Mál skólameistara Borgarholtsskóla
Krefjast skýringa á boðuðum breytingum ráðherra á framhaldsskólum Formaður Skólameistarafélags Íslands segir vendingar síðustu daga hafa fengið skólameistara víðs vegar um landið til að íhuga stöðu sína. Félagið á fund með mennta- og barnamálaráðherra og krefst formaðurinn skýringa á boðuðum breytingum sem voru rökstuðningur ráðherrans fyrir því að auglýsa tvö embætti skólameistara laus til umsóknar. Innlent 6.12.2025 16:56
Alltaf ljóst að Flokkur fólksins væri veiki hlekkurinn Prófessor í stjórnmálafræði segir ekkert hafa komið upp sem breytir forsendum ríkisstjórnarsamstarfsins. Ljóst hafi verið fyrir að Flokkur fólksins væri veiki hlekkurinn í samstarfinu og að stjórnarandstaðan myndi reyna að notfæra sér það. Innlent 6.12.2025 13:30
„Aldrei heyrt aðra eins fjarstæðu á ævi minni“ Formaður Flokks fólksins furðar sig á því að lögmaður skólameistara Borgarholtsskóla vilji leiða sig og forsætisráðherra fyrir dóm í tengslum við þá ákvörðun menntamálaráðherra að auglýsa stöðu skólameistarans lausa til umsóknar. Innlent 5.12.2025 18:50
Einfaldlega tilviljun að Ársæll sé fyrstur í röðinni Mennta- og barnamálaráðherra segir tilviljun hafa ráðið því að skólastjóri Borgarholtsskóla hafi verið fyrstur í röð framhaldsskólastjóra að fá þau tíðindi að starf hans yrði auglýst. Hann hafnar því með öllu að ákvörðunin tengist Ingu Sæland eða gagnrýni skólastjórans. Hann þrái þvert á móti gagnrýni og hugmyndir. Innlent 5.12.2025 12:27
Vill leiða ráðherra og aðstoðarmannaskarann fyrir dóm Lögmaður Ársæls Guðmundssonar, skólameistara Borgarholtsskóla, hefur óskað eftir því að fá að leiða forsætisráðherra, félags- og húsnæðismálaráðherra og sex aðstoðarmenn ráðherra fyrir dóm sem vitni í svokölluðu vitnaleiðslumáli. Það er gert til þess að leita sönnunar um atvik í tengslum við ákvörðun menntamálaráðherra um að auglýsa embætti Ársæls laust til umsóknar. Innlent 5.12.2025 11:42
Hættuleg hegðun Eftir 40 ára farsælt starf með ungmennum fær Ársæll Guðmundsson skólameistari Borgarholtsskóla sparkið. Hann hefur helgað líf sitt að því að bæta líf ungs fólks og hvergi slegið af á sinni starfsævi, það gera hugsjónarmenn. Skoðun 5.12.2025 07:46
Eftiráskýringar ráðherra haldi engu vatni Ársæll Guðmundsson skólameistari Borgarholtsskóla segir það algjörlega ótvírætt að enginn nemandi hafi hætt í skólanum vegna skómálsins svokallaða. Skýringar ráðherra um kerfisbreytingar séu óskiljanlegar og gagnrýni Ársæls á stjórnvöld hafi legið ákvörðuninni til grundvallar. Innlent 4.12.2025 20:39
Hafi engin afskipti haft af málinu Inga Sæland félagsmálaráðherra segist ekki hafa beitt sér á neinum tímapunkti í máli Ársæls Guðmundssonar skólameistara Borgarholtsskóla. Hún hafi hvorki átt í samskiptum við samráðherra sína um málið, né beri hún nokkurn kala til hans. Innlent 4.12.2025 18:57
Skólameisturum brugðið og þeir krefjast fundar með ráðherra Skólasamfélaginu er verulega brugðið yfir ákvörðun mennta- og barnamálaráðherra um að endurnýja ekki skipun Ársæls Guðmundssonar í embætti skólameistara Borgarholtsskóla. Innlent 4.12.2025 16:54
Ákvörðunin varði gagnrýni Ársæls ekki að neinu leyti Í ljósi boðaðra umfangsmikillla breytinga á framhaldsskólastiginu taldi mennta- og barnamálaráðuneytið rétt að auglýsa stöðu skólameistara Borgarholtsskóla þannig að umsækjendur gætu metið hvort þeir vilji leiða skólann í gegnum slíkar breytingar. Tekið var fram á fundi með Ársæli Guðmundssyni, skólameistara skólans, að ekkert væri því til fyrirstöðu að hann sækti um stöðuna ef hann kysi svo. Ekki hefur verið tekin nein ákvörðun á þessum tímapunkti um að auglýsa aðrar stöður skólameistara. Innlent 4.12.2025 16:12
Vænir ráðherra um valdníðslu og óskar skýringa Lögmaður Ársæls Guðmundssonar skólameistara Borgarholtsskóla sendi Guðmundi Inga Kristinssyni, mennta- og barnamálaráðherra, bréf í dag þar sem hann óskaði skýringa á ákvörðun ráðherra um að auglýsa starf hans. Hún beri vott um valdníðslu. Innlent 4.12.2025 15:52
Kristrún bað forseta um að stöðva umræður Allt ætlaði um koll að keyra á Alþingi í morgun þegar þingmenn stjórnarandstöðunnar lýstu yfir óánægju sinni með að Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, hefði verið tekinn af lista yfir ráðherra sem sitja áttu fyrir svörum í óundirbúnum fyrirspurnartíma, einmitt þegar þeir ætluðu að spyrja hann út í embættisfærslur hans í máli skólameistara Borgarholtsskóla. Í ljós kom að ráðherrann liggur á sjúkrahúsi og gat því ekki mætt í þingið. Umræður undir liðnum fundarstjórn forseta héldu þó áfram lengi vel og loks spurði forsætisráðherra forseta Alþingis hvort ekki væri hægt að „stoppa þetta.“ Innlent 4.12.2025 15:19
Símtalið við Ingu skráð í skjalakerfi skólans Skólameistari Borgarholtsskóla segist ekki vera í nokkrum vafa um það að Inga Sæland formaður Flokks fólksins hafi beitt sér fyrir því að skipunartími hans sem skólastjóra hafi ekki verið framlengdur. Þar hafi munað mestu um símtal frá ráðherra í janúar um týnt skópar barnabarns hennar. Innlent 4.12.2025 11:56
Guðmundur Ingi á sjúkrahúsi Þingmenn stjórnarandstöðunnar gagnrýndu embættisfærslur mennta- og barnamálaráðherra við upphaf þingfundar í morgun og lýstu áhyggjum af því hvernig hann hafi beitt sér í máli skólameistara Borgarholtsskóla. Forseti þingsins benti á að málið varði ekki störf þingsins eða fundarstjórn forseta en upplýsti að Guðmundur Ingi Kristinsson, mennta- og barnamálaráðherra, væri á sjúkrahúsi og geti sökum þessa ekki verið viðstaddur umræður á Alþingi. Hann er ekki sagður alvarlega veikur. Innlent 4.12.2025 10:44
Koma Ársæli til varnar og telja ráðherra refsa honum fyrir skoðanir sínar Fulltrúar úr fráfarandi skólanefnd Borgarholtskóla skora á mennta- og barnamálaráðherra að falla frá ákvörðun sinni um að framlengja ekki skipunartíma Ársæls Guðmundssonar skólameistara skólans. Fulltrúar sem setið hafa í skólanefndinni telja ákvörðun ráðherra órökstudda og án aðdraganda auk þess sem þau gruni að með ákvörðun sinni sé ráðherra að refsa Ársæli fyrir gagnrýni sem hann hafi haldið á lofti um áform stjórnvalda um málefni framhaldsskóla. Innlent 4.12.2025 09:57
Tjáir sig um símtalið margfræga: „Hún var ekki í neinu jafnvægi“ „Inga hringdi í janúar, ég fékk bara símann frá skiptiborðinu, og hún var ekki í neinu jafnvægi; byrjaði strax að hella sér yfir mig, ákaflega reið og bókstaflega öskraði í símann að það væri búið að stela glænýjum Nike-skóm af barnabarninu.“ Innlent 4.12.2025 06:33
Hegðun ráðherra „ekki bara forkastanleg, hún er hættuleg“ Þingmanni Sjálfstæðisflokksins er verulega brugðið yfir ákvörðun mennta- og barnamálaráðherra um að leysa skólameistara Borgarholtsskóla frá störfum. Hann segir ákvörðun ráðherra hættulega og einkennast af ógnarstjórn. Innlent 3.12.2025 16:07
Fær ekki framlengingu í Borgó „þvert á allar hefðir“ Ársæll Guðmundsson lýkur senn störfum sem skólameistari Borgarholtsskóla. Guðmundur Ingi Kristinsson menntamálaráðherra hefur ákveðið að auglýsa embættið laust til umsóknar. Ársæll segir í tilkynningu til starfsfólks að honum þyki augljóst hvað liggi að baki ákvörðuninni hjá ráðherranum. Aðstoðarmaður ráðherra segir skólameistaranum einungis hafa verið tjáð að starf hans yrði auglýst og það vegna breytinga á framhaldsskólakerfinu. Innlent 3.12.2025 13:52
Telur áform ráðherra vanhugsuð Skólastjóri Borgarholtsskóla furðar sig á fyrirhuguðum breytingum sem menntamálaráðherra hefur boðað á framhaldsskólastigi. Þær séu vanhugsaðar og beri með sér litla þekkingu á menntamálum. Innlent 21.9.2025 07:44
Inga iðrast og biðst afsökunar á símtali Inga Sæland félagsmálaráðherra iðrast símtals sem hún átti við skólameistara Borgarholtsskóla og biðst afsökunar á því. Hún segist hvatvís að eðlisfari en verði að átta sig á nýrri stöðu sem ráðherra. Innlent 28.1.2025 19:32
„Líklegt að framganga Ingu liggi þungt á mörgum samráðherrum“ Henry Alexander Henrysson siðfræðingur telur skorta nokkuð uppá að Inga Sæland félags- og húsnæðismálaráðherra, átti sig til fulls á því hvað felst í hinu nýja (ráðherra)hlutverki. Ársæll Guðmundsson skólastjóri Borgarholtsskóla fagnar afsökunarbeiðni Ingu. Innlent 28.1.2025 17:07
Ráðherra hringdi í skólastjóra vegna týnds skópars Inga Sæland félags- og húsnæðismálamálaráðherra mun hafa sagst hafa ítök í lögreglunni þegar hún hellti sér yfir skólastjóra Borgarholtsskóla vegna týnds skópars barnabarns hennar. Skórnir komu í leitirnar en ekki vegna pressu ráðherra. Inga segir málið ekki koma Vísi við. Innlent 27.1.2025 14:28