Tveir menn í haldi grunaðir um að smygla nokkrum kílóum af sterkum fíkniefnum Birgir Olgeirsson skrifar 4. maí 2017 13:01 Földu efnin í bíl sem komið var með til landsins með Norrænu í síðustu viku. Vísir/GVA
Tveir erlendir karlmenn voru úrskurðaðir í tveggja vikna gæsluvarðhald á föstudag grunaðir um að smygla talsverðu magni af sterkum fíkniefnum til landsins. Fréttastofa Ríkisútvarpsins greindi fyrst frá málinu en Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn á höfuðborgarsvæðinu segir í samtali við Vísi að ekki sé búið að greina fíkniefnin en um sé að ræða nokkur kíló af einhverju sem lögreglu grunar að séu örvandi efni. Efnunum var smyglað til landsins í bíl sem annar maðurinn kom með til landsins með skipinu Norrænu síðastliðið þriðjudagskvöld. Grímur vill ekki gefa upp í samtali við Vísi hvernig lögreglan komst á snoðir um efnin, en maðurinn hélt leið sinni áfram frá Seyðisfirði til höfuðborgarsvæðisins þar sem hann var handtekinn ásamt hinum manninum, sem hafði komið til landsins nokkru áður, og hald lagt á fíkniefnin. Grímur segir rannsókn lögreglu enn í fullum gangi og lítið hægt að tjá sig um stöðu mála. RÚV segir bílinn hafa verið settan um borð í Norrænu í Hirtshals á Jótlandi í Danmörku. Rannsóknardeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, tollgæsla og lögregla á Austurlandi og ríkislögreglustjóri komu að rannsókn þessa máls að sögn Gríms.
Mest lesið Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent Suðaustan stormur og gul viðvörun Veður Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Vill nýjan Úkraínuforseta Erlent Hútar sagðir ábyrgir fyrir árás á flugvöll Erlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Útskrifuð af sjúkrahúsi og send aftur í fangelsið Erlent Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Innlent Fleiri fréttir Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Sjá meira