Innlent

Hvetja ráðu­neytið til að kynna sér málið og leið­rétta rang­færslur

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Hjalti Dagur Hjaltason t.v. er formaður Félags læknanema.
Hjalti Dagur Hjaltason t.v. er formaður Félags læknanema. Vísir/Samsett

Læknanemar segja fullyrðingar fjármálaráðuneytisins rangar og hvetja það til að kynna sér launamál sín betur og leiðrétta opinberlega rangfærslur í svörum sínum.

Greint var frá því í fyrradag að læknar væru ósáttir við það sem þeir álitu fyrirhugaða lækkun viðmiðunarlauna læknanema í sumarstarfi á Landspítalanum og öðrum heilbrigðisstofnunum. Þeir væna Kjara- og mannauðssýslu ríkisins um að hafa tekið einhliða ákvörðun um að lækka laun þeirra sem tryggi að heilbrigðiskerfið sé starfhæft yfir sumartímann.

Sumarvinnan ekki hluti af náminu

Fjármálaráðuneytið fullyrti í tilkynningu í gær að læknanemum hafi verið tryggð launahækkun upp á 3,5 prósent eins og öðrum starfsmönnum hins opinbera. Breytingar hafi hins vegar verið gerðar á kjarasamningi lækna síðasta haust sem hafi valdið því að laun þeirra hafi hækkað umfram almennar launahækkanir. Laun læknanema eru reiknuð sem hlufall af lægstu mögulegu launum nýútskrifaðslæknis, sérnámsgrunnslæknis, og því hafi hlutfallinu verið breytt til að hækka ekki laun þeirra umfram aðra starfsmenn.

Sjá einnig: Læknanemar fái víst launa­hækkun

„Þó svo að laun læknanema taki mið af launatöflu lækna þá eru þeir ekki aðilar að kjarasamningi lækna. Störf læknanema á heilbrigðisstofnunum eru hluti af þeirra námi og laun ákvörðuð með það að markmiði að tryggja að þeir fái sömu hækkanir og aðrir hópar í nýgerðum kjarasamningum,“ sagði í tilkynningu ráðuneytisins.

Hjalti Dagur Hjaltason, forseti Félags læknanema, hefur ýmislegt um þennan málflutning ráðuneytisins að setja. Fyrir það fyrsta tekur hann fram að störf nema hjá heilbrigðisstofnunum landsins á sumrin séu ekki hluti af skipulögðu klínísku námi við læknadeild Háskóla Íslands. Um sé að ræða mikilvæg og ábyrgðarfull störf sem er undirstaða mönnunar yfir sumartímann.

Hvetja ráðuneytið til að leiðrétta rangfærslurnar

Hann segir breytingu launahlutfallsins ekki bara ósanngjarna heldur að hún byggi jafnframt á röngum forsendum.

„Einnig er rangt meðfarið að laun læknanema séu til á launatöflu kjarasamnings LÍ og ríkisins. Laun þeirra hafa verið miðuð við ákveðna prósentu af lægstu mögulegu launum sem nýútskrifaður læknir getur fengið. Það er prósentuviðmiðið sem ríkið hefur einhliða lækkað í tvígang síðustu árin til að draga úr ávinningi læknanema af kjarasamningum sem læknar gerðu,“ segir Hjalti Dagur.

„Við hvetjum fjármála- og efnahagsráðuneytið til að kynna sér þessi mál nánar og leiðrétta opinberlega rangfærslur í svörum sínum.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×