Innlent

Þyrla Gæslunnar kölluð út á Landmannaleið

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti við Landspítalann í Fossvogi í Reykjavík rétt rúmlega klukkan 21. Myndin er úr safni.
Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti við Landspítalann í Fossvogi í Reykjavík rétt rúmlega klukkan 21. Myndin er úr safni. Vísir/Vilhelm

Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á næstmesta forgangi á tólfta tímanum í dag vegna slyss á Landmannaleið. Einnig voru björgunarsveitir kallaðar út. 

Að sögn Ásgeirs Erlendssonar, upplýsingafulltrúa Landhelgisgæslunnar, lenti rúta á ferð um Landmannaleið í holu og er einn farþeganna slasaður. 

Þyrlan sé nýkomin á svæðið og gert sé ráð fyrir því að farþeginn verði fluttur til aðhlynningar. Ekki liggi fyrir hvert maðurinn verði fluttur. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×