Lögregla rannsakar eldsupptök við Þingvallavatn Kristín Ólafsdóttir skrifar 28. ágúst 2018 11:23 Tvö hús brunnu til grunna í gær, annað um 150 fermetrar og hitt um 20 fermetrar. Vísir/Jóhann k. Jóhannsson
Upptök elds sem kviknaði í sumarhúsum við Þingvallavatn í gær eru ókunn. Lögregla hefur formlega tekið við rannsókn á vettvangi. Að sögn varðstjóra hjá Brunavörnum Árnessýslu gekk slökkvistarf vel í gær miðað við umfang eldsins. Pétur Pétursson hjá Brunavörnum Árnessýslu segir að slökkvistarfi sé lokið á vettvangi. Slökkviliðsmenn voru þó að störfum á svæðinu fram eftir kvöldi í gær en slökkva þurfti aftur í glóð í brunarústunum, sem Pétur segir ekki óvenjulegt. „Þetta gekk mjög vel, í rauninni, hvað varðar efni og umfang. Það hefðu svo sannarlega miklu stærri og meiri hlutir getað gerst hvað gróðurinn varðar, þó að það hafi auðvitað orðið gríðarlegt tjón á húsunum,“ segir Pétur. Lögregla tók formlega við vettvangi brunans í gær. Oddur Árnason, yfirlögregluþjónn á Suðurlandi, segir í samtali við Vísi að lögregla sé nú við störf á svæðinu og rannsaki eldsupptök. Ekkert sé þó hægt að gefa uppi um þau að svo stöddu. Þá hefur eigendum húsanna verið tilkynnt um tjónið. Tvö hús brunnu til grunna við Þingvallavatn eftir að eldur kom upp í þeim í hádeginu í gær. Um var að ræða eitt 150 fermetra hús og annað um 20 fermetra stórt.Slökkvistarf gekk vel á vettvangi í gær.Vísir/jóhann k. jóhannsson
Tengdar fréttir Sumarbústaður við Þingvallavatn alelda Eldur kominn í gróður. 27. ágúst 2018 13:03 Tvö hús brunnin til grunna við Þingvallavatn Eldur kom upp í húsunum í hádeginu í dag. 27. ágúst 2018 14:56 Mest lesið Kílómetragjaldið hækkar Innlent Eftirförin endaði með hvelli Innlent Ísland á Ameríkukorti Trumps Erlent „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Innlent Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Innlent „Hvar ætla þau þá að spara?“ Innlent Klórar sér í kollinum Innlent „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Innlent Fær að setja þessar fasteignir á sölu Innlent Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Innlent Fleiri fréttir „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Ökumaður bifhjóls flaug út af Kvartmílubrautinni Gríðarleg aukning í sölu á fánastöngum Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á hálendið Bandaríkjamenn sendu ekki skip til Íslands Keyrði utan í minnst fjórar bifreiðar og þar af tvo lögreglubíla Sjá meira
Tvö hús brunnin til grunna við Þingvallavatn Eldur kom upp í húsunum í hádeginu í dag. 27. ágúst 2018 14:56