Vændiskaupandi handtekinn í miðborginni Stefán Ó. Jónsson skrifar 18. júlí 2019 07:17 Sérstök eining hefur verið starfandi í tvö ár hjá lögreglunni til að rannsaka mansal og vændi. Vísir/Getty
Lögreglan handtók grunaðan vændiskaupanda í miðborginni í nótt. Að sögn lögreglunnar hafði henni borist tilkynning á þriðja tímanum vegna „óvelkomins manns,“ án þess þó að útskýra hvar hann var óvelkominn eða hver tilkynnti um ferðir hans. Lögreglan skarst í leikinn og handtók manninn á vettvangi vegna gruns um að hann hafi keypt vændi. Maðurinn á auk þess að hafa hunsað fyrirmæli lögreglunnar og verið með fíkniefni í fórum sínum. Hann var fluttur á lögreglustöð þar sem hann hefur mátt verja nóttinni og ætla má að hann verði yfirheyrður í dag. Að öðru leyti voru það einna helst umferðarlagabrot sem rötuðu inn á borð lögreglunnar í nótt. Flestir ökumannanna sem komust í kast við lögin eru grunaðir um að hafa verið vímaðir undir stýri. Þá brutust út slagsmál í Hlíðahverfi Reykjavíkur skömmu fyrri klukkan 23 í gærkvöld. Einn maður var handtekinn vegna hótana og fluttur á lögreglustöð þar sem af honum var tekin skýrsla. Að skýrslutöku lokinni fékk hann þó að halda til síns heima.
Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Innlent Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Erlent Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Innlent Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Innlent Hafi loks slíðrað sverðin Innlent „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Fleiri fréttir Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Sjá meira