Árni skattakóngur annað árið í röð Árni Sigurðsson, aðstoðarforstjóri JBT Marel, var launahæstur Íslendinga árið 2025, með rúmar 46 milljónir króna á mánuði. Hann var einnig tekjuhæstur í fyrra en var þá með ívið lægri laun, eða rúmar 40 milljónir á mánuði. 18.8.2026 12:54
Stolinn bíll fannst úti í á Um klukkan fimm í morgun barst lögreglu tilkynning um bíl í Elliðaá við göngubrúna yfir Naustavog. Við rannsókn lögreglu kom í ljós að bíllinn var stolinn. 18.8.2026 10:52
María Klara til Athygli María Klara Jónsdóttir hefur gengið til liðs við ráðgjafarfyrirtækið Athygli. Hún mun sinna fjölbreyttum verkefnum á sviði samskipta, stefnumála og stjórnendaráðgjöf. Reynsla hennar af mannauðsmálum, vinnurétti, lögmennsku og stjórnun er sögð styrkja fjölbreytt ráðgjafarteymi Athygli. 18.8.2026 09:58
Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Guðmundur Fertram Sigurjónsson, stofnandi Kerecis, hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri sára- og vefjaviðgerðasviðs Coloplast, sem keypti Kerecis á sínum tíma. Þess í stað tekur hann við stöðu aðalráðgjafa forstjóra Coloplast í nýsköpun og tækni. 17.8.2026 16:26
Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Meirihluti landsmanna telur að boðuð skattahækkun stjórnvalda á íslenska banka muni hafa neikvæð áhrif á almenning, íslensk fyrirtæki, viðskiptavini bankanna og hluthafa þeirra. Landsmenn telja aftur á móti flestir að boðuð hækkun hefði jákvæð áhrif á ríkissjóð. 17.8.2026 11:52
Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Þorvaldur Einarsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Ofar, sem er hluti af Nova klúbbnum. Þorvaldur kemur til Ofar frá Lyfju, þar sem hann hefur verið tækni- og þróunarstjóri frá árinu 2022 og borið meðal annars ábyrgð á upplýsingatækni og þróun stafrænnar þjónustu. 17.8.2026 11:07
Bændur segja nei 95 prósent fulltrúa á Bændaþingi hafa samþykkt ályktun þess efnis að Búnaðarþing leggist gegn aðild Íslands að Evrópusambandinu og þar með að hefja á ný viðræður um aðild. 14.8.2026 16:08
Ólafur Þór má rannsaka hlut Jóns Óttars í Samherjamálinu Landsréttur telur Ólaf Þór Hauksson héraðssaksóknara ekki vanhæfan til að rannsaka ætluð mútu- og peningaþvættisbrot Jóns Óttars Ólafssonar, fyrrverandi lögreglumanns og njósnara, í tengslum við Samherjamálið svokallaða. 14.8.2026 15:29
„Bjór var drukkinn á Íslandi áður en Alþingi leyfði það“ Netverslanir með áfengi áætla að allt að 100 þúsund manns kaupi áfengi af öðrum smásölum hér á landi en ÁTVR. Nýleg könnun Gallup sýnir að um þrjátíu prósent aðspurðra segjast hafa keypt áfengi í gegnum vefverslun og tæplega sextíu prósent ef einungis er horft til fólks á aldrinum 20 til 39 ára. Tölur verslananna sjálfra benda til þess að hlutfallið sé enn hærra. 14.8.2026 11:58
„Ég get ekki orða bundist“ Ingibjörgu Davíðsdóttur, þingmanni Miðflokksins og fyrrverandi sendiherra, þykir utanríkisráðuneytið fara yfir strikið með því að deila grein sem utanríkisráðherra ritar í Bændablaðið í dag. Ráðuneytið bendir henni á að löng hefð sé fyrir því að skrifum utanríkisráðherra sé deilt á miðlum ráðuneytisins. 13.8.2026 16:43