Tveir handteknir eftir húsleit í Laugardal og Kópavogi Agnar Már Másson skrifar 4. júlí 2025 09:39 Stór og mikil lögregluaðgerð átti sér stað við Austurbrún í Laugardal í gær. Vísir/Viktor Lögreglan handtók tvo í gær eftir húsleit við Austurbrún í Laugardal í Reykjavík annars vegar og í Kópavogi hins vegar. Alls eru fimm í haldi í tengslum við rannsókn lögreglunnar á Norðurlandi eystra á skipulagðri glæpastarfsemi.
Málið teygir anga sína alla leið til Raufarhafnar, þar sem lögreglan rannsakar nú skipulagða glæpastarfsemi og fíkniefnaframleiðslu. Lögreglan á Norðurlandi eystra greinir frá í tilkynningu að hún hafi ráðist í tvenna húsleit í gær, annars vegar í Laugardal í Reykjavík og hins vegar í Kópavogi. Lögregla segir að tveir hafi verið handteknir í aðgerðum gærdagsins. Alls eru fimm manns nú í gæsluvarðhaldi og í dag verður lagt mat á hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir þeim sjötta, að sögn lögreglu. Með þessu hefur lögreglan ráðist í sex húsleitaraðgerði í tengslum við málið. Fyrstu aðgerðir í málinu voru þann 18. júní síðastliðinn en þá var ráðist í húsleit á þremur stöðum, að sögn lögreglu. Þann dag var ráðist í húsleit á Aðalbraut 37 á Raufarhöfn og Þórólfsgötu 5 í Borgarnesi, auk annars húss á höfuðborgarsvæðinu staðsetning hvers liggur ekki fyrir. Íbúðahúsnæðið liggur að Aðalbraut 37 en þar var áður leikskóli. Skjáskot/Ja.is Síðan þá hefur verið ráðist í húsleit á þremur stöðum til viðbótar, þar með talin aðgerð gærdagsins við Austurbrún 21 í Laugardal, eins og fram kom í umfjöllun Vísis í gær. Lögreglan hefur að öðru leyti lítið tjáð sig um málið. Veistu meira? Áttu myndir? Þú getur sent okkur ábendingar á ritstjorn@visir.is. Fréttin hefur verið uppfærð.
Reykjavík Norðurþing Borgarbyggð Lögreglumál Fíkniefnabrot Kópavogur Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Innlent Fleiri fréttir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Fá loksins að fagna aldarafmælinu Sjá meira