Neytendur

Hekla innkallar 2.610 bíla

Árni Sæberg skrifar
Innköllunin nær meðal annars til bíla af gerðinni Volkswagen Golf.
Innköllunin nær meðal annars til bíla af gerðinni Volkswagen Golf. Luca Piccini Basile/Getty

Volkswagensamstæðan hefur tilkynnt um innköllun á ákveðnum gerðum Volkswagen, Skoda og Audi ökutækja í varúðarskyni vegna mögulegrar tæringar á bolta, sem festir stýrisvél við undirvagn.

Í fréttatilkynningu frá bílaumboðinu Heklu segir að á Íslandi nái innköllunin samkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum til um 2.230 Škoda-bifreiða af gerðunum Karoq, Kodiaq, Octavia og Superb, 378 Volkswagen-bifreiða af gerðunum Golf, Tiguan og Touran ásamt tveimur Audi Q3-bifreiða. Alls séu þetta um 2.610 bifreiðar af árgerðum 2015 til 2024.

Eigendur viðkomandi bifreiða muni fá sent bréf frá Heklu með nánari upplýsingum um næstu skref.

Lagfæring felist í að skipta boltanum út fyrir bolta með aukinni tæringarvörn. Ekki liggi enn fyrir hvenær varahlutir verða tiltækir á Íslandi. Eigendur bíla sem falla undir innköllunina fái tilkynningu þegar varahlutir berast og geti þá bókað tíma hjá Heklu eða viðurkenndum þjónustuverkstæðum.

Samkvæmt upplýsingum frá framleiðanda hafi ekkert slys eða atvik sem rekja má til þessa máls verið tilkynnt og óhætt sé að nota ökutækin þar til komið er að lagfæringu.

Hekla leggi ríka áherslu á öryggi viðskiptavina sinna og muni tryggja að framkvæmd innköllunarinnar gangi hratt og örugglega fyrir sig og sé viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Ef einhverjar spurningar vakna sé hægt að hafa samband við hekla@hekla.is

„Ef óvenjulegt málmhljóð heyrist framan úr bílnum eða breyting verður á hegðun stýris skal stöðva á öruggum stað, ekki aka lengra og hafa samband við viðurkenndan þjónustuaðila.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×