Þórður Snær segist ekki lengur geta setið undir óhróðri Páls Jakob Bjarnar skrifar 9. maí 2022 12:24 Þórður Snær segist ekki hafa viljað gefa Páli og ranghugmyndum hans vægi en eftir að meginstraumsmiðlar fóru að gefa kenningum hans gaum hljóti hann að bregðast við. aðsend/fjölbraut í Garðabæ Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans og Arnar Þór Ingólfsson ætla að stefna Páli Vilhjálmssyni bloggara og framhaldsskólakennara fyrir meiðyrði.
Páll greinir sjálfur frá þessu í bloggpistli sem birtist í morgun þar sem hann segist ekki geta beðist afsökunar á ummælum sínum um þá Þórð og Arnar, því þau séu sannleikanum samkvæmt. Ummælin sem um ræðir eru eftirfarandi: „Arnar Þór Ingólfsson og Þórður Snær Júlíusson, blaðamenn á Kjarnanum, […] eiga aðild, beina eða óbeina, að byrlun Páls skipstjóra Steingrímssonar og stuldi á síma hans.“ Páll segir að þetta sé óumdeilanlegt, þeir hljóti að vera aðilar því þeir séu sakborningar í rannsókn Páleyjar Borgþórsdóttur lögreglustjóra á Norðurlandi eystra í máli sem vakið hefur nokkra athygli og snýst um fréttaflutning af hinni svokölluðu Skæruliðadeild Samherja og svo því að eitrað hafi verið fyrir Páli Steingrímssyni skipstjóra hjá Samherja og stuldi á síma hans. „Glæpir voru framdir og blaðamenn eru sakborningar. Það er enginn hugarburður heldur grjótharðar staðreyndir,“ segir Páll sem telur blaðamenn litla vini tjáningarfrelsisins og að líklegur kostnaður fyrir sig sé 1 til 1,5 milljón króna. En, eins og Páll orðar það; illa sé fyrir manni komið sem fargar sannleikanum. Staðhæfing sem á sér enga stoð Þórður Snær telur hér ekki standa stein yfir steini, í samtali við Vísi. Hann hefur látið eitt og annað yfir sig ganga úr þessari áttinni en nú sé komið gott „Frá 10. nóvember 2021 hefur Páll Vilhjálmsson skrifað linnulaust á bloggsíðu sína um samsæriskenningu sem snýr meðal annars að okkur Arnari. Ég hef látið þetta yfir mig ganga vegna þess að ég vil ekki gefa Páli Vilhjálmssyni og ranghugmyndum hans vægi.“ En viðtöl við Pál í meginstraumsfjölmiðlum breyttu þeirri stöðu, að sögn Þórðar Snæs. „Þar sem látið er eins og að samsæriskenningar hans séu raunveruleiki. Það breytti þeirri skoðun minni. Þar fékk málflutningur hans yfirbragð eðlilegrar þjóðmálaumræðu. Þar vísa ég sérstaklega í Dagmál á mbl.is þann 15. nóvember 2021 þar sem Páll fékk að rekja kenningar sínar óáreittur í fjóra og hálfa mínútu, og viðtals í einum vinsælasta morgunþætti í íslensku útvarpi, Bítinu á Bylgjunni, þann 16. febrúar 2022, þar sem hann rakti kenningu sína í löngu máli. Viðtalið er rúmlega 16 mínútna langt.“ Ummælin sem um ræðir segir Þórður Snær þess eðlis að ekki sé hægt að sitja undir slíku, svo alvarleg eru þau. „Staðhæfing um staðreynd þess efnis að við höfum framið alvarleg hegningarlagabrot. Staðhæfingin á sér enga stoð í raunveruleikanum og engar grunsemdir eru um að við höfum framið slík brot.“ Blaðamenn verða að geta varið sig Þórður Snær segir að Páli hafi verið gefinn kostur á að viðurkenna að ummælin væru röng og biðjast afsökunar á þeim án þess að hann yrði fyrir nokkrum kostnaði með kröfubréfi dagsettu 19. apríl. „Þar var honum einnig gerð grein fyrir því að ef hann yrði ekki við þeim kröfum yrði höfðað dómsmál á hendur honum til ómerkingar á ummælunum þar sem ítrustu kröfur yrðu gerðar á hendur honum. Þegar Páll óskaði eftir viðbótarfresti til að ráðfæra sig við lögmann var hann góðfúslega veittur. Sá frestur rann út í dag. Páll birti niðurstöðu sína á bloggsíðu sinni í gærmorgun. Hann ætlar ekki að draga hin röngu ummæli til baka né biðjast afsökunar á þeim.“ En skýtur það ekki skökku við að blaðamenn, sem samkvæmt siðareglum ber að taka sér varðstöðu um tjáningarfrelsið, séu að fara í meiðyrðamál? „Blaðamenn verða að geta varið sig, og trúverðugleika sinn, þegar á þá eru bornar ótrúlegar ásakanir sem eiga sér enga stoð í raunveruleikanum. Það á ekki að vera eðlilegur fylgifiskur starfsins að sætta sig við að vera ásakakur um hegningarlagabrot sem engin fótur er fyrir. Í málfrelsinu felst enda ekki frelsi til að segja hvað sem er um hvern sem er hvar sem er. Þess vegna munum við stefna Páli.“
Samherjaskjölin Lögreglumál Fjölmiðlar Dómsmál Tjáningarfrelsi Samfélagsmiðlar Mest lesið Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Stefna Trump vegna sölu á samfélagsmiðlafærslum hans Erlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Telur mikilvægi Viðreisnar aukast ef viðræðum verður hafnað Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Sjá meira