Viðskipti innlent

Orri ein­beitir sér að bæjar­málunum og Kári tekur við

Árni Sæberg skrifar
Orri, til vinstri, dembir sér af fullum krafti í bæjarmálin í Hafnarfirði og Kári hleypur í skarðið fyrir hann hjá Algalífi.
Orri, til vinstri, dembir sér af fullum krafti í bæjarmálin í Hafnarfirði og Kári hleypur í skarðið fyrir hann hjá Algalífi. Vísir

Stjórn Algalífs hefur gengið frá ráðningu Kára Marís Guðmundssonar, sem lét nýverið að störfum sem forstjóri PCC á Bakka, í starf forstjóra Algalífs. Hann tekur við starfinu af Orra Björnssyni sem óskað hefur eftir að láta af störfum eftir þrettán ár hjá félaginu. Hann er oddviti Sjálfstæðismanna í Hafnarfirði og kveðst ætla að helga sig komandi prófkjörs- og kosningabaráttu.

Í fréttatilkynningu frá Algalífi segir að undir forystu Orra hafi öflugt teymi starfsmanna þróað leiðandi framleiðslutækni og byggt upp eitt af fremstu fyrirtækjum heims á sviði örþörungaræktar og skapað traustan grunn fyrir næstu skref í framþróun félagsins. Algalíf þakki Orra kærlega fyrir framlag hans í þágu félagsins.

 Úr kísilmálmum í þörunga

Kári sé iðnaðarverkfræðingur með meistaragráðu í efnisfræði frá DTU í Danmörku og hafi yfir fimmtán ára reynslu af alþjóðlegri framleiðslu- og iðnaðarstarfsemi. Kári hafi nú síðast starfað sem forstjóri PCC Bakka, en hafi áður leitt söluteymi Elkem ASA, sem hafi borið ábyrgð á sölu og markaðsstjórn úr sex verksmiðjum fyrirtækisins í þremur heimsálfum. Þar áður hafi hann verið framkvæmdastjóri framleiðslu hjá Elkem Íslandi. 

„Stjórnunarreynsla Kára innan alþjóðlegrar framleiðslustarfsemi, þekking hans á stefnumótun og uppbyggingu alþjóðlegs sölustarfs, sem og tæknileg innsýn í framleiðsluferla, falla vel að næsta kafla í sögu Algalífs, þar sem félagið heldur áfram að vaxa og sækja fram á alþjóðlegum mörkuðum.“

Gefur sig allan í verkefnið

Orri greindi frá því á Facebook í gær að mikil tímamót hefðu orðið í lífi hans, þar sem hann hefði sagt upp starfi sínu sem forstjóri Algalífs.

„Þetta eru kaflaskil og ég geng ákaflega stoltur frá borði. Það hafa verið forréttindi að leiða uppbyggingu þessa spennandi og öfluga félags.“

Hann hafi nú tekið við sem formaður bæjarráðs Hafnarfjarðar ásamt því að vera formaður skipulags og byggingarráðs. 

„Þessi störf ásamt komandi prófkjörs- og kosningabaráttu krefjast mikils tíma og ég hef ákveðið, sem oddviti okkar Sjálfstæðismanna í bæjarmálunum í Hafnarfirði, að gefa mig allan í verkefnið.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×