Hrundi niður stiga á skemmtistað Stefán Ó. Jónsson skrifar 26. júlí 2019 06:39 Margt var um að vera í miðborginni í gærkvöldi og nótt. Vísir/vilhelm
Ellefu einstaklingar voru handteknir á höfuðborgarsvæðinu í nótt vegna margvíslegra lögbrota, en lögreglan segir að alls hafi 66 mál ratað inn á hennar borð frá klukkan 17 síðdegis í gær til klukkan 5 í morgun. Til að mynda reyndi maður, vopnaður hnífi, að brjótast inn í húsnæði í miðborginni skömmu eftir miðnætti. Lögreglan greinir ekki frá því hvað vakti fyrir manninum eða hvort einhver hafi verið innandyra, aðeins að maðurinn hafi verið handtekinn. Lögreglan segist einnig hafa aðstoðað mann sem slasaðist á skemmtistað í miðborginni um svipað leyti. Hann á að hafa hrunið niður stiga og fengið skurð á höfuðið. Því hafi hann verið fluttur með sjúkrabíl á slysadeild þar sem hlúð hefur verið að sárum hans. Þá fékk lögreglan jafnframt tilkynningar um innbrot í bifreið og slagsmál í miðborginni á áttunda tímanum í gærkvöldi. Ekki fylgir þó sögunni hvort einhver hafi verið handtekinn í tengslum við þau mál eða hvort nokkur liggi undir grun. Tveir einstaklingar voru þó staðnir að búðarhnupli í gærkvöldi; annar í Garðabæ en hinn í Breiðholti. Þá var karlmaður handtekinn í Kópavogi á fimmta tímanum í morgun, en hann er grunaður um að hafa reynt að brjótast inn.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent Mikilvægt að styggja fólk ekki með orðalagi Innlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent „Burt með bölvað ofstækið“ Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira