Vongóð um stuðning Miðflokksins Eiður Þór Árnason skrifar 13. janúar 2026 23:32 Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra ogþ formaður Samfylkingarinnar, segir samstöðu ríkja um fleiri mál en oft er haldið fram. Vísir/vilhelm Formaður Samfylkingarinnar er vongóð um að hljóta stuðning Miðflokksins þegar frumvörp ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum verða afgreidd í þinginu. Það vakti athygli á dögunum þegar hún sagði í samtali við Heimildina að hún teldi Samfylkinguna geta náð saman með Miðflokknum um ýmislegt í útlendingamálum. „
Ég held að það liggi fyrir að af þeim málum sem eru núna inni í þinginu af hálfu dómsmálaráðherra, og sem hafa farið í gegnum ríkisstjórn og þingflokka, eru bara fjölmörg mál sem er þverpólitísk samstaða um. Það er kannski sú áhersla sem ég er að teikna upp, að við erum alveg meðvituð um að það þarf að taka á ákveðnum málum. Það þarf að bæta skipulag á landamærunum. Það þarf til dæmis að rýna dvalarleyfiskerfi og atvinnuleyfiskerfi. Það hefur verið ákall um það og við erum að bregðast við því. Við erum að gera það með ábyrgum hætti,“ segir Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar og forsætisráðherra. Ætli ekki að taka upp alla stefnu flokksins Kristrún telur mjög líklegt að ríkisstjórnarflokkarnir nái saman með Miðflokknum um áðurnefnd mál og þingmenn flokksins muni greiða atkvæði með frumvörpunum í þingsal. „Þýðir það að við ætlum að taka upp alla pólitík Miðflokksins? Alls ekki. Það er auðvitað ekki það sama og við erum auðvitað með dagskrárvald þegar kemur að því að leggja fram mál í þessum málaflokki. En það er bara meira sem við getum unnið saman en fólk heldur.“ Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra og þingmaður Viðreisnar.Vísir/Arnar Kristrún segir að lengi hafi verið rætt um sumar þær breytingar sem Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra hafi lagt fram. „Við erum að leggja til brottfaramiðstöð, við erum að leggja til móttökumiðstöð. Við erum að rýna betur dvalar- og atvinnuleyfakerfi til að koma í veg fyrir ákveðin vandamál sem þar hafa skapast. Þetta eru málefni sem hefur verið rætt um í áraraðir.“ Þingið eigi fyrst að afgreiða þau útlendingamál sem flokkarnir geti náð saman um, áður en umdeildari mál eru borin á borð. Mikilvægt að sýna ábyrgð í umræðu um innflytjendamál „Ég held að það skipti máli að við sinnum þessari umræðu af ábyrgð. Hvernig við tölum um fólk af erlendum uppruna á Íslandi skiptir máli, að við séum ekki að grauta öllu saman. En það er auðvitað líka ábyrgðaratriði ríkisstjórnar að taka á þeim málum sem hægt er að taka á en fara ekki alveg út í hinn endann þar sem við mögulega náum ekki saman. Ég er bara jákvæð á það að við getum stigið uppbyggileg skref. Við getum fengið allt þingið með okkur og við skulum bara byrja þá vegferð þar.“ Mjög ánægð með að það sé virkt prófkjör í Samfylkingunni í Reykjavík Oddvitaslagur er hafinn hjá Samfylkingunni í Reykjavík eftir að athafnamaðurinn Pétur Marteinsson bauð sig fram á móti Heiðu Björgu Hilmisdóttur, sitjandi oddvita og borgarstjóra. Kristrúnu finnst prófkjörsbaráttan hafa farið vel af stað. „Ég er mjög ánægð að við séum með virkt prófkjör. Það eru auðvitað kostir og gallar sem fylgja því að vera með svona flokksval. Stundum getur verið auðveldara að stilla bara upp en stundum getur það líka verið erfiðara. Þetta vekur auðvitað athygli bæði á okkar frambjóðendum, á flokknum, þetta knýr fólk í málefnalega umræðu. Ég veit ekki betur en að þau hafi bara staðið sig vel í umræðum sín á milli og þetta styrkir flokkinn að mínu mati að við sjáum nýtt fólk líka koma inn og við sjáum þau sem eru fyrir á fleti taka umræðuna við þá sem eru að koma nýir og ferskir inn í flokkinn.“ Það sé styrkleikamerki að prófkjör fari fram í Reykjavík Kristrún segir að hún hafi ekki gert upp við sig hvorn frambjóðandann hún muni styðja og hyggist ekki opinbera þá afstöðu sína. Það sé virk grasrót í Samfylkingunni og hún virði lýðræðið í flokknum.
Samfylkingin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Miðflokkurinn Innflytjendamál Mest lesið „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ Innlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent „Finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum“ Innlent Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið Innlent Lögreglan þakkar öllum sem komu að verkefninu Innlent Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Innlent Helmingur óánægður hefði Hildur valið Miðflokkinn Innlent Segir upphaf hvalvertíðar vera gleðitíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“ Innlent Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Innlent Fleiri fréttir Langreyðarnar komnar á land Sextán mánuðir á skilorði fyrir að brjóta á átta stúlkum Réðst á leigubílstjóra og neitaði að borga farið „Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ „Finnst ég komin heim þegar ég er í Færeyjum“ Íris Edda ráðin sveitarstjóri á Vopnafirði Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Segir upphaf hvalvertíðar vera gleðitíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“ Lögreglan þakkar öllum sem komu að verkefninu Helmingur óánægður hefði Hildur valið Miðflokkinn Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig 86 prósent horfðu ekki á úrslit Eurovision Ráðherra vill varamótor Herjólfs tiltækan hérlendis Pólitískur ólgusjór í Bretlandi, hvalveiðar og banvæn hitabylgja „Best að taka menn og sekta duglega“ Briddsarar í toppformi leggjast í víking til Ríga Lögreglan lýsir eftir Ernu Athichu Segir ákall frá samfélaginu að gera eins fyrir stelpur og stráka Slagsmál tveggja í Kópavogi enduðu á slysadeild Árásin á Höfðatorgi: Þrír ákærðir fyrir tilraun til manndráps Aldrei fleiri fengið úthlutaða skólavist Kom ekki til skoðunar að gera Land Rover-jeppana upptæka BSO-stöðin komin á nýtt heimili Hrafni bjargað af þaki Byko Hlutu Vigdísarverðlaunin fyrir baráttu fyrir jöfnu aðgengi að þungunarrofi Skartgripaþjófur sigldi undir fölsku flaggi í íbúðum aldraðra „Það var alveg skýrt að það ætti bara að drepa þetta mót hjá okkur“ Segir þörf á fræðslu um kyrkingartak í grunnskólum Ferðalangar utan EES ekki tryggðir vegna veikinda eða slysa Fyrstu hvalirnir skotnir og Starmer segir af sér Sjá meira