Innlent

Leiðtogaprófkjör hjá Sjálf­stæðis­flokknum í Reykja­vík

Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar
Gera má ráð fyrir að þetta verði einn af síðustu fundum Varðar í Valhöll en flokkurinn hefur sett húsið á sölu.
Gera má ráð fyrir að þetta verði einn af síðustu fundum Varðar í Valhöll en flokkurinn hefur sett húsið á sölu. Vísir/Einar Árnason

Vörður, fulltrúaráð Sjálfstæðismanna í Reykjavík, samþykkti tillögu stjórnar um að fara í leiðtogaprófkjör en uppstillingarnefnd sér um hin sætin á framboðslista þeirra til sveitarstjórnarkosninga. Óvæntir gestir voru á fundi ráðsins, þar á meðal formaður Sjálfstæðisflokksins.

Fulltrúar Varðar funduðu í dag í Valhöll um aðferð við val á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík vegna komandi sveitarstjórnarkosninga. Fundurinn tók um eina og hálfa klukkustund.

Niðurstaða fundarins, samkvæmt heimildum fréttastofu, var að farið verður í leiðtogaprófkjör en uppstillinganefnd mun sjá um að skipa í hin sætin. Það er þó gert með þeim fyrirvara að oddvitinn fái eitthvað um uppstillinguna að segja. 

Tveir þriðju viðstaddra þurftu að samþykkja tillöguna.

Bæði Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Jens Garðar Helgason varaformaður létu sjá sig á fundinum. Það kann að koma á óvart þar sem að Guðrún er úr Hveragerði og Jens Garðar ú Fjarðabyggð og mun því hvorugt þeirra greiða atkvæði í Reykjavík.

Hér má sjá glitta í Guðrúnu Hafsteinsdóttur, formann Sjálfstæðisflokksins, til hægri. Einnig er Júlíus Viggó Ólafsson á fundinum en han er formaður Sambands ungra Sjálfstæðismanna.Vísir/Sigurjón

Í lok október var greint frá að stjórnin hefði samþykkt að önnur tillaga yrði lögð fram á fundinum. Sú tillaga hljóðaði upp á leiðtogaprófkjör sem allir flokksmenn í borginni gætu tekið þátt í. Fulltrúaráðið fengi síðan að kjósa um annað til sjöunda sæti en stillt yrðu upp í hin 39 sætin. 

Einhverjar breytingar virðast því hafa átt sér stað fyrst að sú tillaga var ekki lögð fram.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×