Helgarviðtal

Fréttamynd

Heyrir aftur hljóð sem höfðu verið horfin í mörg ár

Elísabet Þór Jóhannesdóttir missti heyrnina smám saman á rúmum áratug og undir lokin heyrði hún nánast ekkert á vinstra eyra án hjálpartækis. Í september í fyrra gekkst hún undir svokallaða kuðungsígræðslu og tók þá við langt ferli þar sem heilinn þurfti að læra að túlka hljóð upp á nýtt. Síðan þá hafa hljóð sem áður voru sjálfsögð komið aftur inn í líf hennar. 

Lífið
Fréttamynd

Var send í megrunarbúðir 11 ára gömul

Vijona Salome er einungis 28 ára en hefur engu að síður afrekað margt á stuttri ævi. Hún hefur orðið þrefaldur Íslandsmeistari í fitness, flutt til Spánar, byggt þar upp eigið fyrirtæki og á síðustu mánuðum safnað um átján þúsund fylgjendum á TikTok þar sem hún deilir margvíslegum fróðleik um mataræði og heilsu.  

Lífið
Fréttamynd

Skipu­leggur eigin jarðar­för

„Mig langar bara að minna fólk á að finna það fallega í litlu hlutunum,“ segir Dagný Ósk Vestmann aðspurð hvað henni sé ofarlega í huga á átakanlegum tímamótum. Hún er þrjátíu og átta ára gömul tveggja barna móðir og stendur frammi fyrir því að eiga einungis nokkrar vikur ólifaðar. Í stað þess að skipuleggja næsta barna- eða brúðkaupsafmæli er hún að skipuleggja og safna fyrir eigin kistulagningu og útför.

Innlent
Fréttamynd

„Ég byrjaði að lesa kaflann og fór bara að gráta“

Ný skáldsaga Þorgríms Þráinssonar, Ég kom til að gráta, á rætur í banaslysi sem hann heyrði um sem ellefu ára drengur í Ólafsvík. Slysið sat í honum frá barnsaldri en 37 ár liðu frá því að hann fór fyrst að punkta hjá sér hugmyndir að sögunni þar til hún varð að bók.

Lífið
Fréttamynd

Einn mánuður án á­fengis breytti öllu

Sunna Ben Guðrúnardóttir hefur lengi verið áberandi í íslensku menningar- og skemmtanalífi sem ljósmyndari og plötusnúður og hefur komið víða við í skapandi störfum. Fyrir þrettán árum var staðan þó allt önnur. Hún var 24 ára, nýkomin heim úr myndlistarnámi, atvinnulaus, blönk og glímdi við kvíða sem áfengið gerði enn verri. Þegar hún ákvað að prófa einn mánuð án áfengis hafði hún enga hugmynd um að sá mánuður yrði upphafið að nýju lífi.

Lífið
Fréttamynd

Skrifaði sig í sögu­bækur Cambridge

„Maður finnur drifkraftinn og brennandi áhugann í loftinu frá öllu fólkinu í kringum mann og það er mjög smitandi,“ segir hin 25 ára gamla og kraftmikla Guðrún Diljá Agnarsdóttir sem er búsett í Cambridge í Bretlandi þar sem hún er á lokaárinu sínu í doktorsnámi og rannsakar líffræðilegar afleiðingar stökkbreytinga í geni sem valda Parkinson-sjúkdómi. Samhliða krefjandi námi stundar hún róður af fullum krafti en hún féll fyrir sportinu á fyrstu vikunum sínum úti og vann nýverið til virtra verðlauna á því sviði. 

Lífið
Fréttamynd

„Hræði­legt að sjá of­beldið sem ég beitti mig“

„Ég hef svo lengi verið að fela mig og þykjast vera einhver sem ég er ekki. Þetta er í fyrsta skipti sem ég næ að losa um það. Eina sem ég sýndi á samfélagsmiðlum var bara ég í ræktinni og að borða einhverjar geggjaðar máltíðir. Fólk sér ekki þegar ég er andvaka á næturnar og langar ekki að lifa,“ segir hinn þrítugi Anton Ísak Óskarsson sem hefur ýmsa fjöruna sopið. Hann missti föður sinn fyrir fimm árum og við tók gríðarlega erfitt uppgjörstímabil, sem er enn í gangi.

Lífið
Fréttamynd

Ekki ó­sann­gjarnt gagn­vart sjálfri sér heldur börnunum

Guðný Pála Rögnvaldsdóttir kennari og söngkona er í miðri meðferð við þriðja stigs brjóstakrabbameini en undirbýr sig um leið fyrir tíu kílómetra í Reykjavíkurmaraþoninu. Hún ætlar ekki að setja tímamet, heldur einfaldlega að mæta, halda áfram og komast í mark áður en því verður lokað.

Lífið
Fréttamynd

„Í þessum bransa lærir maður að vera með breitt bak“

„Ég vissi að ég vildi ekki fara heim með skottið á milli lappanna.“ Þessi orð lýsa kannski best þeirri þrautseigju sem hefur einkennt feril Einars Andra Ólafssonar sem hefur á undanförnum árum unnið sem fyrirsæta fyrir alþjóðleg og virt vörumerki á borð við Audi, BMW, Intimissimi, Geox, Oscar Jacobson og Fjallräven.“

Lífið
Fréttamynd

Fór til Spánar sem au pair og kom aldrei heim

Þegar Erla María Huttunen fór fyrst til Valencia á Spáni árið 2004 var planið ekki að flytja út fyrir fullt og allt. Hún var 21 árs, nýbúin með stúdentspróf úr MK og langaði að læra spænsku, kynnast annarri menningu og gera eitthvað annað en að fara beint í háskóla á Íslandi. Í dag, 22 árum síðar, býr hún þar enn, er gift manni frá Marokkó, á tvær unglingsdætur og starfar sem grunnskólakennari í spænskum einkaskóla. Hún segir lífið á Spáni hafa mótað sig en að Íslendingurinn í henni hverfi þó seint.

Lífið
Fréttamynd

Ekkert líf að verða hrædd á hverju vori

Hafnfirðingurinn Björk Jakobsdóttir er kona margra hatta. Hún er leikkona, veislustjóri, amma, leikhússtjóri, uppistandari, leikskáld og hestahvíslari. Spurning frá Árna heitnum Tryggvasyni reyndist örlagarík. Hún segist vel geta séð fyrir sér að söðla um og gerast bóndi. Og það sem meira er, maður trúir henni alveg til að láta verða af þessu.

Lífið
Fréttamynd

Fann ástina á Tinder og endaði í Texas

Þegar Eydís Helga Gunnarsdóttir rakst á bandarískan hermann sem hafði „lækað“ hana á Tinder gerði hún ekki ráð fyrir miklu, í mesta lagi einum aukafylgjanda á Instagram. Raunin varð þó önnur. Á þessum tíma var hún einhleyp stelpa í Mosfellsbæ sem sinnti tveimur vinnum og var í krefjandi háskólanámi. Í dag, fjórum árum seinna, er hún orðin gift húsmóðir í Texas. Eitt „læk“, sem hún næstum því hunsaði, átti sem sagt eftir að breyta öllu.

Lífið
Fréttamynd

Þegar tón­listin hel­tók lög­manninn

Ferill Jóhannesar S. Ólafssonar er einstakur. Blaðamaður hafði stöku sinnum, í gegnum feril sinn, rætt við Jóhannes um ýmis sakamál sem hann hafði haft með að gera sem hæstaréttarlögmaður. Þegar hann sá svo dúett sunginn á samfélagsmiðlum fannst honum hann kannast við manninn. Fannst hann kunnuglegur en náði ekki að tengja. Eða hvað? Nei, gat þetta verið lögmaðurinn?

Lífið
Fréttamynd

Bréf til ó­kunnugrar stúlku varð upp­hafið að nýju lífi á Ís­landi

Þegar Hlín Christiane Mainka Jóhannesdóttir var unglingur í Þýskalandi skrifaði hún bréf til stúlku á Íslandi sem hún þekkti ekki. Hún var að leita svara um nám á Hólum og drauminn um líf með íslenska hestinum. Á umslaginu stóð aðeins nafn stúlkunnar og „Hólar, Hjaltadalur, Ísland“.Nokkrum vikum síðar barst svar sem átti eftir að hafa afgerandi áhrif á líf Hlínar.

Lífið
Fréttamynd

Opnaði ættleiðingarskjölin í fyrsta sinn og fann setningu sem breytti öllu

Sigrún Arna Brynjarsdóttir hafði alltaf vitað að hún hefði verið ættleidd frá Indlandi. Hún vissi að hún hefði verið skilin eftir sem nýfætt barn og að hún hefði komið til Íslands sex mánaða gömul. Samt var það allt annað að sjá eigin sögu svart á hvítu þegar hún opnaði ættleiðingargögnin sín í fyrsta sinn, tæplega fjörutíu árum síðar.

Lífið
Fréttamynd

Upp­lifði létti þegar mamma dó

„Lífið mitt er auðveldara núna eftir að hún dó. Það er það sorglega í þessu,“ segir Sigríður Inga Svavarsdóttir um andlát móður sinnar í október á síðasta ári. Móðir hennar veiktist alvarlega eftir að eiginmaður hennar lést skyndilega árið 2017. Næstu sjö árin glímdi hún við geðhvörf og fíknivanda, en Sigríður segir fjölskylduna ítrekað hafa reynt að koma henni inn í viðeigandi úrræði án þess að hún fengi nægilega snemmtæka eða samfellda aðstoð.

Lífið
Fréttamynd

Fólk undraðist að þær héldu barni frá skjám fyrstu tvö árin

Jasmín Guðrún Abu Libdeh er að ljúka MA-námi í foreldrafræðslu við Háskóla Íslands og er ein fárra hér á landi sem hefur sérhæft sig á þessu sviði. Hún nær jafnframt til tugþúsunda foreldra á samfélagsmiðlum, þar sem hún fjallar um uppeldi, skjánotkun, mörk, bræðisköst, tengsl og samviskubitið sem virðist fylgja foreldrahlutverkinu eins og óumbeðið fylgiskjal.

Lífið
Fréttamynd

„Hélt það væri ekki hægt að bjarga mér“

„Það breyttist allt við það að verða móðir, þá var ég loksins tilbúin að fá hjálp við að vinna úr öllu. Ekki bara fyrir mig heldur fyrir hana,“ segir forritarinn Eydís Líf Ágústsdóttir sem hefur marga fjöruna sopið og þurft að vinna sig í gegnum mikil áföll en árið 2018 greindist litli bróðir hennar með krabbamein og tveimur mánuðum síðar lést faðir hennar af slysförum.

Lífið
Fréttamynd

„Bíddu, þetta er satt. Ég er með átröskun“

„Að sjálfsögðu er ég fylgjandi því að fólk eigi að koma sér í gott form og hugsa um heilsuna sína. En það er eins með það og allt annað; það er allt gott í hófi,“ segir Gabriel Xavier Harasimczuk.

Lífið
Fréttamynd

„Sigga okkar“ sem breytir lífi kvenna í fangelsi

„Það er magnað að sjá árangurinn af þessu og líka að sjá hvað svona lítið framlag hefur skilað sér í miklu,“ segir Sigríður Birna Sigvaldadóttir en stjórn höfuðborgardeildar Rauða krossins valdi hana á dögunum sem einn af sjálfboðaliðum ársins. Frá árinu 2024 hefur Sigríður ásamt fleirum staðið að sérstökum konukvöldum í fangelsinu á Hólmsheiði – sem slegið hafa rækilega í gegn. Markmið verkefnisins er að styðja konurnar sem þar afplána dóma, auka virkni þeirra og styrkja félagsleg tengsl.

Lífið
Fréttamynd

„Var að syrgja pabba þegar mamma dó“

„Það er svo margt sem maður áttar sig ekki á að séu forréttindi. Frá því ég missti foreldra mína hef ég til dæmis alltaf reynt að fá vakt um jólin því ég veit aldrei hvar ég á að vera,“ segir Ragnhildur Björk Ingvarsdóttir sem opnaði sig nýverið á samfélagsmiðlum um sorgina sem fylgdi því að missa báða foreldra sína en í mörg ár reyndi hún að ýta sorginni frá sér. Ragnhildur ræddi við blaðamann um missinn, áfallavinnuna, sorgina og framtíðina.

Lífið
Fréttamynd

Ó­mögu­legt að af­neita sorginni til lengri tíma

„Ég er svo þakklátur að hafa hitt hann þarna. Það hefði verið mjög erfitt að fyrirgefa sér að hafa ekki farið,“ segir íþróttafréttamaðurinn og skemmtikrafturinn Andri Már Eggertsson. Andri skaust upp á stjörnuhimininn fyrir nokkrum árum, heiðrar landsmenn oft með nærveru sinni á skjánum á íþróttaleikjum og hefur verið hvað þekktastur fyrir viðurnefnið Nablinn. Hann ræddi við blaðamann um líf sitt og tilveru, vonir og drauma, lífsgleðina og mikla sorg sem hann gekk í gegnum fyrir rúmum tveimur árum síðan.

Lífið
Fréttamynd

„Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“

Ásdís Birna Bjarkadóttir var tólf ára þegar faðir hennar var dæmdur í átta ára fangelsi. Málið var áberandi í fjölmiðlum en heima fyrir ríkti þögn. Nú, sextán árum síðar, hefur hún skrifað bókina Þegar pabbi fór í fangelsi, bók sem hún skrifaði til „litlu Ásdísar“, til að svara þeim spurningum sem hún hefði sjálf viljað fá svör við á sínum tíma.

Lífið
Fréttamynd

Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið

„Ég gleymi því aldrei þegar ég kveð mömmu og pabba og þau sjá mig hverfa inn í mannhafið á Manhattan. Þetta voru æðisleg mótunarár,“ segir fata- og búningahönnuðurinn, lífskúnstnerinn og fagurkerinn María Theodóra Ólafsdóttir. Frá blautu barnsbeini hefur María búið yfir gríðarlegri sköpunargleði en hún hefur alltaf farið eigin leiðir, lærði í Parsons í New York og hefur verið órjúfanlegur hluti af ævintýraheimi leikhússins undanfarna áratugi.

Lífið
Fréttamynd

„Að fá þessa greiningu er ekki enda­punktur“

Fyrir fjórum árum fékk Sigurður Freyr Jónatansson loksins skýringu á því sem hafði fylgt honum frá barnsaldri. Hann var giftur tveggja barna faðir sem hafði komið víða við í atvinnulífinu og sinnt alls kyns félagsstörfum þegar hann fékk greiningu á einhverfu, 52 ára gamall.

Lífið