Svona gekk að flytja vindmyllurnar Fyrstu flutningar á risastórum vindmyllum í nótt um þjóðvegi Suðurlands gengu framar vonum og tók það flutningalestina um fimm klukkustundir að aka farminum frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. Innlent 7.5.2026 21:02
Fyrsta vindmyllulestin um Suðurland í nótt Einhverjir viðamestu þungaflutningar í sögu íslenska vegakerfisins hefjast í kvöld þegar risastórir vindmylluhlutar verða fluttir frá Þorlákshöfn og upp á hálendið við Sultartanga. Kristján Már Unnarsson fréttamaður var í beinni frá Þorlákshöfn í kvöld. Innlent 6.5.2026 22:33
Lenti á hvolfi í á: „Þetta er ekkert notalegt“ „Þetta var nú ekkert mál,“ er það fyrsta sem Gunnar Guðjónsson sagði við blaðamann en í torfærukeppni í gær hafnaði Gunnar á hvolfi ofan í á. Hann var í tæpar tuttugu sekúndur að koma sér upp úr vatninu en segir allt hafa litið mun verr út en það var í raun. Innlent 3.5.2026 22:41
Leituðu skjóls í Hreysinu Björgunarsveitarmenn komu í gær tveimur skíðagöngumönnum til bjargar sem höfðu leitað sér skjóls í gömlu neyðarskýli við Hreysiskvísl, töluvert norðan Þórisvatns á Sprengisandsleið. Innlent 4. mars 2026 08:34
„Held hann hafi ekki fattað hvað hann fór rétt að“ Unglingspiltur kom í veg fyrir stórtjón þegar eldur kviknaði í rafmagnstöflu á heimili hans í Selási gær. Móðir hans segir atvikið hafa vakið hana til umhugsunar um hve gríðarmikilvægar eldvarnir á heimilum eru. Innlent 21. febrúar 2026 20:09
Menntaverðlaun Suðurlands fóru á Hellu Íslenskukennsla Grunnskólans á Hellu er handhafi Menntaverðlauna Suðurlands, sem forseti Íslands afhenti. Þá fengu tvær konur myndarlegan peningastyrk úr Vísinda- og rannsóknasjóði Suðurlands við sama tækifæri, sem forsetinn afhenti líka. Innlent 11. febrúar 2026 21:31
„Síminn stoppar ekki“ Yfir þrjátíu manns sem dvöldu á vistheimilinu Bakkakoti hafa leitað til lögmanns, sem segir símann ekki stoppa. Þá hafi fleiri leitað til hans sem dvalið hafi á öðrum vistheimilum en Bakkakoti í barnæsku. Innlent 7. febrúar 2026 14:11
Fósturforeldrar og barnavernd upplifað algjört afskiptaleysi Forsætisráðherra kynnti í dag fjórþættar aðgerðir sem ríkisstjórnin hyggst grípa til vegna barna sem beitt voru ofbeldi um árabil í Bakkakoti. Formaður félags fósturforeldra segir bæði fósturforeldra og starfsfólk barnaverndar hafa upplifað algjört afskiptaleysi stjórnvalda í málinu. Innlent 6. febrúar 2026 20:31
Bakkakot rannsakað og mönnunum boðin áfallaaðstoð Málefni Bakkakots voru rædd á ríkisstjórnarfundi í morgun og minnisblöð lögð fram frá þremur ráðuneytum, forsætismálaráðuneytinu, dómsmálaráðuneytinu og mennta- og barnamálaráðuneytinu, lögð fram. Innlent 6. febrúar 2026 12:46
Taka á móti fyrstu drengjunum í meðferð í lok febrúar Áætluð verklok á meðferðarheimilinu Lækjarbakka í Gunnarsholti á Rangárvöllum eru um næstu mánaðamót, janúar/febrúar, og er gert ráð fyrir að húsið verði afhent Barna- og fjölskyldustofu á þeim tíma. Stefnt er að því að taka á móti fyrsta skjólstæðingi í lok febrúar 2026. Pláss er fyrir sex drengi og kynsegin á meðferðarheimilinu. Innlent 27. janúar 2026 06:32
Öflugur 92 ára dósa og plast plokkari á Suðurlandi Þrátt fyrir að Guðni Guðmundsson, bóndi á Þverlæk í Rangárþingi ytra sé orðinn 92 ára gamall þá er hann enn að ganga með fram vegum og tína upp einnota umbúðir, dósir og flöskur. Hann hefur safnað tæplega 30 milljónum á síðustu 20 árum og gefið meira og minna íþróttafélaginu í sveitinni hans allan peninginn. Innlent 26. janúar 2026 20:05
Stækka aðrennslisgöng Sultartangastöðvar Landsvirkjun hyggst nýta góða vatnsstöðu til að ráðast í stór viðhalds- og endurbótaverkefni sem erfitt er að komast í við eðlilegar aðstæður í vinnslukerfinu. Viðamest þeirra verkefna er stækkun aðrennslisganga Sultartangastöðvar. Viðskipti innlent 19. janúar 2026 10:40
Jóhanna Lilja, kartöflubóndi í Þykkvabæ, heiðruð Jóhanna Lilja Þrúðmarsdóttir í Þykkvabæ var útnefnd Samborgari Rangárþings ytra 2025 í hófi á vegum sveitarfélagsins í gær, 10. janúar. Jóhanna Lilja býr í Skarði með manni sínum, Sigurbjarti Pálssyni en þau stunda m.a. kartöflurækt á bænum, auk þess, sem hún hefur unnið við íþróttahúsið og tjaldsvæðið í þorpinu í nokkur ár. Hún er Hornfirðingur en hefur búið í Þykkvabæ frá 1982. Innlent 11. janúar 2026 11:17
Komu auga á strandaða ferðamenn við Heklu Áhöfn um borð í björgunarflugvélinni Tf-Sif var fengin til þess að skima eftir ferðamönnum nálægt Heklu í gærkvöldi. Ferðamennirnir fundust fljótt þrátt fyrir mikið myrkur. Innlent 30. desember 2025 15:12
Mikil eftirvænting á Hellu fyrir opnun Bæjarins bestu Bæjarins bestu opnuðu nýjan pylsusölustað við Faxaflatir á Hellu í dag. Veitingastaðurinn er sá þrettándi sem Bæjarins bestu opna og verður opinn frá 10 til 22 alla daga. Matseðillinn verður hefðbundinn: ein með öllu. Viðskipti innlent 29. nóvember 2025 16:03
Kvígurnar kvaddar eftir meinta kúvendingu Landsvirkjunar Kúabóndi sem sestur er í helgan stein kveðst sár og svekktur að horfa upp á Landsvirkjun selja alla hjörðina hans eftir að hann seldi henni land sitt undir virkjun. Eftir 46 ára búskap stefnir í að bú hans að Akbraut í Holtum í Rangárþingi ytra verði að eyðibýli. Landsvirkjun segir að farið hafi verið af stað í góðri trú en komið hafi í ljós að rekstur búsins stæði ekki undir sér. Innlent 22. nóvember 2025 07:00
Selur hjörð en ekki jörð Allir nautgripir þess sem áður var kúabú að Akbraut í Rangárþingi ytra á Suðurlandi hafa verið auglýstir til sölu. Það sem athygli vekur er að fasteignasalan Eignatorg annast söluna en fasteignasali segir um að ræða fyrsta skiptið sem hann selji heila hjörð frekar en jörð. Viðskipti innlent 18. nóvember 2025 11:21
Keldnakirkja á Keldum er 150 ára Haldið verður upp á 150 ára afmæli Keldnakirkju á Keldum í Rangárþingi ytra í dag en kirkjan er gömul sveitakirkja, sem hefur alltaf verið mjög vel við haldið. Oddasókn á kirkjuna en stefnt er að því að Þjóðminjasafn Íslands taki kirkjuna yfir á nýju ári. Innlent 16. nóvember 2025 12:11
Fresta hrekkjavöku til að tryggja öryggi lítilla skrímsla Mörg hverfi á höfuðborgarsvæðinu hafa ákveðið að fresta hrekkjavökuhátíð sem átti að fara fram í kvöld til morguns. Hátíðinni er frestað vegna veðurs en lægð er undan suðausturströnd sem á að valda hvassri norðaustanátt víða um land, en stormi á Suðausturlandi og á Vestfjörðum og Norðvesturlandi síðdegis og fram á kvöld. Lífið 31. október 2025 11:17
Úrskurðarnefnd klofin en framkvæmdaleyfi stendur Tveir af fimm nefndarmönnum í úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála skiluðu séráliti í máli þriggja náttúruverndarsamtaka, sem krefjast að framkvæmdaleyfi vegna Hvammsvirkjunar verði fellt úr gildi. Kröfu samtakanna var hafnað af meirihluta nefndarinnar. Innlent 30. október 2025 08:01
„Alvöru“ jólasveinn gisti á Hótel Rangá Starfsfólki á Hótel Rangá var nokkuð brugðið í þegar fullskapaður jólasveinn mætti á hótelið í sínum skrúða til að dvelja þar í nokkrar nætur. Um er að ræða jólasvein frá Bandaríkjunum, sem er með milljónir fylgjenda á samfélagsmiðlum. Fagnaðar fundur urðu þegar Kjötkrókur hitti þann ameríska. Lífið 28. október 2025 20:15
Komu innlyksa mæðginum til bjargar í Landmannalaugum Björgunarsveitin Dagrenning á Hvolsvelli og Flugbjörgunarsveitin á Hellu voru boðaðar út vegna mæðgina á húsbíl sem urðu innlyksa í Landmannalaugum sökum færðar í gær. Innlent 27. október 2025 07:14
Áhugasamir smalahundar á námskeiði Fjárbændur segja ekkert jafnast á við það að eiga góðan smalahund. Þeir sækja nú námskeið þar sem þeir fá kennslu í að leiðbeina ferfætlingunum hvernig þeim ber að vinna vinnuna sína. Innlent 25. október 2025 23:10
„Túnin eru bara hvít“ Oddviti Rangárþings ytra vill að brugðist verði við gríðarlegri fjölgun álfta í sveitarfélaginu. Hann segir álftirnar gera bændum lífið leitt, þær valdi tjóni á ræktarlandi sem nemi milljónum króna. Innlent 25. október 2025 16:02