Viðskipti innlent

Afar ó­sátt við „óskiljan­lega“ sekt Sam­keppnis­eftir­litsins

Bjarki Sigurðsson skrifar
Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunnar.
Hörður Arnarson er forstjóri Landsvirkjunnar. Vísir/Sigurjón

Landsvirkjun ætlar að áfrýja himinhárri sekt Samkeppniseftirlitsins. Forstjórinn segir niðurstöðu eftirlitsins óskiljanlega og að fyrirtækið hafi ávallt verið með hagsmuni raforkunotenda að leiðarljósi.

Landsvirkjun var sektuð af Samkeppniseftirlitinu um 1,4 milljarða króna fyrir að hafa með alvarlegum hætti misnotað markaðsráðandi stöðu sína á raforkumarkaði. Kvörtun barst árið 2021 frá Orku náttúrunnar og N1 rafmagn vegna útboða Landsnets frá 2017.

Máttu ekki selja orkuna á betri kjörum

Landsvirkjun hafði selt fyrirtækjunum tveimur orku samkvæmt verðskrá. Fyrirtækin ætluðu sér síðan að selja orkuna áfram til Landsnets í útboði. Hins vegar tók Landsvirkjun einnig þátt í útboðinu og bauð þar betri kjör en úr verðskránni. Því hafi hin fyrirtækin ekki átt möguleika á að verða valin, nema selja orkuna með tapi.

Grafík sem sýnir hvernig sölunni var háttað í kringum útboðið umdeilda.Vísir/Hjalti

„Við erum ósátt við þá skilgreiningu Samkeppniseftirlitsins að milliliðir eigi að geta keppt við Landsvirkjun í að selja stórum notendum eins og Landsneti. Okkur finnst það mjög sérkennileg niðurstaða. Við þekkjum engin dæmi, hvorki á Íslandi né í Evrópu, um þessa túlkun. Við töldum okkur vera að keppa við aðra raforkuframleiðendur í fullu samræmi við samkeppnislög,“ segir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar.

„En þessi skilgreining kemur mjög á óvart, að milliliðir hafi rétt á að kaupa raforku, leggja á hana og selja til stórra aðila eins og Landsnets. Og Landsvirkjun verður að tryggja það að milliliðirnir geti boðið hagstæðara verð en Landsvirkjun sjálf.“

Verður áfrýjað

Hann segir ákvörðun Samkeppniseftirlitsins óskiljanlega og ætlar Landsvirkjun að áfrýja henni til úrskurðarnefndar samkeppnismála.

Þið leituðuð eftir sátt í málinu þegar þetta hófst, hvers vegna gerið þið það ef þið teljið ykkur ekki hafa brotið nein lög í þessu máli?

„Við leituðum bara eftir leiðbeiningum frá Samkeppniseftirlitinu. Við erum algjörlega tilbúin að aðlaga okkur að því að Samkeppniseftirlitið vilji að Landsvirkjun taki ekki þátt í þessum útboðum. Það væri ekkert vandamál. Það er eingöngu út af orkuöryggi sem við tókum þátt. Við leituðum eftir sátt, skilgreiningu frá eftirlitinu, en við hefðum aldrei verið tilbúin að samþykkja sekt. Því við teljum okkur ekki hafa brotið lög og við höfum verið í góðri trú með hagsmuni raforkunotenda að leiðarljósi,“ segir Hörður. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×