Fimmtíu og tvær kærur gefnar út í átaki lögreglunnar gegn ólöglegri atvinnustarfsemi Birgir Olgeirsson skrifar 28. nóvember 2017 18:20 200 fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu og 900 starfsmenn þeim tengdum hafa verið tekin til skoðunar í átaki lögreglunnar. Vísir/Ernir
Átak lögreglu á höfuðborgarsvæðinu og á Suðurnesjum gegn ólöglegri atvinnustarfsemi hefur leitt til þess að 52 kærur hafa verið gefnar út. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu greinir frá þessu á Facebook en þar segir að á um það bil sjö vikna tímabili hafa mál nærri 200 fyrirtækja á höfuðborgarsvæðinu og 900 starfsmanna þeim tengdum verið tekin til skoðunar. Lögreglan segir að aðallega sé um að ræða brot á lögum um atvinnuleyfi. 20 fyrirtæki og 41 einstaklingur, 37 karlar og 4 konur hafa verið kærð fyrir samtals 52 brot. Í um helmingi tilvika hafa heimsóknir Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu beinst að veitinga- og skemmtistöðum í umdæminu. Nálægt fimmtungur eftirlitsins hefur snúið að hótelum og heimsóknir lögreglunnar á byggingarsvæði eru ámóta margar. Einnig hefur verið farið í margar verslanir sömu erinda. Þeir sem lögreglan hefur haft tal af, eða afskipti, eru langflestir á aldrinum 20-39 ára. Við eftirlit lögreglu er einnig kannað hvort dvalarleyfi hjá viðkomandi sé fyrir hendi og að staðið sé við lögbundnar skatt- og gjaldgreiðslur eftir því sem við á.
Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Tekinn úr umferð vegna ótrúlegrar brotahrinu Góðu fréttirnar þær að innlend verðbólga sé á undanhaldi Druslur ganga í fjórtánda sinn: „Aldrei verið meiri þörf á því heldur en núna“ Tveir af þremur í fangelsi vegna eldri dóma Air China setur beint flug í sölu Verðbólgan eykst enn og borgarstjóri boðar aðgerðir gegn innbrotum Kynna nýtt varanúmer fyrir Neyðarlínuna Vara við hviðum sunnan við Vatnajökul Pallborðið: Nei eða já? Hvalavinir lýsa eftir týndum skýrslum Leggur til breytingar á útivistartíma barna Mikil óhreinindi í ólöglegum peptíðum Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Austurfrétt liggur niðri vegna netárásar Tekið fram að svipting starfsleyfis eigi ekki að vera refsing Umræðan hafi „aftur og aftur snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga“ Stúlkan fannst heil á húfi „Við hlaupum bara hraðar eftir því sem gestunum fjölgar“ Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Sjá meira