Innlent

Þrýst á flug­menn Land­helgis­gæslunnar meðan samnningar tefjist

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, hefur verið harðorður í garð stjórnvalda undanfarin ár vegna þess hve illa gengu að semja við flugmenn.
Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, hefur verið harðorður í garð stjórnvalda undanfarin ár vegna þess hve illa gengu að semja við flugmenn. Vísir/Vilhelm

Félag íslenskra atvinnuflugmanna segir Landhelgisgæsluna þrýsta á flugmenn sína að standa vaktir þó þeir séu búnir með hámarksvakttíma, séu í veikindum eða orlofi. Slíkt gangi gegn öllum reglum varðandi flugöryggi og réttindi flugmanna. Viðræður um nýjan kjarasamning flugmanna gæslunnar hafa staðið yfir í fimm ár.

Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA) þar sem lýst er yfir áhyggjum vegna stöðu flugmanna Landhelgisgæslunnar. 

Flugmenn Landhelgisgæslunnar bíða enn eftir nýjum kjarasamningi en viðræður um hann hafi staðið yfir í fimm ár. „Á sama tíma hafa flugmenn LHG lagt allt sitt undir til að halda uppi háu þjónustustigi þrátt fyrir undirmönnun og hægan samningsvilja af hálfu ríkisins,“ segir í tilkynningunni.

Jafnframt segir þar að Landhelgisgæslan þrýsti á flugmenn að standa vaktina þrátt fyrir að hámarki vakttíma hafi verið náð eða þeir séu í orlofi eða veikindum. Slíkt gangi gegn öllum reglum varðandi flugöryggi og réttindi flugmanna. 

Félagið lýsir yfir þungum áhyggjum af stöðunni þar sem við blasi háannatími útkalla yfir sumartímann.

Hættu skyndilega við rétt fyrir vöfflukaffi

FÍA segir viðræður um nýjan kjarasamning fyrst og fremst hafa tafist að tilstuðlan samninganefndar ríkisins (SNR).

„Unnið hefur verið að nýjum heildstæðum samningi í hartnær tvö ár þar sem unnið hefur verið að lausn á þeim deilumálum sem út af stóðu og boðað hafi verið til vöfflukaffis hjá ríkissáttasemjara í lok júní. Á þeim tímapunkti hafi SNR þó skyndilega dregið alla vinnuna til baka og ekki hefur verið boðað til fundar af hálfu ríkissáttasemjara síðan þá,“ segir í tilkynningunni.

Fjármálaráðuneytið ráðist með þessu á verkfallsréttalausa starfsstétt en enn alvarlegra sé að flugöryggi Landhelgisgæslunnar sé stefnt í hættu með grafalvarlegum afleiðingum.

„Virðingarleysi stjórnvalda gagnvart þessari mikilvægu framvarðasveit landsins er með öllu óásættanlegt að mati FÍA,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Kemur á óvart að ekki hafi skapast neyðarástand

„Það er eins og yfirvöld þurfi stórslys til þess að átta sig á alvarleika stöðunnar hjá Landhelgisgæslunni," segir formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Sífellt erfiðara er að manna bráðnauðsynlegar vaktir hjá þyrlum gæslunnar, flugmenn hafa verið kjarasamningslausir í tvö og hálft ár.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×