Tæknideild lögreglu útilokar að ekið hafi verið á hjólreiðamanninn sem fannst meðvitundarlaus Birgir Olgeirsson skrifar 23. maí 2017 17:15 Maðurinn var á leið niður bratta brekku á Nesjavallaleið vestan megin við Dyrfjöll. Loftmyndir ehf. „
Hann er alvarlega slasaður,“ segir Þorgrímur Óli Sigurðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn á Suðurlandi, um hjólreiðamanninn sem fannst meðvitundarlaus á Nesjavallaleið um klukkan 14 í gær. Hjólreiðamaðurinn var fluttur á Landspítalann í Fossvogi eftir að vegfarendur höfðu komið að manninum og gert lögreglu viðvart. Þorgrímur segir lögreglu vita lítið um tildrög slyssins, en tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hafi útilokað að ekið hafi verið á hjólreiðamanninn. „Við vitum ekki um aðdragandann annað en að hann er að fara þarna niður bratta brekku, sem er síðasta brekkan sem er vestan megin við Dyrfjöll,“ segir Þorgrímur Óli. Hann segir aðstæður á vettvangi hafa verið góðar, þurrt, níu stiga hiti og hægur vindur. Þó ekki sé vitað hvað hjólreiðamaðurinn lá lengi meðvitundarlaus í götunni þá telur Þorgrímur Óli að það hafi ekki verið langur tími, því það sé alltaf einhver á ferðinni á þessum slóðum. Hann telur hjólið sjálft ekki hafa verið svo illa farið, en það fannst vinstra megin á veginum en hjólreiðamaðurinn var skammt frá. Maðurinn er erlendur ferðamaður en lögreglan ætlar ekki að gefa upp þjóðerni hans að svo stöddu. Sendiráð mannsins hefur gert aðstandendum hans viðvart. Lögreglan á Suðurlandi biður alla þá sem gætu haft upplýsingar um málið að hafa samband í síma 444-2000.
Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Innlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira