Fréttir
14 15 16 17 18 19 20 21 22 … 334 ›
Væta víðast hvar og hiti að sautján stigum Dálítil lægð gengur nú norður yfir landið og fylgir henni væta með köflum í flestum landshlutum. Hiti á landinu verður átta til sautján stig og hlýjast á Austurlandi. Veður 12.6.2025 07:45
Bandarískar herstöðvar verða reistar í Danmörku Stór meirihluti á danska þinginu samþykkti í gær að rýmka rétt Bandaríkjanna til hernaðarlegrar viðveru í Danmörku. Bandaríkjamenn munu fara með lögsögu yfir hermönnum sínum í Danmörku og hafa aðgang að þremur flugherstöðvum á Jótlandi. Erlent 12.6.2025 06:51
Frekar ætti að styrkja forvarnir en reisa minnisvarða um þolendur ofbeldis Samtökin Stígamót, Hagsmunasamtök brotaþola og W.O.M.E.N samtök kvenna af erlendum uppruna leggjast öll gegn því að reistur verði minnisvarði fyrir þolendur kynferðislegs ofbeldis. Tillögu Vinstri grænna um minnisvarðann hefur nú verið vísað til borgarráðs til endanlegrar afgreiðslu. Innlent 12.6.2025 06:19
Hávaðaútköll og maður með ólæti á dvalarheimili Lögregla á höfuðborginni þurfti að sinna nokkrum hávaðaútköllum í gærkvöldi og þá var maður í miðborg Reykjavíkur handtekinn vegna tveggja líkamsárása með stuttu millibili. Innlent 12.6.2025 06:13
Ró að færast yfir LA eftir fjögur hundruð handtökur Lögregluyfirvöld í Los Angeles hafa handtekið nærri fjögur hundruð manns vegna mótmælanna sem fram hafa farið í borginni síðan á laugardag. Ró er að færast yfir borgina. Erlent 12.6.2025 00:05
Ekki tíminn fyrir stjórnarandstöðu til að stunda tafarleiki Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir að nú á tímum, þegar fólk sé óttaslegið og reitt vegna heimsástandsins, sé ekki tíminn fyrir stjórnarflokka til að reisa skýjaborgir eða háleitar væntingar. Þá sé ekki tíminn fyrir stjórnarandstöðu að stunda tafaleiki til að hægja á framfaramálum sem njóti stuðnings þjóðarinnar. Innlent 11.6.2025 23:14
„Óásættanlegt“ að ofbeldi fái ekki sömu athygli og veiðigjöld Þingmaður framsóknar segir óásættanlegt að ofbeldi, sem börn landsins verði fyrir, fái ekki sömu athygli á Alþingi og mál eins og veiðigjaldafrumvarpið. Innlent 11.6.2025 22:31
Erlendir ríkisborgarar rúmlega helmingur atvinnulausra Atvinnuleysi minnkaði um 0,2 prósentustig milli mánaða og mældist atvinnuleysi 3,7 prósent í maímánuði, samkvæmt nýrri mánaðarskýrslu Vinnumálastofnunar. Um 54 prósent fólks á atvinnuleysisskrá eru erlendir ríkisborgarar. Forstjóri Vinnumálastofnunar segir erfiðara að koma erlendu fólki aftur í vinnu. Innlent 11.6.2025 22:21
Viktor Arman lést af slysförum á Esjunni Maðurinn sem fannst látinn í hlíðum Kistufells á Esjunni síðdegis í gær hét Viktor Arman Kambizson. Hann var 22 ára. Innlent 11.6.2025 22:00
„Fólk er í áfalli yfir þessu“ Fréttir af fyrirhuguðum breytingum hjá flugfélaginu Play voru áfall fyrir starfsfólk að sögn forseta Íslenska flugstéttafélagsins. Hann segir lagalega óvissu fylgja því að flugrekstur Play verði skráður í öðru landi og að fréttirnar hafi komið starfsfólki í opna skjöldu. Innlent 11.6.2025 21:49
Fjölmiðlafrumvarpið „ein allsherjarhefndarför gegn Morgunblaðinu“ Sigríður Á. Andersen þingmaður Miðflokksins segir frumvarp Loga Einarssonar menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra sem felur í sér breytingar á styrkjum til einkarekinna fjölmiðla hefndarför gegn Morgunblaðinu. Frumvarpið sé ekki til þess fallið að skila fé til skattgreiðenda heldur til að „smyrja því“ til annarra einkarekinna fjölmiðla. Innlent 11.6.2025 21:34
„Þingið hefur verið svipt aðhaldi sínu“ „Fjárlaganefnd var sniðgengin. Þingið hefur verið svipt aðhaldi sínu. Ráðherrar svara ekki í þingsal, heldur í útvöldum fjölmiðlum. Þetta eru ekki smávægileg frávik. Þetta eru alvarleg merki um að þingræðinu sé ekki sýnd tilhlýðileg virðing.“ Innlent 11.6.2025 19:55
Ógn loftslagsbreytinga við fæðuöryggi stórlega vanmetin Öfgakenndar hitabylgjur stuðla ekki aðeins að fjölgun dauðsfalla heldur geta þær valdið alvarlegum meðgönguvandamálum en yfirvísindaráðgjafi nýrrar evrópskrar nefndar, sem Katrín Jakobsdóttir veitir forystu, segir leiðtoga heimsins vanmeta þau áhrif sem loftslagsbreytingar komi til með að hafa á fæðuöryggi. Innlent 11.6.2025 19:48
Fastir á Keflavíkurflugvelli í þrjá daga án útskýringa Fjórir verkamenn frá Belarús sátu fastir á Keflavíkurflugvelli í þrjá daga eftir að hafa fengið synjun um að koma til landsins. Þeir segjast aldrei hafa fengið að vita hvers vegna þeim var haldið þar. Sá sem réði mennina í vinnu segir þá ekki einu sinni hafa getað keypt sér að borða. Innlent 11.6.2025 19:41
Hvalurinn kominn út á haf Háhyrningurinn sem strandaði í Grafarvogi í gærkvöldi er kominn út í haf og er frjáls ferða sinna. Hann var kominn út fyrir skerin við flæðarmálið um hálfsexleytið í dag, en björgunarmenn stugguðu við honum og fylgdu honum út fyrir grynningarsvæðið. Innlent 11.6.2025 19:04
Fastir í flugstöðinni í fjóra daga og Trump-Tesla í Keflavík Fjórir verkamenn frá Belarús sátu fastir á Keflavíkurflugvelli í fjóra daga eftir að hafa fengið synjun um að koma til landsins. Þeir segjast aldrei hafa fengið að vita hvers vegna þeim var haldið þar. Sá sem réði mennina í vinnu segir þá ekki einu sinni hafa getað keypt sér að borða. Innlent 11.6.2025 18:27
Sigurður Fannar játar að hafa banað dóttur sinni Sigurður Fannar Þórsson játar að hafa orðið tíu ára dóttur sinni að bana í Krýsuvík í fyrra. Aðalmeðferð í málinu fór fram í dag í Héraðsdómi Reykjaness fyrir luktum dyrum. Innlent 11.6.2025 18:12
Bein útsending: Eldhúsdagsumræður á Alþingi Almennar stjórnmálaumræður, svokallaðar eldhúsdagsumræður, fara fram á Alþingi í kvöld og hefjast klukkan 19:40. Innlent 11.6.2025 17:46
Máttu ekki tjalda á Arnarhóli Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í dag afskipti af ölvuðum einstaklingum við tjald á Arnarhóli. Innlent 11.6.2025 17:29
Sterametið mölbrotið í Leifsstöð: Lögðu hald á um 9 lítra af sterum og 44 þúsund töflur Aldrei hafa fleiri steratöflur verið haldlagðar við landamærin á Keflavíkurflugvelli heldur en árið 2024, sem mölbrýtur fyrri met. Framkvæmdastjóri Lyfjaeftirlitsins hefur áhyggjur af því að fleiri sækist í vefaukandi stera og segir of frjálslega talað um steranotkun á samfélagsmiðlum. Innlent 11.6.2025 17:18
Hæstiréttur staðfestir nauðgunardóm Najeb Hæstiréttur hefur staðfest fimm ára fangelsisdóm Najeb Mohammad Alhaj Husin, fyrrverandi starfsmanns grunnskóla í bæjarfélagi á Norðurlandi vestra, fyrir brot, þar á meðal nauðgun, gegn stúlku í unglingadeild skólans. Innlent 11.6.2025 16:57
Undirbúa flutning þúsunda til Guantánamo Ríkisstjórn Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, er byrjuð að undirbúa mögulegan flutning þúsunda erlendra manna sem eru í Bandaríkjunum ólöglega til Guantánamo á Kúbu. Meðal þeirra sem til stendur að senda eru hundruð manna frá Evrópuríkjum eins og Bretlandi, Ítalíu, Frakklandi, Þýskalandi og stendur ekki til að láta yfirvöld þar vita. Erlent 11.6.2025 16:50
Kolbrún svarar í engu kröfu um að hún skuldi afsökunarbeiðni Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir þingmaður Flokks fólksins lætur ekki ná í sig en Vísir hefur reynt að ná tali af henni núna í nokkra daga vegna umdeildra ummæla sem hún lét falla í síðustu viku. Innlent 11.6.2025 15:51
Súdanar flýja undan sveitum Haftars Forsvarsmenn hers Súdan segja hermenn hafa hörfað frá landamærum ríkisins við Egyptaland og Líbíu, eftir að vígahópar á vegum Khalifa Haftar í Líbíu gerðu árásir yfir landamærin, samhliða sveitum Rapid support forces, eða RSF, sem barist hafa gegn hernum í á þriðja ár. Erlent 11.6.2025 15:47
Vinnuslys við Suðurlandsbraut Einn var fluttur á sjúkrahús eftir vinnuslys á vinnusvæði á Suðurlandsbraut upp úr hádegi í dag. Dælubíll slökkviliðs og tveir sjúkraflutningabílar voru kallaðir út vegna slyssins. Innlent 11.6.2025 14:00
Fótboltagláp, ráfandi djammarar og nú fljúgandi nefhjól Rannsókn Rannsóknarnefndar samgönguslysa vegna nefhjóls lítillar flugvélar sem féll á Austurvöll í gær er á frumstigi. Íbúasamtökin Hljóðmörk segja um að ræða enn eitt dæmið þar sem öryggi fólks er ógnað í grennd við flugvöllinn. Eigendur flugvélarinnar harma atvikið. Innlent 11.6.2025 13:37
Stendur í stafni fyrir samevrópska nefnd WHO um lýðheilsu Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, bindur miklar vonir við að ný samevrópsk nefnd um lýðheilsu og loftslagsbreytingar muni koma að miklu gagni í baráttunni gegn loftslagsvánni. Áhrifin séu áþreifanleg nú þegar með hitabylgjum, þurrkum og flóðum. Innlent 11.6.2025 13:32
„Rasísk glæpamennska“ hélt áfram á Norður-Írlandi í nótt Sautján lögreglumenn særðust þegar óeirðarseggir köstuðu bensínsprengjum, múrsteinum og flugeldum í þá í ofbeldisfullum mótmælum sem héldu áfram á Norður-Írlandi, aðra nóttina í röð. Lögreglan lýsir mótmælunum sem „rasískri glæpamennsku“. Erlent 11.6.2025 13:05
Dagur gáttaður á Viðskiptaráði: „Leigufélögin eru ekki andskotinn sjálfur“ Viðskiptaráð hefur kvartað til ESA þar sem það telur niðurgreiðslur til óhagnaðardrifinna húsnæðisfélaga grafa undan samkeppni og jafnræði á húsnæðismarkaði. Dagur B. Eggertsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi borgarstjóri, segir ólíklegt að hagsmunir fyrirtækja séu fólgnir í verri húsnæðismarkaði. Innlent 11.6.2025 12:46
Stórauka þjónustu Strætó í lok sumars Strætó mun stórauka þjónustu sína en frá og með 17. ágúst 2025 verður umfangsmikil þjónustuaukning í almenningssamgöngum á höfuðborgarsvæðinu. Þessi aukning er hluti af Samgöngusáttmálanum og rekstraráætlun Strætó og skref í átt að nýju leiðaneti, sem á að taka gildi árið 2031. Innlent 11.6.2025 12:36