Mikil eftirvænting á Hellu fyrir opnun Bæjarins bestu Lovísa Arnardóttir skrifar 29. nóvember 2025 16:03 Nýtt útibú á Hellu. Aðsend Bæjarins bestu opnuðu nýjan pylsusölustað við Faxaflatir á Hellu í dag. Veitingastaðurinn er sá þrettándi sem Bæjarins bestu opna og verður opinn frá 10 til 22 alla daga. Matseðillinn verður hefðbundinn: ein með öllu.
Umsókn fyrirtækisins um starfsleyfi var tekin fyrir á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa Rangárþings ytra þann 5. nóvember. Þar staðfesti byggingarfulltrúi að umrædd starfsemi væri í samræmi við samþykkta notkun húsnæðisins. Hann gerði ekki athugasemdir við tiltekna starfsemi í húsinu en áréttaði að Bæjarins bestu myndu bera ábyrgð á því að tryggja að húsnæðið uppfyllti skilyrði um bruna- og mengunarvarnir og að neysluvatn uppfylli kröfur um gæði vatns. Baldur Ingi Halldórsson eigandi Bæjarins bestu segir staðinn formlega opna eftir helgi. Í dag hafi verið mjúk opnun. „Við fáum líklega leyfi á mánudaginn. Við ætluðum að opna í sumar en það tafðist þannig við erum bara í rólegheitum búin að vera að gera hann fínan og ætlum að gera hann enn fínni fyrir sumarið.“ Aðsend Baldur Inga segir alltaf hafa þótt spennandi að opna stað á þessum slóðum. Þetta sé fjölfarnasti hluti landsins og margir ferðamenn, innlendir og erlendir, sem fari þarna um. Nýi staðurinn sé við veginn og í alfaraleið. „Svo er húsið bara svo fallega rautt,“ segir hann og að það hafi verið unnið að því að merkja húsið. Hann segir Hellu vaxandi bæjarfélag og hann sé spenntur að bjóða heimamönnum og gestum upp á pylsur. „Það eru allir rosa spenntir og glaðir að fá meira úrval. Ég hlakka til að þjónusta fólk.“ Hann segir matseðilinn að vanda eina með öllu og drykki með. Mögulega verði síðar meir einnig hægt að kaupa kaldar samlokur og skyr. „Það hefur gengið vel síðustu ár og gengur almennt vel í pylsunni. Pylsan er bara ótrúlega vinsæl hjá Íslendingunum. Þetta er þjóðarréttur Íslendinga,“ segir hann. Baldur á ekki von á því að vinna sjálfur á staðnum en segist reglulega ætla að renna við. „Þetta er mjög skemmtilegur staður og rosalega gott útsýni. Við keyrðum þangað í morgun og það er svo fallegt landið sem við búum á. Að keyra á fallegum degi um Suðurlandsundirlendið er eitt það flottasta í heiminum og mjög skemmtilegt að vera komin á Hellu.“
Rangárþing ytra Veitingastaðir Matvælaframleiðsla Mest lesið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Hafna ásökunum um hönnunarstuld Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Opna Lindex þar sem Útilíf var Viðskipti innlent Netflix kaupir gervigreindarfyrirtæki Affleck Viðskipti erlent Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Samstarf Fleiri fréttir Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Stríðið geti ýtt undir stöðuna í hagkerfinu Bein útsending: Orkueyjan og alþjóðleg samkeppni Hagkerfið allt í hættu 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Átökin geri baráttuna við verðbólguna enn erfiðari Mun leiða Fab Lab Reykjavík Jón Örn genginn í eigendahópinn Óvíst að fullyrðing um kjaragliðnun standist skoðun Halla ráðin markaðsstjóri BM Vallár Andri Þór hættir sem forstjóri Ölgerðarinnar Sjá meira