Risatilboð dugði ekki til að sannfæra De Gea um að verða liðsfélagi Ronaldo Smári Jökull Jónsson skrifar 19. nóvember 2023 12:30 De Gea vill ekki verða liðsfélagi Cristiano Ronaldo á nýjan leik. Vísir/Getty David De Gea hefur hafnað risatilboði frá Al Nassr í Sádi Arabíu. Spánverjinn hefur verið án félags síðan samningur hans hjá Manchester United rann út í sumar.
David De Gea var á mála hjá Manchester United frá árinu 2011 og allt þar til í sumar þegar samningur hans rann út. Hann lék rúmlega 400 leiki fyrir United og á þar að auki að baki 45 A-landsleiki fyrir Spánverja. Engu að síður hefur De Gea ekki tekist að finna sér nýtt félag. Mikill áhugi var á De Gea hjá sádiarabíska félaginu Al Nassr þar sem Cristiano Ronaldo er stærsta stjarnan. Samkvæmt breskum miðlum bauð Al Nassr De Gea 500.000 pund í vikulaun en það dugði þó ekki til því Spánverjinn hafnaði tilboðinu. Samkvæmt miðlunum er eiginkona De Gea lítið spennt fyrir því að flytja til Sádi Arabíu. De Gea hefur verið orðaður við Valencia á Spáni að undanförnu og þá hafa sögusagnir einnig verið á kreiki um að hann muni mögulega skrifa undir skammtímasamning við sitt gamla félag á Englandi. Þá eru forráðamenn Inter Miami sömuleiðis áhugasamir um að tryggja sér þjónustu De Gea. Það er möguleiki sem De Gea ku vera spenntur fyrir en þá yrði hann liðsfélagi Lionel Messi.
Sádiarabíski boltinn Mest lesið Féll úr skíðalyftu og lést Fótbolti Goðsögn fallin frá Enski boltinn Býst ekki við að spila aftur fyrir landsliðið Íslenski boltinn Hótað brottrekstri ef hann færi ekki á börurnar Fótbolti Zidane sá soninn spila á Afríkumótinu Fótbolti Var frústreraður vegna landsliðsins Fótbolti Haaland stóðst vigtun eftir jólin Enski boltinn Kynntu Sigurð á slaginu sex á aðfangadag Íslenski boltinn Kærður af knattspyrnusambandinu Enski boltinn Dreymir enn um Evrópu: „Ekki tilbúin að borga það sama“ Sport Fleiri fréttir Haaland stóðst vigtun eftir jólin Hápunktarnir hingað til í enska boltanum Goðsögn fallin frá Kærður af knattspyrnusambandinu Bestu jólamörkin: Drogba, Scholes eða Giroud? Van de Ven bað Isak afsökunar: „Vildi ekki meiða hann“ Hvers vegna heillast stórliðin svo af Semenyo? Stewart, Snoop og Modric í eina sæng Vill ekki segja hversu lengi Bruno er frá Spyr hvort Guardiola stígi á vigtina Arsenal í undanúrslit eftir vító Man. Utd reyndi stíft en Semenyo kaus City „Tölfræðilega séð eiga þeir ekkert að vera í þessari stöðu“ Chelsea setur sig í samband við Semenyo Jiménez jafnaði bestu vítaskyttu sögunnar Slot mun sakna Isak í tvo mánuði eftir „glórulausa tæklingu“ Sjáðu „auma“ vítið sem skilaði Fulham sigri Fulham skildi Forest eftir við fallsvæðið Áfallið staðreynd og Isak búinn í aðgerð Fagnaði titli Liverpool sem óður maður um alla borg „Allir virðast elska hann“ „Þetta mun ekki buga okkur“ Guardiola mun vigta leikmenn Man City eftir jólin „Ef þið væruð Antoine Semenyo, hvert mynduð þið fara?“ Sjáðu mörkin: Rogers sá um Manchester United Óttast að Isak hafi fótbrotnað Tvenna frá Rogers tryggði Villa sigur gegn Manchester United Fimmta sinn sem Arsenal er á toppnum um jólin: Unnu ekki titilinn í fyrstu fjögur skiptin „Viljum við að okkar verði minnst fyrir að vera skræfur?“ „Ef dómarinn hefði sinnt sínu starfi almennilega hefði Romero ekki fengið spjald“ Sjá meira