Ragnar um biðlaun annars formanns: „Hvað gerir þessa gæðinga að svo miklu betri mönnum en okkur?“ Samúel Karl Ólason skrifar 26. febrúar 2025 17:48 Ragnar Þór Ingólfsson, fyrrverandi formaður VR. Visir/Vilhelm Skömmu áður en hann var fyrst kjörinn í stjórn VR gagnrýndi Ragnar Þór Ingólfsson, fyrrverandi formaður félagsins, annan fyrrverandi formann harðlega fyrir að þiggja biðlaun. Það var eftir að Gunnar Páll Pálsson tapaði kosningum um embætti formanns VR og fékk sjö milljónir í biðlaun.
Hluti stjórnar VR hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem rúmlega tíu milljón króna biðlaun Ragnars eru gagnrýnd, sérstaklega þar sem hann hafi farið beint úr starfinu í annað launað starf, starf þingmanns. Það sé einsdæmi að fráfarandi formaður fari í annað launað starf. „Hvað eru ofurlaun og hvað eru starfslokasamningar? Semja menn um starfslok þegar þeir byrja að vinna? Hvar er línan sem skilur á milli?“ Þetta skrifaði Ragnar Þór á bloggsíðu sína þann 28. mars 2009. Skrifin voru vegna frétta um að Gunnar Páll Pálsson, sem hætti sem formaður VR það sama ár, hefði fengið um sjö milljónir króna í starfslokasamning. Ragnar Þór sagði það kannski ekki virka sem brjálæðislega upphæð, miðað við „geðveikina sem í gangi var á góðæristímum“ en setti hana í það samhengi að verkamaður væri um þrjú ár að vinna sér inn fyrir þessari upphæð. „Hvernig getur verkalýðsforystan barist á móti ofurlaunum og starfslokasamningum þegar hún er sjálfri sér verst í þeim efnum. Ofurlaun í lífeyrissjóðskerfinu hafa verið mikið í umræðunni enda sitja forkálfar verkalýðsforystunnar þar í stjórnum og ákveða forstjóra og stjórnarlaun,“ skrifaði Ragnar Þór. Hann sagði einnig að mál Gunnars væri ekkert einsdæmi. Stjórnarmenn í Lífeyrissjóði verslunarmanna væru með 172.500 krónur á mánuði fyrir að sitja fundi. Þetta væri fimmtungi hærri upphæð en ætlast væri til að sjóðfélagi lifi á á mánuði eftir atvinnumissi. „Hvað gerir þessa gæðinga að svo miklu betri mönnum en okkur? Af hverju eiga þessir menn svo miklu betra skilið en við hin? Verkalýðsforystan þarf að fara í alvarlega naflaskoðun.“ Peningarnir í neyðarsjóð Í gær kom í ljós að þegar Ragnar hætti sem formaður VR og tók sæti á Alþingi fyrir Flokk fólksins, þáði hann rúmlega tíu milljónir í biðlaun og uppsafnað orlof. Var greiðslan í samræmi við ráðningarsamning frá árinu 2017 og mun hann vera sambærilegur samningum við fyrri formenn VR. Ragnar Þór var kosinn í stjórn VR vorið 2009 og varð hann formaður árið 2017, þangað til í desember. Hann sagði í samtali við fréttastofu í gær að peningarnir fari í neyðarsjóð fjölskyldunnar, sökum þess að framlínufólk verkalýðsbaráttunnar eigi oft erfitt á vinnumarkaði eftir að það hættir að starfa fyrir verkalýðsfélögin. Segja stjórnarmeðlimi hafa reynt að koma í veg fyrir fund um málið Hluti stjórnar VR sendi í dag frá sér yfirlýsingu vegna umræðunnar um biðlaun, þar sem segir að staðreyndir hafi orðið undir í umræðunni. Almennt hafi formenn VR notið réttinda til biðlauna og að síðastliðna tvo áratugi hafi formenn félagsins látið af störfum eftir að hafa tapað kosningum. Einsdæmi sé að formaður segi starfi sínu lausu til að taka við öðru launuðu starfi og réttindi til biðlauna hafi „ekki verið hugsuð fyrir slík tilfelli“. Enginn fyrirvari hafi verið í samningnum sem gerður var við Ragnar Þór árið 2017, eins og í samningum fyrri formanna. „Fyrrverandi formaður óskaði eftir eingreiðslu á útistandandi biðlaunum í janúar og fékk hana greidda síðustu mánaðamót.“ Í yfirlýsingunni segir að málið hafi ekki verið tekið fyrir í stjórn og nokkrir í stjórninni hafi óskað eftir aukafundi í síðustu viku, þegar þeir fengu veður af eingreiðslunni. Þá segir í yfirlýsingunni að fimm meðlimir stjórnarinnar og einn varamaður hafi reynt eftir fremsta megni að stöðva þann fund. Hann hafi þó farið fram þann 24. febrúar og þá hafi stjórnin öll fengið þessar upplýsingar. „Undirrituð taka undir gagnrýni á að fyrrum formaður þiggi samtímis laun frá Alþingi og VR, ekki síst þar sem hann hefur verið gagnrýninn á aðra einstaklinga sem hafa þegið biðlaun,“ segir í yfirlýsingunni. Sjá einnig: Brugðist við biðlaunum Ragnars Þórs Undir yfirlýsinguna skrifa þau Diljá Ámundadóttir Zoega, Gabríel Benjamin, Jennifer Schröder, Kristjana Þorbjörg Jónsdóttir, Ólafur Reimar Gunnarsson, Sigríður Lovísa Jónsdóttir, Svanhildur Ólöf Þórsteinsdóttir, Vala Ólöf Kristinsdóttir og Þórir Hilmarsson. Stjórn VR hefur samkvæmt yfirlýsingunni ákveðið að í framtíðinni falli biðlaunaréttindi formanna niður, hverfi þeir til annarra starfa. Þá er ítrekað í yfirlýsingunni að núverandi formaður VR hafi ekki komið að ákvörðuninni um laun, biðlaun eða uppgjörið við Ragnar Þór.
Kjaramál Formannskjör í VR 2025 Stéttarfélög Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Erlent Fleiri fréttir Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Sjá meira