„Sú afsökunarbeiðni mun aldrei koma af vörum mínum“ Máni Snær Þorláksson og Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifa 13. febrúar 2023 20:11 Halldór Benjamín Þorbergsson er framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Vísir/Arnar Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins segir fordæmalausa stöðu vera komna upp á íslenskum vinnumarkaði. Hann ætlar ekki að biðja formann Eflingar afsökunar þrátt fyrir að hún hafi krafist þess í dag.
Fyrr í dag féll úrskurður í Landsrétti sem kvað á um að Eflingu bæri ekki skylda til að afhenda kjörskrá sína. Rætt var við Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóra SA, í kvöldfréttum Stöðvar 2 um vendingar dagsins. Hann segir túlkun vinnulöggjafarinnar vera í miklu uppnámi eftir úrskurðinn en að mikilvægt sé að halda því til haga um hvað verið var að úrskurða. „Eftir sem áður er gild miðlunartillaga komin fram sem ríkissáttasemjari lagði fram. Úrskurðurinn sem var kveðinn upp í Landsrétti í dag kveður hins vegar á um að ríkissáttasemjara er ekki heimilt að krefjast með beinni aðfarargerð aðgangs að þessari sömu kjörskrá. Þannig nú er komin upp sú skrýtna staða að Efling, áfram í þrákelkni sinni, neitar að afhenda kjörskrá, neitar að taka þátt í að atkvæðagreiðslan geti farið fram um miðlunartillöguna. En eftir sem áður er miðlunartillagan gild og báðum aðilum, það er að segja Eflingu og Samtökum atvinnulífsins, ber lögum samkvæmt að láta fara fram atkvæðagreiðslu um þessa miðlunartillögu. Þannig ég segi við þig að það er komin upp fordæmalaus staða á íslenskum vinnumarkaði.“ Klippa: Biður Sólveigu Önnu ekki afsökunar Halldór veltir því fyrir sér hvaða afleiðingar úrskurður Landsréttar geti haft á miðlunartillögur ríkissáttasemjara í framtíðinni. „Það er hægt að orða það með þeim hætti að það er í raun öðrum aðilanum, eða báðum eftir atvikum, í sjálfsvald sett hvort þau taki þátt við framkvæmd atkvæðagreiðslu miðlunartillögu,“ segir hann. „Þá erum við komin í þá stöðu að aðilar hafa sjálfdæmi um það hvort þau hlíta lögum í landinu. Sumum finnst það kannski góð hugmynd, mér finnst hún afleit, og við þessa stöðu verður illa unað.“ Fordæmalaus staða Úrskurði Landsréttar verður ekki skotið til Hæstaréttar vegna samkomulags sem Efling og ríkissáttasemjari gerðu áður en úrskurðurinn var kveðinn upp. Halldór segir að þar séu um að ræða samkomulag sem SA eiga enga aðild að. Aðalatriðið sé hins vegar það að héraðsdómur úrskurðaði um lögmæti miðlunartillögunar, sá úrskurður standi enn óhaggaður. „En eftir stendur þetta: Efling neitar að taka þátt í samstarfi um framkvæmd atkvæðagreiðslu um miðlunartillöguna,“ segir Halldór. „Þá er komin upp sú fordæmalausa staða að á meðan þau tefja þessa atkvæðagreiðslu eru þau að beita verkfallsvopninu grimmt. Núna gegn Fosshótelum og Íslandshótelum en strax í þessari viku á miðvikudag gagnvart fleiri hótelkeðjum og Olíudreifingu og Samskipum. Þannig í raun, eins og við nefndum fyrir nokkrum vikum síðan, er Efling með fordæmalausum hætti að hagnast og styrkja stöðu sína með því að beita ólögmætum aðgerðum.“ Sannfærður um að það takist að leysa úr deilunni „Koma tímar, koma ráð og úrræðagott fólk finnur alltaf lausnir á öllum vandamálum,“ segir Halldór þegar hann er spurður hvort það sé hægt að gera eitthvað í þessari stöðu. „Aðalatriðið er að anda með nefinu og sýna stillingu.“ Hann er sannfærður að það takist að leysa úr þessari deilu, vonandi áður en langt um líður: „Vegna þess að kostnaðurinn fyrir samfélagið er geigvænlegur, hér verður allt komið í hnút á næstu dögum, og ég spái því að samfélagið eins og við þekkjum það verði komið í algjöran hnút um eða eftir helgi.“ Ætlar ekki að biðja Sólveigu afsökunar Þegar úrskurður Landsréttar var kveðinn upp fyrr í dag birti Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hún fagnaði niðurstöðunni. Í færslunni sagði hún Halldór skulda sér afsökunarbeiðni. „Hann hefur stigið ítrekað fram í fjölmiðlum og ráðist að heiðri mínum með grófum og óforskömmuðum hætti. Hann skuldar mér afsökunarbeiðni. Ég býst svo sem ekki við því að hann færi mér hana. Ef hann væri sómakær maður myndi hann sennilega gera það,“ sagði hún svo í samtali við fréttastofu um málið. Ljóst er að Sólveig mun ekki fá umrædda afsökunarbeiðni frá Halldóri. Hann segir Sólveigu sannarlega brjóta lög með því að neita að hlíta dómi héraðsdóms. Því sér hann enga ástæðu til að biðja hana afsökunar. „Sú afsökunarbeiðni mun aldrei koma af vörum mínum“
Kjaraviðræður 2022-23 Kjaramál Stéttarfélög Tengdar fréttir Fullnaðarsigur Eflingar í félagatalsdeilu við sáttasemjara Landsréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Efling þurfi ekki að afhenda ríkissáttasemjara félagatal sitt. Þetta staðfestir lögmaður Eflingar í samtali við fréttastofu. 13. febrúar 2023 15:30 Væri lágkúrulegt ef sáttasemjari færi með málið til Hæstaréttar Formaður Eflingar er í skýjunum með sigur í deilu sinni við ríkissáttasemjara sem krafðist að fá félagatal stéttarfélagsins afhent. Hún trúir ekki öðru en að sáttasemjari stígi loks til hliðar svo hægt verði að setjast að samningaborðinu og semja um Eflingarsamning fyrir Eflingarfólk. 13. febrúar 2023 16:38 Aðalsteinn vill stíga til hliðar í deilu SA og Eflingar Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari hefur lagt til við félags- og vinnumarkaðsráðherra að hann stígi til hliðar sem sáttasemjari í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Hann segir persónuna alltaf bera að víkja fyrir málefninu. 13. febrúar 2023 17:13 Mest lesið Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Innlent Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Innlent Rukka erlenda nemendur um milljónir Innlent Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Erlent Fleiri fréttir Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum „Séum tilbúin þegar og ef þessi veruleiki birtist okkur“ Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Sjá meira
Fullnaðarsigur Eflingar í félagatalsdeilu við sáttasemjara Landsréttur hefur komist að þeirri niðurstöðu að Efling þurfi ekki að afhenda ríkissáttasemjara félagatal sitt. Þetta staðfestir lögmaður Eflingar í samtali við fréttastofu. 13. febrúar 2023 15:30
Væri lágkúrulegt ef sáttasemjari færi með málið til Hæstaréttar Formaður Eflingar er í skýjunum með sigur í deilu sinni við ríkissáttasemjara sem krafðist að fá félagatal stéttarfélagsins afhent. Hún trúir ekki öðru en að sáttasemjari stígi loks til hliðar svo hægt verði að setjast að samningaborðinu og semja um Eflingarsamning fyrir Eflingarfólk. 13. febrúar 2023 16:38
Aðalsteinn vill stíga til hliðar í deilu SA og Eflingar Aðalsteinn Leifsson ríkissáttasemjari hefur lagt til við félags- og vinnumarkaðsráðherra að hann stígi til hliðar sem sáttasemjari í deilu Eflingar og Samtaka atvinnulífsins. Hann segir persónuna alltaf bera að víkja fyrir málefninu. 13. febrúar 2023 17:13