Lögreglustjóri ákærður fyrir að falast eftir kynlífi með táningsstúlku Kristín Ólafsdóttir skrifar 7. janúar 2018 16:45 Saksóknari segir málið einkar ógeðfellt. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Vísir/Getty
Michael Diebold, lögreglustjóri í Pennsylvaníu-ríki í Bandaríkjunum, var handtekinn á föstudag vegna gruns um að hafa mætt til fundar við 14 ára stúlku, sem reyndist þó vera annar lögregluþjónn, til að stunda með henni kynlíf. Diebold var handtekinn á bensínstöð þar sem hann hafði mælt sér mót við stúlkuna. Stúlkan reyndist vera tálbeita en að skilaboðunum stóð lögregluþjónn sem starfar innan sérstakrar deildar hjá ríkissaksóknara Pennsylvaníu. „Þetta mál er einkar ógeðfellt vegna þess að gerandinn er opinber embættismaður, sem sór þess eið að vernda og þjóna samfélaginu,“ segir í tilkynningu á heimasíðu ríkissaksóknara Pennsylvaníu, Josh Shapiro. Þá var Diebold fullkomlega meðvitaður um aldur stúlkunnar sem hann taldi sig eiga í samskiptum við. Hann bað stúlkuna um myndir af henni á nærfötum einum fata og vildi ólmur hitta hana til að stunda með henni kynlíf. Diebold er þekktur í heimabæ sínum en hann missti handlegg í flugeldaslysi í júní síðastliðnum. Þá voru fréttir fluttar af brúðkaupi Diebold og eiginkonu hans en þau gengu í hjónaband aðeins átján dögum eftir slysið. Þá fjölluðu fréttaveitur á borð við hina bandaríku Associated Press um bataferli Diebold.
Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Selenskí kíkti á klakann Gaf Harp og tveimur öðrum ráðgjöfum milljónir í jólagjöf Leggur stefnu AfD að jöfnu við þjóðernishreinsanir Farage kemur frönskum skoðanabróður í klandur Banna breskum þingmönnum að koma til Ísraels Haraldur Noregskonungur borinn til grafar Rétta yfir rússneskum skipstjóra sem sleit sæstrengi við Finnland Leita enn að Renoir-þjófunum Bannar innflutning á kanadískum vörum Réðust á fleiri olíuflutningaskip Skutu tugum eldflauga og dróna að borgum Sádi-Arabíu Töluðu saman í klukkutíma Handtaka grunaðan spellvirkja í Þýskalandi Fordæma útförina sem „Slátrarinn“ fékk í Serbíu Grípa saman til aðgerða gegn ísraelskum landtökumönnum Allir þeir látnu í bílum sem flugvélin rann á Dýrmætum listaverkum stolið af safni Renoir Starfsmenn í verkfall eftir heimsókn trúarhóps Kim fjölgar herskipum sínum Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Sjá meira