Óskiljanlegt að sakborningarnir segi samræður sínar grín Jón Þór Stefánsson skrifar 13. febrúar 2024 12:15 Karl Ingi Vilbergsson sækir málið fyrir hönd héraðssaksóknara. Vísir/Vilhelm Saksóknari í hryðjuverkamálinu svokallaða gefur ekki mikið fyrir yfirlýsingar sakborninga um að fremja voðaverk hafi verið grín. Hann fer fram á fimmtán til átján mánaða refsingu fyrir vopnalagabrot en leggur í hendur dómsins að meta refsingu fyrir skipulagningu hryðjuverka enda engin fordæmi í slíkum málum hér á landi.
Munnlegur málflutningur saksóknara og verjenda hófst í morgun. Um er að ræða síðustu skref aðalmeðferðarinnar sem hefur staðið yfir síðan um miðja síðustu viku. Málið er umfangsmikið, en saksóknari og verjendur í málinu töluðu sín á milli í gær um að gögn málsins séu rúmlega fimm þúsund blaðsíður. Sindri Snær Birgisson er ákærður fyrir skipulagningu hryðjuverka, og Ísidór Nathansson ákærður fyrir hlutdeild í því. Meint brot þeirra eru talin varða fyrsta, annan og fjórða tölulið hundruðustu málsgreinar almennra hegningarlaga. Þetta er í fyrsta skipti sem reynir á málsgreinina í íslenskri réttarfarssögu. Karl Ingi Vilbergsson, sem sækir málið fyrir hönd héraðssaksóknara, sagði að Sindri hafi sýnt í verki að hann hafi ætlað að fremja hryðjuverk með skotvopnum eða sprengingu, dulbúinn sem lögreglumaður. Til þess hafi hann orðið sér úti um skotvopn, sem séu árásarvopn en ekki veiðirifflar í neinum skilningi. Þá séu vopnin sem Sindri hafi orðið sér úti um svipuð þeim sem hafi verið notuð í öðrum hryðjuverkaárásum. Í því samhengi minntist Karl Ingi á Anders Behring Breivik sem framdi hryðjuverk í Noregi 2011, Brenton Tarrant sem framdi hryðjuverk í Nýja-Sjálandi árið 2019 og Payton Gendron sem framdi hryðjuverk í Buffalo í Bandaríkjunum 2022. Í málflutningi sínum lagði Karl Ingi til að mennirnir myndu fá fimmtán til átján mánaða fangelsisdóma fyrir vopnalagabrotin, en vegna þess að mál er varða hryðjuverk hafa ekki verið tekin fyrir áður lagði hann það fyrir dóminn að meta refsingu. Virðist sólginn í ofbeldismyndbönd Að mati Karls Inga er ekki hægt að ræða um orðræðu Sindra, þar sem hann talaði um að fremja voðaverk, sem grín, líkt og sakborningarnir hafa haldið fram. Ekki sé um að ræða samskipti sem áttu sér stað eina kvöldstund eða hjal, heldur hafi þetta verið margra mánaða samtal. „Þetta getur ekki flokkast sem innihaldslaust hjal eða ósmekkleg ummæli,“ sagði Karl Ingi sem minntist á að Ísidór væri viðurkenndur nasisti og kynþáttahatari og sagði að Sindri hefði augljósa andúð í garð samkynhneigðra. Þá sé ljóst að þeir hafi kynnt sér hugmyndafræði Anders Breivik, og að þeir hafi verið hugfangnir af honum. Þá hafi Sindri gúgglað hvernig ætti að fremja hið fullkomna morð og annað þess háttar. „Það er óskiljanlegt að menn haldi því fram að þegar menn eru með þetta efni að þetta sé eitthvað grín.“ „Hann virðist sólginn í að komast yfir ofbeldismyndbönd. Það virðist veita honum einhverja fullnægju,“ sagði saksóknari og bætti við að svo virtist sem um væri að ræða lið í skipulagningu hryðjuverkanna. „Við fyrstu sýn myndi maður halda að þetta sé fjarstæðukennd hugmynd,“ sagði Karl Ingi eftir að hafa reifað ummæli sem Sindri og Ísidór höfðu sín á milli um voðaverk framin með dróna. En ef maður hefði í huga að vinirnir hafi í kjölfar ummælanna farið að skoða hvernig þeir gætu orðið sér úti um dróna, og jafnvel smíða þá sjálfir, sé ljóst að hugmyndin hafi ekki verið fjarstæðukennd. Óumdeilt að Sindri hafi ætlað að dulbúa sig „Til hvers í ósköpunum þarf hann á lögreglufatnaði að halda?“ spurði Karl Ingi sem fór í nokkuð löngu máli yfir gögn málsins þar sem Sindri virðist vera að skoða lögregluklæðnað og annan búnað sem lögreglan gæti notað. Um það bil viku fyrir handtökuna hafi hann verið búinn að finna hluta búningsins og talað um að hann ætti bara „efri hlutann“ eftir. „Það er óumdeilt í málinu að það sé markmið hans að dulbúa sig sem lögreglumann,“ sagði saksóknari og minntist á orð Sindra: „Þau þurfa bara að trúa mér í tíu sekúndur.“ Með þessu segir Karl Ingi hafi Sindri ætlað að líkja eftir voðaverkum Breivik í Útey 2011, þar sem hann dulbjó sig sem lögreglumann. Undirróður Ísidórs Talandi um þátt Ísidórs segir Karl Ingi að Sindri hafi mikið leitað til hans. Ísidór hafi hrósað Sindra og sent honum ýmis öfgafull skilaboð. Um sé að ræða undirróður að hálfu Ísidórs sem hafi hvatt hann til að ganga sífellt lengra. Þá minntist hann á stefnuskrá sem fannst í tölvu Ísidórs undir heitinu Manifesto. Karl Ingi segir að skjalið hafi síðast verið opnað daginn áður en Sindri og Ísidór voru handteknir. Mánuðir í undirbúning en sekúndur í framkvæmd Í málflutningi sínum vísaði Karl Ingi til nokkurra danskra dóma í málum, sem hann sagði sambærileg hinu íslenska hryðjuverkamáli. Hann tók fram að í nánast öllum tilfellum hafi ekki legið fyrir hvar umrædd voðaverk hefðu átt að vera framin, en það er á meðal þess sem verjendur sakborninganna hafa bent á, að engin dagsetning meintra hryðjuverka hafi legið fyrir. „Það er hægt að hafa í huga að hér eru menn í marga mánuði eða ár að undirbúa hryðjuverk,“ sagði Karl Ingi, en sagði síðan að sjálft verkið gæti tekið örfáar sekúndur, þó að undirbúningurinn hefði tekið langan tíma. Lögreglan ætti engan möguleika á að stöðva hryðjuverk þegar þau væru komin á framkvæmdastig.
Dómsmál Grunaðir um skipulagningu hryðjuverka Mest lesið Prestur í Dalvík sver af sér kjaftasögur um ókristilega hegðun Innlent Kurr innan Samfylkingarinnar vegna brottvísunar ungbarna Innlent Gekk berserksgang og beraði sig Innlent Stjórnarformaður RÚV vill að Ísrael verði tafarlaust vikið úr Eurovision Innlent „Af hverju ertu svona í framan?“ Innlent Segja stutt í samkomulag en sprengjum rignir enn Erlent Sendir þjóðvarðliðið til Chicago Erlent Var að streyma á TikTok þegar hann féll til jarðar og lést Erlent Fjöldi án rafmagns vegna vonskuveðurs í Noregi Erlent Eldur í þvottahúsi á Granda Innlent Fleiri fréttir Stjórnarformaður RÚV vill að Ísrael verði tafarlaust vikið úr Eurovision Gekk berserksgang og beraði sig Prestur í Dalvík sver af sér kjaftasögur um ókristilega hegðun Eldur í þvottahúsi á Granda Prestur og prófastur bíður spenntur eftir Hrútaskránni Kurr innan Samfylkingarinnar vegna brottvísunar ungbarna Fokdýrar flugferðir, ögurstund á Gasa og óvenjulegt innbrot Boða íbúafundi vegna mögulegrar sameiningar sveitarfélaganna Alelda bíll á Reykjanesbraut Framkvæmdirnar komi eftir ákall frá íbúum Safnaði í bálköst innandyra en kennir stundarbrjálæði um íkveikjuna Skrítin afstaða BSRB og ASÍ Tekist á um leikskólamál og árásir á Gasa Umfangsmikil flugslysaæfing á Reykjavíkurflugvelli Tætir í sig leikskólaplan borgarinnar: Segir Reykjavík taka skref aftur á bak Rannsaka mögulega stunguárás Göngu- og hjólabrýr yfir Elliðaár opnast „Af hverju ertu svona í framan?“ „Algjörlega alveg út í hött“ Umferðin færist inn á íbúðagötur Andar sem eru ekki hér en voru í myndinni þeir sveima og fylgjast með Dugar ekki lengur að dorga og nú þurfi að kasta út neti Vann á öllum deildum leikskólans Segja Rússa heyja stríð við Vesturlönd og síðustu ævidagarnir á Grund „Kópavogsmódelið er ekkert annað en þjónustuskerðing“ Nýsestur á skrifstofunni þegar hann fékk bíl í flasið Starfsmaður á Brákarborg grunaður um kynferðisbrot Fresta framkvæmdum vegna veðurs Sýnist komið að seinni hluta í eldsumbrotum í Sundhnúksgígaröðinni Grunaður um að hafa brotið á fleiri en tíu börnum Sjá meira