Enski boltinn

Efast um Iraola: „Hvar eru stóru strákarnir“

Sindri Sverrisson skrifar
Andoni Iraola fékk enga draumabyrjun sem stjóri Liverpool en þó stig gegn Newcastle.
Andoni Iraola fékk enga draumabyrjun sem stjóri Liverpool en þó stig gegn Newcastle. Samsett/Getty/Sýn

Bjarni Guðjónsson auglýsir eftir knattspyrnustjórum sem bera með sér að vera meiri foringjar en þeir sem nú starfa í ensku úrvalsdeildinni. Hann efast þannig um að Andoni Iraola hafi þau persónueinkenni sem til þurfi til að stýra stjörnuleikmönnum Liverpool.

Í Sunnudagsmessunni á Sýn Sport í gær var meðal annars rætt um Liverpool-liðið sem hóf sitt fyrsta tímabil undir stjórn Iraola á því að ná naumlega í 2-2 jafntefli við Newcastle á útivelli.

„Ég því miður óttast pínulítið bras,“ sagði Bjarni um Liverpool og hélt svo áfram: „Eitt af því sem ég held að þú þurfir sem stjóri, sérstaklega í Englandi þar sem eru búningsherbergi full af stórum og miklum karakterum, þá held ég að þú þurfir stóra og sterka karaktera á móti þeim,“ sagði Bjarni.

Klippa: Messan - Umræða um Liverpool

Hann nefndi þannig Jürgen Klopp, Pep Guardiola og José Mourinho í þessu sambandi.

„Hverjir eru stórir í deildinni núna? Hvar eru stóru strákarnir?“ spurði Bjarni og var fátt um svör.

„Hvorugur þessara stjóra sem við horfðum á í dag finnst mér hafa einhverja sérstaka áru yfir sér,“ bætti Bjarni við og átti þá við Iraola og Þjóðverjann Matthias Jaissle sem tók við Newcastle í sumar.

Kjartan Henry Finnbogason spurði svo Bjarna hvað hann ætti við með að Liverpool yrði í „brasi“. Hvort það þýddi baráttu um Evrópusæti eða hvað?

„Góðu fréttirnar fyrir Liverpool eru að City mun elta Arsenal en svo er hætt við að þetta verði einhver grautur þar á eftir,“ sagði Bjarni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×