er nú jóga-pásan,“ segir Íris Dögg Oddsdóttir jógakennari og skellir upp úr með samstarfskonu sinni og öðrum eiganda Yoga Núna, Þóru Rós Guðbjartsdóttur.

Íris og Þóra fengu hugmyndina að Yoga Núna sem leið til að mæta fólki þar sem það er statt, þar á meðal í vinnunni:

„Hugmyndin er að við hittum fólk í jóga því það getur virkað stærra og erfiðara skref að mæta á dýnuna í einhverri jógastöð,“ segir Þóra.

Markmið Yoga Núna er hins vegar að kenna fólki að nýta jóga sem leið til að taka stuttar pásur. Eitthvað sem Yoga Núna býður upp á með stuttum myndböndum en eins að heimsækja vinnustaði.

Þóra bendir á höfuðið á sér og segir:

„Jóga snýst ekki um að vera liðugur. Jóga snýst í raun um hausinn á okkur og að gefa honum smá hvíld. Með því að mæta á vinnustaði og vera með 20 mínútna jóga með starfsfólki erum við að tryggja að hausinn fái smá pásu, Eitthvað sem gerist ekki endilega þótt fólk taki sér pásu og fari að skrolla í símanum.“

Vinkonur á flugi

Íris og Þóra eru flugfreyjur sem báðar eru þaulkunnugar jóga og ræða um jóga af þeirri ástríðu og upplifun sem oft einkennir fólk sem er í jóga: Að heimurinn yrði nánast betri ef allir stunduðu jóga!

Að elska jóga er þó ekki nóg til að ákveða að fara í einhvers konar nýjan rekstur. Sem Íris og Þóra einfaldlega töldu fulla ástæðu til.

„Það eru mjög mörg fyrirtæki að gera mjög góða hluti fyrir starfsfólk. Umræða um geðheilbrigði hefur líka aukist sem er af hinu góða og leið til að draga úr því að fólk keyri sig ekki um of áfram í álagi og án hvíldar,“ segir Íris.

Báðar hafa þær stundað jóga um árabil og báðar hafa þær lært jógakennarann. Leiðin þeirra lá þó saman í gegnum flugið.

„Við erum báðar að fljúga fyrir Icelandair og fyrir um tíu árum vorum við saman í ferð til New York og fórum þá að tala saman,“ segir Þóra en útskýrir þó að þær hafi lengi vitað af hvor annarri.

„Það var ekki fyrr en seinna sem við fórum að velta því fyrir okkur að gera eitthvað saman með jóga. Og strax í upphafi langaði okkur að vinna að kennslunni þannig að við værum að mæta fólki á staðnum frekar en að reyna að fá fólk til okkar,“ segir Þóra.

Sem báðar þekkja þó líka því samhliða fluginu vinna Þóra og Íris í alls kyns jógatengdum verkefnum. Íris kennir til dæmis hjá Mjölni og GoMove en Þóra hjá Hreyfingu. Þóra er líka með Ævintýrajóga fyrir börn á RÚV og saman standa þær að vinnustaðaheimsóknum og framleiðslu stuttra myndbanda.

Við höfum samt hvorugar verið í rekstri á fyrirtæki áður en ákváðum með Yoga Núna að taka skrefið alla leið; gera hugmyndina að veruleika því stundum þarf maður einfaldlega að taka ákvarðanir út frá hugsuninni: 

Ef ég geri þetta ekki núna, geri ég þetta aldrei!“ 

segir Íris.

Þóra og Íris eru báðar flugfreyjur og jógakennarar sem ákváðu að láta slag standa og gera hugmynd að veruleika. Þær segja ákveðna vitundavakningu á vinnumarkaði um geðheilbrigði og það sé af hinu góða.Vísir/Vilhelm

Góðu ráðin

Þóra og Íris segja að það sem hafi hjálpað þeim mikið er að vera duglegar að biðja vini og vandamenn um aðstoð. Þannig hafi vefsíðan orðið að veruleika, lógóið, myndbandaframleiðslan og svo framvegis.

„Við höfum líka þjálfast í að taka gagnrýni. Því stundum fáum við einfaldlega hugmyndir sem eru ekkert góðar,“ segir Íris og hlær.

Að fylgja hjartanu og fara af stað er eitthvað sem Þóra og Íris mæla með að fólk geri, séu góðar hugmyndir í gangi.

„Og ekki að taka því persónulega þótt einhver segi Nei.“

Því þótt viðtökurnar hafi verið góðar sé salan hjá þeim í raun bara eins og sala telst almenn á fyrirtækjamarkaði: Hún er hark og er í samkeppni við annað.

Tímasetningin sé samt góð því flestir vinnustaðir séu að vinna í heilsueflingu starfsfólks.

„Sumir vinnustaðir velta samt fyrir sér hvort 20 mínútna jógapása muni draga úr framleiðni. Vinnustaðir eru samt orðnir meðvitaðri um það nú en áður að það er líka dýrt að missa fólk í langtímaveikindi,“ segir Íris og Þóra bætir við:

„Við erum í stöðugu áreiti; símarnir, tölvurnar og svo framvegis. Vinnustaðir þurfa að finna leiðir til að ná hvíldarstundum með starfsfólki með mildum leiðum og þar sem jóga snýst svo mikið um að hvíla hugann er það góð leið fyrir stutta pásu.“

Stöllurnar viðurkenna að auðvitað voru þær að stökkva í djúpu laugina þegar þær fóru af stað með reksturinn. Tímasetningin hafi þó verið góð því vinnustaðir séu almennt opnari fyrir því nú en áður, að leita leiða til að auka á vellíðan og gott geðheilbrigði starfsfólks.

Um samstarfið segja þær góð samskipti lykilatriði.

„Þóra sagði einmitt í byrjun að við þyrftum eiginlega að einsetja okkur af því að nánast of-tala saman,“ segir Íris og útskýrir hvernig hún passi líka alltaf upp á að svara Þóru strax ef eitthvað er.

Að tala fyrir jóga sem oftast og víðast er þó augljóslega hugarefni sem stöllurnar brenna fyrir svo vægt sé að orði komist.

En er jóga fyrir alla?

„Já, það geta allir stundað jóga því oft er fólk með ranghugmyndir um það hvað jóga er,“ svarar Þóra og bætir við:

Jógapásurnar eru til að endurnæra okkur og við höfum líka oft sagt að það sem okkur finnst í raun skemmtilegast þegar við heimsækjum vinnustaði er þegar 20 mínúturnar eru búnar og fólk er að fara. 

Því það sem einkennir jógapásurnar er að það verða allir svo glaðir á eftir.“


Tengdar fréttir

Magnús er að slá í gegn, mest lesinn og getur allt

„Í fyrra notaði ég ChatGPT til þess að skipuleggja sumarfríið. Úr varð frábært sumarfrí með fjölskyldunni: Lestarferðalag um alpana, frá Þýskalandi, í gegnum Austurríki, Liechtenstein, Sviss og með endastöð í Baveno við Lago Maggiore á Ítalíu,“ segir í færslu Hjartar Sigurðssonar gervigreindarsérfræðings og ráðgjafa hjá Mynstru, sem er með meistaragráðu í byggingaverkfræði.

Eins og gæludýr sem borðar og borðar en fitnar ekki neitt

„Þetta var eins og að vera með gæludýr á heimilinu sem borðaði og borðaði en fitnaði ekki neitt,“ segir Sigrún Edda Eðvarðsdóttir og hlær þegar hún rifjar upp prufutækið sem þau hjónin fengu heim til sín af jarðgerðarvél, sem þau vildu prófa og sjá hvort og hvernig virkaði áður en fyrirtækið þeirra, Umbúðagerðin, tæki tækið í sölu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×