Enski boltinn

Watkins virðist vilja fara frá Aston Villa

Andri Broddason skrifar
Ollie Watkins hefur verið einn mikilvægasti leikmaður Aston Villa síðan hann gekk til félagsins árið 2020.
Ollie Watkins hefur verið einn mikilvægasti leikmaður Aston Villa síðan hann gekk til félagsins árið 2020. Alessandro Sabattini/Getty Images

Ýmsar getgátur eru um framtíð Ollie Watkins hjá Aston Villa en hann var ekki í leikmannahóp liðsins í fyrsta deildarleiknum. Al-Hilal í Sádí-Arabíu hefur mikinn áhuga á enska framherjanum.

Í viðtali eftir fyrsta deildarleikinn þar sem Aston Villa steinlá gegn Brighton á útivelli var Unai Emery, þjálfari liðsins, spurður út í stöðu Ollie Watkings og hvort hann yrði áfram hjá félaginu. Emery vildi ekkert gefa upp og sagði að hann þyrfti að svara fyrir sjálfan sig.

Svo virðist sem Ollie Watkins hafi tjáð stjórnendum Aston Villa að hann vilji fara frá félaginu. Sádí-arabíska félagið Al-Hilal hefur gert fjögur tilboð í Watkins en Villa hefur hafnað þeim öllum. Þrátt fyrir það virðist félagið enn hafa áhuga á leikmanninum og er ekki reiðubúið að gefast upp.

Eftir að Watkins snéri aftur eftir heimsmeistaramótið í fótbolta hefur hann æft einn. Svo virðist sem Watkins vilji fara frá félaginu en hann hefur ekkert tjáð sig við almenning um málið.

Ollie Watkins er 30 ára gamall og hefur verið leikmaður Aston Villa síðan árið 2020. Hann hefur leikið 280 leiki fyrir félagið og skorað í þeim 108 mörk og verið einn mikilvægasti hlekkur liðsins sem vann fyrsta Evrópubikar félagsins í 30 ár.

Það er súrt fyrir stjórn Aston Villa að missa svona mikilvægan leikmann á þennan hátt enda hefur Watkins verið einn mikilvægasti leikmaður liðsins. Einnig er þetta sárt fyrir Emery þar sem auðvelt og þægilegt er að vinna með Watkins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×